Ísland í mútum

Aldrei hafa fleiri verið undir rann­sókn vegna gruns um að hafa ýmist þegið eða greitt mútur á Íslandi. Sautján manns eru undir í fjórum rann­sóknum Hér­aðs­sak­sókn­ara og tveir til við­bótar fengu dóma nýlega. Þar til í fyrra voru mútu­rann­sóknir og dómar taldir á fingrum ann­arrar handar.

Ísland í mútum

Aldrei áður hafa eins mörg saka­mál verið til rann­sóknar á Íslandi, þar sem grunur leikur á að mútur hafi komið við sögu og núna. Að minnsta kosti fjögur mál eru nú á borði Hér­aðs­sak­sókn­ara þar sem hátt í tutt­ugu manns sæta grun um að hafa boðið, greitt eða þegið mútur. Dómur féll í einu máli til við­bótar í Hæsta­rétti, þar sem tveir voru sak­felldir fyrir mútu­brot.

Hver er skýr­ingin á því að í landi, sem þangað til í fyrra hafði ein­ungis rann­sakað og farið með í dóm fjögur mútu­mál á ríf­lega hálfri öld, skuli öll þessi mál nú vera til skoð­unar? Er Ísland komið í mútur? 

Sá sem ekki leitar, finnur ekkert

Það er rétt ár síðan lögum um mútur var breytt og hámarks­refs­ing fyrir því var hækkuð í sex ára fang­elsi. Það var í þriðja sinn á innan við ára­tug sem hámarks­refs­ingu fyrir mútur var breytt á Íslandi. Fyrst …

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er Gagnleg samantekt her heldur a Penna MAÐUR sem þorir og byður Forhertum GÆPAMONNUM byrgin. Það er ljost að Island er eitt af spiltustu Löndum i Evropu. En altt er hægt þegar Gjörspiltur Flokkur er við völd og Gefur vinum og Vandamönum EIGUR almenings, og fer með Domsmal i landinu. Greinarhöfundur er DJARFUR Erlendis gæti hann att a hættu að enda eins og SKRIPAL forðum daga. DJÖFULIN HEFNIR FYRIR SINA
    The Poisoning of Sergei and Yulia Skripal, also known as the Salisbury Poisonings, was a botched assassination attempt to poison Sergei Skripal, a former Russian military officer and double agent for the British intelligence agencies in the city of Salisbury, England on 4 March 2018. Sergei and his daughter,----- En sem betur fer sigrar það Goða það ILLA. PENNI ER BEITTARI EN SVERÐ.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ísland í mútum

Baneitrað samband á bæjarskrifstofunum
RannsóknÍsland í mútum

Ban­eitrað sam­band á bæj­ar­skrif­stof­unum

Ásakanir um mútur, fjár­kúgun og fjár­svik hafa ítrekað komið upp í tengslum við bygg­ingu þriggja stærstu íþrótta­mann­virkja Kópa­vogs­bæjar. Verktaki sem fékk millj­arða verk hjá Kópa­vogsbæ greiddi fyrir skemmti­ferð maka og emb­ætt­is­manna bæj­ar­ins, sem mælt höfðu með til­boði verk­tak­ans. Fjársvika­kæra gegn honum og starfs­manni bæj­ar­ins var felld niður. „Það hefði átt að rann­saka þetta sem mútur,“ segir bæj­ar­full­trúi og furðar sig á með­ferð bæj­ar­stjóra á mál­inu, sem var ekki eins­dæmi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár