Hálendisþjóðgarður „hefur í rauninni ýtt öllu öðru til hliðar“

Í dokt­ors­nám­inu voru engi­sprettur á heim­ili hans í Mos­fells­dalnum og um skeið var fugla­kónguló í þeim félags­skap. Á tíma­bili var hann alltaf með hagla­byssu í skott­inu á haustin en óx fljótt upp úr því að skjóta fugla. Jón Gunnar Ottósson er ástríðu­fullur unn­andi íslenskrar nátt­úru og rann­sóknir á henni hafa átt hug hans allan í ára­tugi. Hún er ein­stök, hún er mik­il­væg og að henni steðja ógnir, segir hann í við­tali við Kjarnann, nokkrum mán­uðum eftir að hann lét af emb­ætti for­stjóra Nátt­úru­fræði­stofn­unar.

Hálendisþjóðgarður „hefur í rauninni ýtt öllu öðru til hliðar“

Þegar Jón Gunnar Ott­ós­son hóf störf sem sér­fræð­ingur hjá nýstofn­uðu umhverf­is­ráðu­neyti árið 1990 var mikil gerjun að eiga sér stað í umhverf­is­málum á heims­vísu. Und­ir­bún­ingur fyrir heims­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í Ríó var í fullum gangi og kom hann að miklu leyti í hlut Jóns Gunn­ars fyrir Íslands hönd. Á ráð­stefn­unni, sem Jón Gunnar sótti, og fram fór árið 1992, voru stað­festir tíma­móta­samn­ingar til verndar líf­ríki jarð­ar. Til að sporna gegn rýrnun líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika og til að takast á við helstu ógn­ina: Lofts­lags­breyt­ing­ar.

Það var því hugur í hinum fer­tuga líf­fræð­ingi er íslenska sendi­nefndin kom heim frá Ríó með samn­ing­ana und­ir­rit­aða í fartesk­inu. Nú skyldu mál­efni nátt­úr­unnar verða sett á odd­inn. Nátt­úr­unnar sem hann hafði brunnið fyrir allt frá því hann var strákur í Mývatns­sveit. Eld­móð­ur­inn skil­aði honum nokkrum árum síðar inn í helsta vígi nátt­úru­rann­sókna á Íslandi, sjálfrar Nátt­úru­fræði­stofn­un­ar. Þar átti hann eftir að starfa sem for­stjóri í 27 ár eða allt þar til í des­em­ber í fyrra er hann lét af störf­um, sjö­tugur að aldri.

Þó að for­stjóra­stól­inn hafi verið kvaddur er ástríðan enn fyrir hendi. Og það er einmitt vegna hennar sem Jón Gunnar lýsir von­brigðum með stöðu nátt­úru­verndar á Íslandi nú um stund­ir. Ákveðin teikn um hvernig á þessum málum yrði tekið voru þegar komin á loft eftir ráð­stefn­una í Ríó. Hver þjóð átti í kjöl­far stað­fest­ingar á samn­ingnum um líf­fræði­lega fjöl­breytni að gera sína stefnu­mörkun og aðgerða­á­ætl­un. „Það var ekki fyrr en 2008 að þessi stefnu­mörkun var gerð – sextán árum eftir und­ir­ritun samn­ings­ins,“ segir Jón Gunn­ar. Tveimur árum seinna var aðgerða­á­ætl­unin klár, „og svo ekki sög­una meir. Það er ekk­ert farið eftir þessu. Engin eft­ir­fylgn­i“.

Miklu, miklu betur

Það er þó ekki eins og umhverf­is­málin séu öll í kalda koli. Ýmis­legt hefur áunn­ist. „En það má gera miklu, miklu bet­ur,“ segir hann með áherslu. „Núna, eins og svo oft áður á Íslandi, er eins og við getum aldrei hugsað um nema eitt í einu. Lofts­lags­málin voru ekki hátt skrifuð hér á landi fyrsta ára­tug­inn eftir sam­þykkt lofts­lags­samn­ings­ins. En eftir að lofts­lags­málin tóku yfir allt vill annað gleym­ast. Öllu virð­ist fórn­andi fyrir þau.“

Hann segir stjórn­völd ein­fald­lega ekki fram­fylgja nátt­úru­vernd­ar­lögum. Samkvæmt þeim átti fyrir nokkru að setja net vernd­ar­svæða á fram­kvæmda­á­ætlun. Til­lög­urnar, sem Nátt­úru­fræði­stofnun vann, eru löngu til­búnar. Brýnt sé að sinna nátt­úru­vernd skipu­lega og með sam­bæri­legum hætti og aðrar Evr­ópu­þjóðir. „Við erum hins vegar farin að feta í fót­spor Banda­ríkj­anna þar sem áherslan er á úti­vist frekar en vernd.“

Fossinn Drynj­andi á Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Fossar í Rjúkanda, Hvalá og Eyvind­ar­fjarð­ará eru meðal þeirra nátt­úru­fyr­ir­bæra sem Nátt­úru­fræði­stofnun til­nefnir á nátt­úru­minja­skrá vegna jarð­minja.

Jón Gunnar flutti nýverið ásamt eig­in­konu sinni, Margréti Frí­manns­dóttur, í nýtt úthverfi á Selfossi. „Það sem er svo gott við þetta hús er hversu hátt er til lofts og birtan flæðir inn,“ segir hann og bendir út um glugg­ann. „Hér er útsýni niður að ánni og til fjall­anna.“

Náttúran. Hún er honum alltaf ofar­lega í huga. Í kringum hann skott­ast lít­ill hundur, sjö mán­aða tík sem heitir Gríma. Það finnst Jóni Gunnari við­eig­andi nafn í heims­far­aldri kór­ónu­veirunnar. Hann hefur oft haft hunda í kringum sig í gegnum tíð­ina en einnig önnur dýr – sum hver tölu­vert meira fram­andi.

Dokt­ors­rit­gerð Jón Gunnars við Exeter-háskóla á Englandi fjall­aði um vist­fræði skor­dýra og plantna. Hluta af henni vann hann heima á Íslandi, nánar til­tekið á heim­ili sínu í Mos­fells­dal. Þar gerði hann rann­sóknir á engi­sprettum. Um þær bjó hann í einu her­bergi og gaf þeim mis­mun­andi teg­undir af burknum að éta.

Engi­sprettur voru meðal við­fanga Jóns Gunnars í dokt­ors­verk­efn­inu.

Engi­sprett­urnar voru ekki einu kvik­indin sem fluttu inn í her­bergið. Í einni ferð Jóns Gunnars erlendis var honum gefin fugla­kónguló, „þessi stóra sem á heim­kynni í Afríku,“ segir hann og glottir er hann rifjar þetta upp núna, um fjórum ára­tugum síðar. „Það var öllum svo illa við hana að fólk hætti að koma í heim­sókn,“ bætir hann hlæj­andi við.

Auður dóttir hans, rit­höf­undur með meiru, segir að kóngu­lóin hafi gefið frá sér und­ar­legt hvæs. Og að eitt sinn hafi hún sloppið út. Jón Gunnar man nú ekki sér­stak­lega eftir því en segir hana fljót­lega hafa drep­ist úr tauga­veiklun. Tegundin sé háð tólf tíma myrkri og tólf tíma dags­birtu. Svo hinar enda­lausu íslensku sum­ar­nætur og hinn dimmi vetur var henni ekki að skapi.

Jón Gunnar man hins vegar eftir því að alls kyns dýr sem komið var með til Nátt­úru­fræði­stofn­unar í gegnum tíð­ina hafi sloppið úr búrum sínum. Eitt sinn var komið með eitr­aðan snák sem hafði verið gerður upp­tækur. „Hann slapp út og hvarf og fannst ekki fyrr en viku seinna eftir mikla leit. Þá var hann bak við ofn í sama her­berg­inu. Hann hafði þá bara verið að hlýja sér.“

Í dag eru það aðrar fram­andi teg­undir sem eru Jóni Gunn­ari ofar­lega í huga. Ágengar teg­undir sem ógna íslenskri nátt­úru – fyrst og fremst plönt­ur. Því er að hans mati ekki tekið alvar­lega „en á sama tíma er þetta við­ur­kennt á alþjóða­vett­vangi sem ein mesta ógn við líf­ríki jarð­ar,“ segir hann. „Hér hlæja menn bara að þessu.“

Hvaðan sprettur þessi ástríða þín fyrir nátt­úr­unni?

„Ætli það teng­ist ekki því að ég var alinn upp í Mývatns­sveit,“ svarar hann. „Svo voru margir frændur mínir í föð­ur­ætt nátt­úru­fræð­ingar og komnir af hómópöt­um. Þannig að þetta er eflaust í blóð­inu lík­a.“

Áhug­inn og menntun Jóns í nátt­úru­fræði hefur farið með hann víða. Um allt land og til margra landa víðs vegar um heim, til starfa hjá ýmsum stofn­un­um, í kennslu og inn í nefndir á sviði nátt­úru­vernd­ar, skóg­ræktar og land­græðslu, svo fáein dæmi séu tek­in. „Ég hef unnið með öllum umhverf­is­ráð­herrum Íslands frá upp­hafi,“ segir hann og þylur nöfn þeirra upp í réttri röð. Þar sem hann er ekki lengur emb­ætt­is­maður er freist­andi að spyrja hvernig sam­starfið við þá hafi geng­ið. Hann segir nokkra þeirra standa upp úr. Nefnir strax Össur Skarp­héð­ins­son, Svandísi Svav­ars­dóttur og Sig­ríði Önnu Þórð­ar­dótt­ur. Siv Frið­leifs­dóttir hafi svo „átt sína sprett­i“. En að lík­lega hafi hann átt einna minnst sam­ráð við núver­andi umhverf­is­ráð­herra, Guð­mund Inga Guð­brands­son. Vara­for­mann Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs. Hafði þó bundið miklar vonir við hann.

Hvernig finnst þér núver­andi rík­is­stjórn hafa staðið sig í nátt­úru­vernd­ar­mál­um?

„Illa,“ svarar hann að bragði. „Mér finnst hún ekki sinna nátt­úru­vernd­inni og svo fram­fylgir hún ekki nátt­úru­vernd­ar­lög­um.“

Jón Gunnar segir að á meðan ágengar teg­undir, m.a. trjá­teg­undir, séu við­ur­kenndar sem ein mesta ógn líf­ríkis jarðar á alþjóða­vett­vangi sé hlegið að slíkum áhyggjum hér á landi.

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, sem nú er heil­brigð­is­ráð­herra, er að mati Jóns sá stjórn­mála­maður sem hvað mest mark setti á umhverf­is­ráðu­neytið vegna þess að hún setti af stað löngu tíma­bæra vinnu við end­ur­skoðun nátt­úru­vernd­ar­laga.

Í hana var lögð gríð­ar­leg vinna. Und­an­far­inn var hvít­bók um lög­gjöf til verndar nátt­úru Íslands en hana vann nefnd sem Svan­dís skip­aði og Jón Gunnar átti sæti í. „Að öðrum ólöst­uðum átti Aagot Ósk­ars­dóttir lög­fræð­ingur stærstan þátt í gerð frum­varps­ins til nýrra nátt­úru­vernd­ar­laga.“

Lögin voru sam­þykkt árið 2013 en tóku ekki gildi fyrr en rúmum tveimur árum síð­ar. Að mati Jóns Gunn­ars eru þau vönduð en fram­kvæmdin á þeim er hins vegar „í skötu­lík­i“. Flestar stofn­anir sem undir svið lag­anna heyra hafa gert það sem til er ætl­ast af þeim „en áhug­inn fyrir fram­kvæmd­inni hverfur alltaf fyrir ein­hverjum öðrum gælu­verk­efnum við­kom­andi ráð­herra. Mið­há­lend­is­þjóð­garð­ur­inn hefur í raun­inni ýtt öllu öðru til hlið­ar.“

Net vernd­ar­svæða

Jón Gunnar útskýrir þetta frekar: „Þegar við gerðum hvít­bók­ina og nýju lögin þá horfðum við til ann­arra landa. Þar hefur þróun nátt­úru­vernd­ar­mála verið á fullu skriði alveg frá árinu 1987 má segja og mjög árang­urs­rík hug­mynda- og aðferða­fræði verið þró­uð. Hún end­ur­spegl­ast í okkar nátt­úru­vernd­ar­lögum en það vantar upp á að við fylgjum þessum aðferðum eft­ir.

Til dæm­is, einn mik­il­væg­asti þátt­ur­inn í sam­starfi Evr­ópu­ríkja er að búa til net vernd­ar­svæða. Það eru að ég held öll ríki í Evr­ópu búin að til­nefna svæði inn á netið nema Ísland og tvö ríki í við­bót. Mig minnir að það séu Lichten­stein og San Mar­ino. Land­lausar þjóð­ir.“

„Það er ein­fald­lega svo sterkur áróður fyrir því að Ísland sé tötrum vafið og það megi gera allt til að bæta úr þeim ímynd­aða vanda.“
Jón Gunnar í Bæj­ar­staða­skógi við skor­dýra­rann­sóknir, lík­lega 1981.

Hvað skýrir það?

„Áhuga­leysi myndi ég halda. Norð­menn og Sviss­lend­ingar eru meðal þeirra þjóða sem hafa staðið sig mjög vel – og ekki eru þær hluti af Evr­ópu­sam­band­inu. Í nátt­úru­vernd­ar­lög­unum eru mörg bráða­birgða­á­kvæði þar sem settar eru tíma­setn­ingar á hvenær á að vera búið að fram­kvæma ákveðna hluti. En það er bara látið eins og þetta sé ekki til.“

Hvers vegna?

„Þarna eru miklir hags­mun­ir. Hvort sem það eru virkj­an­ir, skóg­rækt eða eitt­hvað ann­að. Skóg­rækt­ar­menn vilja sumir engar tak­mark­anir á því hvar þeir mega planta og hvar ekki. Eða hverju. En í þeim hugs­un­ar­hætti felst ógn. Í fyrsta lagi getur skóg­rækt breytt ásýnd lands. Svo er líka oft verið að taka alls konar og mjög verð­mætar vist­gerðir undir skóg­rækt og valda með því óaft­ur­kræfum spjöll­u­m.“

Jóni Gunn­ari er tíð­rætt um vist­gerð­ir. Fleiri kann­ast lík­lega við orðið vist­kerfi. En það er að hans sögn mjög fljót­andi hug­tak. „Þú getur talað um vist­kerfi rjúp­unn­ar. Þú getur talað um Mývatn sem vist­kerfi. Um Ísland sem vist­kerfi. En hug­takið vist­gerð [natural habitat eða habitat type] er það sem menn nota í Evr­ópu í dag. Það er eitt­hvað sem er með fest­ingu í nátt­úr­unni og er hægt að skil­greina. Þetta var fundið upp einmitt til þess að geta skrá­sett nátt­úr­una, metið hana og vaktað.“

Herðu­breið­ar­lindir eru til­nefndar á nátt­úru­minja­skrá vegna ferskvatns­vist­gerða.

Að skrá­setja, meta og vakta. Þetta er einmitt það sem umfangs­mikil vinna Jóns Gunn­ars og ann­arra sér­fræð­inga Nátt­úru­fræði­stofn­unar gekk út á á nokk­urra ára tíma­bili. Vinna sem nauð­syn­legt var að fara í vegna alþjóð­legra skuld­bind­inga og fram­kvæmd nátt­úru­vernd­ar­laga, en hafði setið á hak­anum vegna fjár­skorts.

En svo kom fjár­magn skyndi­lega til skjal­anna. Og ástæðan fyrir því að við fengum „fullt af pen­ing­um“, eins og Jón Gunnar orðar það, var ein­föld: „Það er engin þjóð sem getur gengið í Evr­ópu­sam­bandið fyrr en að hún er búin að taka frá land­svæði undir nátt­úru­vernd.“

Alþjóð­lega er búið að skil­greina þau dýr, plönt­ur, vist­gerðir og fleiri fyr­ir­brigði í nátt­úr­unni sem þarfn­ast vernd­ar. Með þessar skil­grein­ingar að vopni eru svæði kort­lögð, „vist­gerð eftir vist­gerð, teg­und eftir teg­und“ og þannig búið til net sem hefur það að mark­miði að taka frá þau svæði sem eru verndar þurfi áður en ákvarð­anir eru teknar um aðra land­nýt­ingu. Þannig virka málin í Evr­ópu­kerf­inu, segir Jón Gunnar en bætir við að þessu sé þver­öf­ugt farið hér á landi. „Á Íslandi fæst það land­svæði friðað sem ekki eru önnur not fyr­ir. Ef ekki á að virkja eða ráð­ast í aðra land­notk­un, þá er í lagi að friða. En ef til er virkj­ana­hug­mynd þá er mjög mikil and­staða gegn því að vernda það.“

Nátt­úru­fræði­stofnun til­nefnir Eldey suð­vestur af Reykja­nesi á nátt­úru­minja­skrá vegna fugla.

Í skrán­ing­ar­ferl­inu og til­lögu­vinn­unni allri var allt landið flokkað í vist­gerðir (land, ferskt vatn og fjara) en vegna sér­stöðu íslenskrar nátt­úru þurfti að bæta við flokkum því hér er að finna vist­gerðir sem finn­ast hvergi ann­ars staðar í heim­in­um. Vís­inda­menn­irnir fundu til dæmis fjórtán mis­mun­andi gerðir af vot­lendi. „Ís­lend­ingar tala alltaf um vot­lendi sem eitt­hvað eitt fyr­ir­bæri. Bara mýri. En sumt af þessu vot­lendi er alveg gríð­ar­lega verð­mætt. Hvort sem horft er á Evr­ópu­vísu eða heims­vís­u.“

Af hverju sjáum við ekki þetta verð­mæti?

„Það er ein­fald­lega svo sterkur áróður fyrir því að Ísland sé tötrum vafið og það megi gera allt til að bæta úr þeim ímynd­aða vanda,“ segir hann. „Svo er annað sem á það til að gleym­ast en í fel­ast mikil verð­mæti. Í land­inu er að finna fullt af nátt­úru­fyr­ir­bærum; teg­undum og vist­gerð­um, sem við berum ábyrgð á sam­kvæmt alþjóða­samn­ing­um. Í björgum við landið er til að mynda að finna 60 pró­sent af álku­stofni heims­ins. Þess vegna berum við meiri ábyrgð á því en aðrir að henni verði ekki útrýmt.“

Eftir að Ísland sótti um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sá fram­kvæmda­stjórn þess hversu „aft­ar­lega við vorum á mer­inni“ í því að skrá­setja nátt­úr­una og setti fjár­muni í verkið sem Nátt­úru­fræði­stofnun vann hratt á árunum 2012-2016. „Það skipti engu í okkar huga hvort að við myndum ganga í Evr­ópu­sam­bandið eða ekki, því þetta var sami grunnur og lagt var upp með í nátt­úru­vernd­ar­lög­un­um,“ bendir Jón Gunnar á. „Þetta er líka í sam­ræmi við alþjóða­samn­inga eins og Bern­ar­samn­ing­inn um vernd villtrar nátt­úru í Evr­ópu.“

Breiða­fjörður ásamt eyjum, skerjum og fjörum innan línu sem dregin er frá Vallna­bjargi á Snæ­fells­nesi um Hösk­uldsey, Stagley, Odd­bjarn­ar­sker og Haga­dráps­sker að Skor­ar­vogi á Barða­strönd, er til­nefndur á nátt­úru­minja­skrá vegna fugla, fjöru­vist­gerða og sela.

Þegar umsókn um sam­bands­að­ild­ina var dregin til baka átti það engu að breyta um fram­hald­ið. Sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum átti að leggja fram fram­kvæmd­ar­á­ætlun nátt­úru­minja­skrár, þ.e. svæði sem áttu að fara í for­gang í frið­un, og byggja á þessu neti. Þetta átti ráð­herra að leggja fram í síð­asta lagi 2017 sam­kvæmt bráða­birgða­á­kvæði lag­anna. Nátt­úru­fræði­stofnun skil­aði honum full­búnum til­lögum í byrjun árs 2018 og við­bót­ar­til­lögum ári síðar að hans beiðni. Eftir það gerð­ist ekki neitt. „Við hefðum getað verið sam­stíga öðrum Evr­ópu­ríkjum í að koma þessu neti á.“

En af því hefur ekki enn orð­ið.

Af hverju ekki?

„Með þessu er verið að binda svæði – vernda þau. En Norð­menn, svo við tökum dæmi frá þjóð sem við berum okkur oft saman við, hafa tekið frá ótrú­legan fjölda svæða í þessum til­gangi. Svæði sem má, svo það sé tekið fram, nýta svo lengi sem þess er gætt að vernd­ar­mark­mið náist.“

Öll þessi nálgun er byggð inn í nátt­úru­vernd­ar­lögin „en á meðan menn þrá­ast við að koma þeim í fram­kvæmd þá eru til­lög­urnar ekk­ert annað en ein­hver papp­írs­bunki sem skiptir engu máli“.

Jón Gunnar verður hugsi áður en hann heldur áfram.

„Eitt af því sem maður tekur nærri sér er að á meðan stjórn­völd voru að draga lapp­irnar í mál­inu var ég for­maður nátt­úru­vernd­ar­samn­ings Evr­ópu, Bern­ar­samn­ings­ins. Ég var í stjórn hans í ell­efu ár og for­maður þegar verið var að koma þessu neti á í Evr­ópu. Þá var það mín þjóð sem stóð sig ekki. Það var svekkj­andi að horfa upp á það.“

Aðeins vilji til að friða í algjörri sátt

Hvað þarf að ger­ast til að þetta verði sett í fram­kvæmd?

„Þetta er póli­tísk ákvörð­un. Það þarf ein­fald­lega að senda þessar til­lögur inn og þá fara þær í ferli. Ég skil ekki af hverju er ekki löngu búið að því. Þessu er alltaf frestað og settar fram ein­hverjar afsak­an­ir. Þær eru þó engar sem hönd á festir raun­veru­lega.“

Hverju myndi það breyta ef þetta net yrði að veru­leika?

„Það myndi styrkja vernd þess­ara teg­unda, vist­gerða og svæða og færa okkur yfir í það að vinna skipu­lega að nátt­úru­vernd en ekki allt að því til­vilj­ana­kennt eins og er í dag.

Mun­ur­inn á okkur og öðrum Evr­ópu­löndum er þessi: Við erum mjög slæm með það að friða ekki nema að það sé algjör sátt um það. En það verður aldrei algjör sátt ef ein­hverjir hags­munir tengj­ast svæð­inu. Í Evr­ópu horfa þeir öfugt á þetta. Þar er byrjað að taka frá svæði sem nauð­syn­legt er að vernda. Svo er farið að skoða iðn­að­inn og land­bún­að­inn.“

Það sem skýrir þetta að sögn Jóns Gunn­ars „er þessi rót­gróna og oft van­hugs­aða hags­muna­gæsla okk­ar“.

„Eitt af því sem maður tekur nærri sér er að á meðan stjórn­völd voru að draga lapp­irnar í mál­inu var ég for­maður nátt­úru­vernd­ar­samn­ings Evrópu, Bern­ar­samn­ings­ins. Þá var það mín þjóð sem stóð sig ekki.“
Svæði í Þjórs­ár­verum er til­nefnt á nátt­uruminja­skrá vegna vist­gerða á landi og fugla.

Umræðan um þá ógn sem steðjar að jörð­inni vegna lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum hefur orðið hávær og almenn síð­ustu ár. Hér eru þó engin ný vís­indi á ferð­inni og Jón Gunnar hefur lifað og hrærst í þeim í ára­tugi. Þegar í Ríó voru mál­efni lofts­lags­ins efst á baugi og lofts­lags­samn­ing­ur­inn und­ir­rit­aður af tugum ríkja, m.a. Íslandi. „Þau eru mjög brýn,“ segir Jón Gunnar um mála­flokk­inn. „En,“ bætir hann við með áherslu, „það er hægt að skipu­leggja hlut­ina þannig að við tökum á öðrum þáttum um leið.“

Oft er talað um að hin græna end­ur­nýj­an­lega orka sem hér er hægt að fram­leiða geti orðið okkar stóra fram­lag til loft­lags­mála. En að mati Jóns Gunn­ars er ekki hægt að horfa ein­angrað á lofts­lags­vand­ann. „Það verður líka að hugsa um hvers konar nátt­úru, hvers konar vist­gerð­ir, er verið að skemma eða hafa áhrif á með virkj­un­inni sjálfri, bind­ingu með skóg­rækt eða öðrum sam­bæri­legum aðgerð­u­m.“

Umræðan hafi að vissu leyti leitt okkur á villi­göt­ur. „Til þess að upp­fylla ákvæði lofts­lags­samn­ings­ins er ekki ætl­ast til að þú brjótir ákvæði ann­arra samn­inga. Það eru til að mynda mjög skýrar reglur í Bern­ar­samn­ingnum og Ríó-­samn­ingnum um líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika um að vernda ólíkar vist­gerð­ir. En hér á landi, til að upp­fylla ákvæði lofts­lags­samn­ings­ins, eru hinir samn­ing­arnir brotn­ir.“

Sérðu þetta vera að eiga sér stað?

„Já. Dæmi um þetta eru æpandi út um allt. Sem betur fer hefur dregið úr því að menn ræsi fram vot­lendi til að planta trjám. En menn eru að taka alls konar aðrar vist­gerðir og sá í þær lúpínu og fram­andi trjá­teg­und­um.

Ég skal taka ein­falt dæmi: Spó­inn er svokölluð ábyrgð­ar­teg­und á Íslandi. Hvergi í heim­inum dvelja yfir sum­ar­tím­ann jafn margir spó­ar. En hann þarf gróð­ur­lítið land til þess að verpa. Opið land, áreyrar og slíkt eru hans kjör­lendi. En núna eru þessi svæði smám saman að hverfa í lúpínu. Þannig missir spó­inn sífellt meira af sínum búsvæð­um. Þetta er raun­veru­leg ógn við spó­ann hér á landi og þar með í heim­in­um.“

Spóar eru ábyrgð­ar­teg­und á Íslandi því hvergi í heim­inum dvelja jafn margir spóar yfir sum­ar­tím­ann og hér.

Við erum komin að heitu umræðu­efni. Eld­heitu jafn­vel. „Það verður að hafa meiri hemil á notkun lúpín­unn­ar,“ segir Jón Gunn­ar. „Mér liggur við að segja að umræðan um lúpínu jafn­ist á við trú­ar­brögð. Og sumir þess­ara trú­ar­hópa eru enn að dreifa lúpínu, jafn­vel uppi á hálendi, þar sem hún er bönn­uð. Svo dreif­ist hún með öllum ám og lækj­um. Lúpínan þekkir engin jarða­mörk.“

Hann segir lúpínu­stríðið í raun þegar tap­að. „Á stórum svæðum á land­inu munum við aldrei losna við hana. Síðan þetta stríð hófst hafa menn skipt um stefnu og reynt að halda henni frá ákveðnum svæð­um. Meira að segja Land­græðslan, sem not­aði lúpínu til upp­græðslu áður hefur algjör­lega snúið við blað­inu. Hún er bönnuð í yfir 400 metra hæð og á öllum frið­lýstum svæð­um. En þú losnar ekk­ert við hana.“

Jón Gunnar hefur alla sína tíð verið andsnú­inn því að nota lúpínu, þá ágengu jurt, til land­græðslu. „Ég fann einmitt nýverið úrklippu með við­tali við mig sem tekið var fyrir um 30 árum. Og það hefði getað verið skrifað í dag.“

Hefur þú verið gagn­rýndur fyrir að tala gegn henni?

„Já, já. Þetta er hatrömm deila. Vinir lúpín­unnar hafa notað þá aðferð skipu­lega að ef ein­hver opnar munn­inn gegn þeim þá fær við­kom­andi her­sveit á sig í fjöl­miðl­u­m.“

Lúpína er ágeng teg­und sem sáð var víða hér á landi á árum áður. Hún er nú bönnuð innan ákveð­inna svæða en Jón Gunnar segir okkur aldrei eiga eftir að losna við hana.

En það eru fleiri teg­undir sem eru allt að því þyrnir í augum Jóns Gunn­ars. Hann hefur ákveðnar áhyggjur af þróun skóg­ræktar í land­inu, mað­ur­inn sem um ára­bil starf­aði hjá rann­sókn­ar­stöð Skóg­ræktar rík­is­ins á Mógilsá, m.a. sem for­stöðu­mað­ur. Margir sjá fram­andi teg­undir skógar­planta í rós­rauðum bjarma og að út í þær þurfi nú ekki að fetta fingur heldur miklu heldur fagna fjöl­breyti­leik­an­um. Sumar þeirra eru ekki einu sinni fram­andi í okkar huga leng­ur. Þær eru út um allt. Við erum hér að tala um stafa­f­uru og sitka­greni, svo dæmi séu tek­in.

Afláts­bréf á færi­bandi

Kolefn­is­jöfn­un, það nýyrði sem fyr­ir­tækjum er þegar orðið tamt að nota í aug­lýs­ing­um, er að mati Jóns Gunn­ars ekk­ert annað en afláts­bréf. Synda­af­lausn fyrir neyt­endur sem telja sig með­vit­aða en eru í raun að láta spila með sig. „Þetta gengur út á það að láta fólk kaupa ein­hverja hríslu svo það geti hagað sér eins og það vill,“ segir Jón Gunnar og hristir höf­uð­ið. „En þetta er aldrei hugsað til enda. Skógur bindur hratt á meðan hann er að vaxa en svo kemur að því að hann bindur minna heldur en að hann and­ar. Skógur er eins og hver önnur líf­vera. Hann eld­ist, hrörnar og deyr.“

En hvað er þá hægt að gera hvað varðar lofts­lags­mál­in?

„Ein­fald­lega að fara að haga sér allt öðru­vísi,“ svarar Jón Gunnar um hæl. „Fara að draga úr losun í stað­inn fyrir að auka hana enda­laust og finna svo upp á ein­hverjum bind­ing­ar­að­ferð­um. Þetta snýst allt um lífs­hætti í raun. Að vernda ákveðna lífs­hætti sem fólk telur sig eiga rétt á og ekki geta verið án.“

Undir lok síð­ustu ald­ar, nokkrum árum eftir að Jón Gunnar tók við starfi for­stjóra Nátt­úru­fræði­stofn­un­ar, voru miklar virkj­ana­hug­myndir uppi á Aust­ur­landi og til stóð að sökkva Eyja­bökk­um, vot­lend­is­svæði upp af Fljóts­dal, undir uppi­stöðu­lón. Áformin voru gríð­ar­lega umdeild og um alda­mótin var ákveðið að hverfa frá þeim en ráð­ast þess í stað í Kára­hnjúka­virkj­un.

„Kár­an­hnjúka­virkj­un, langstærsta virkjun sem hefur verið byggð á Íslandi, fékk fólk til að hugs­a,“ segir Jón Gunn­ar. „Það fór gríð­ar­legt land­flæmi undir lón­ið. Við hjá Nátt­úru­fræði­stofnun urðum fyrir mik­illi gagn­rýni því við tókum að okkur und­ir­bún­ings­rann­sókn­ir. Í þeim reyndum við fyrst og fremst að meta áhrifin á nátt­úr­una, gera okkar eigin skýrslur sem Lands­virkjun og aðrir gætu þá not­að. Við vorum eini aðil­inn á Íslandi sem gat gert svona verk­efni á þessum tíma. Ef við hefðum ekki gert það hefðu þessar rann­sóknir orðið í skötu­lík­i.“

Kall­aður á teppið

Gagn­rýnin kom úr öllum átt­um. Stofn­un­in, og líka Jón Gunnar per­sónu­lega, var gagn­rýnd fyrir að fara í verk­efnið fyrir Lands­virkjun en nið­ur­staða rann­sókn­anna, þar sem ítar­lega var farið yfir þau miklu umhverf­is­á­hrif sem virkj­unin hefði í för með sér, einnig. „Ég var kall­aður á teppið hjá ráð­herra aftur og aftur fyrir að ég og mitt starfs­fólk skyldum hafa látið hitt og þetta út úr okk­ur.“

Aðrar virkj­ana­hug­myndir hafa einnig valdið sam­bæri­legum og jafn­vel enn harð­ari deil­um. Mývatns- og Lax­ár­slag­ur­inn á sínum tíma var gríð­ar­lega harð­ur. Þar átti að drekkja öllum Lax­ár­dalnum upp að Mývatni. En heima­menn stopp­uðu fyr­ir­ætl­an­irn­ar. „Þetta hafði áhrif á mig sem nátt­úru­fræð­ing,“ við­ur­kennir Jón Gunn­ar. „Ég er líka alinn upp í Mývatns­sveit, við Laxá sem átti að kaf­færa. Alinn upp í kringum allt þetta fólk.“

Bar­áttan um Þjórs­ár­verin var líka óvægin og er mörgum enn í fersku minni. „Frá því ég man eftir mér hafa verið slags­mál í gang­i,“ segir Jón Gunn­ar.

Eyja­bökkum var þyrmt á sínum tíma. Nátt­úru­fræði­stofnun til­nefnir þá, sem og allan Vatna­jök­uls­þjóð­garð, á nátt­úru­minja­skrá vegna vist­gerða á landi, ferskvatns­vist­gerða, fugla og sela.

Á aðeins nokkrum miss­erum hafa verið settar fram tugir hug­mynda að vind­orku­verum víðs­vegar um land­ið. Nátt­úru­fræði­stofnun vildi hafa vaðið fyrir neðan sig og hóf að afla sér þekk­ingar fyrir mörgum árum og á meðan fyrstu hug­mynd­irnar voru enn á frum­stigi. Með þá þekk­ingu að vopni hafa sér­fræð­ingar stofn­un­ar­innar átt marga fundi með þeim sem slík orku­ver vilja reisa. „Þetta vildum við gera til að vera betur í stakk búin að fjalla um vind­orku­mál­in. Það er nefni­lega oft notað á Íslandi að þekk­ingin sé ekki fyrir hendi og þess vegna sé allt í lagi að gera hlut­ina. Við höfum alltaf sagt við þessa aðila, til að kom­ast hjá vand­ræð­um, reynið að finna staði þar sem er ekki mikið fugla­líf eða far­leiðir fugla. Ekki benda á kort og segja: Við ætlum að vera hér.“

Rann­sóknir á fugla­lífi á Íslandi eru umfangs­miklar og eitt síð­asta verk Jóns Gunn­ars hjá Nátt­úru­fræði­stofn­un, voru kaup á sendum til að setja á erni til að kort­leggja helstu far­leiðir þeirra. Út úr því verk­efni eru þegar komnar mjög merki­legar nið­ur­stöð­ur. Til dæmis hvað ernir þvæl­ast mik­ið. „Einn, sem bjó við Breiða­fjörð­inn, tók sig einu sinni til og flaug með þjóð­veg­inum og Þing­valla­hring­inn og til bak­a,“ segir Jón Gunn­ar. „Svo sjáum við til dæmis að aðal far­leið arna milli Húnaflóa og Breiða­fjarðar er Lax­ár­dals­heiði. Þar er nú verið að skipu­leggja tvo vind­myllu­garða. Akkúrat í far­leið­inni. Ernir eru einna við­kvæm­astir af öllum fuglum Íslands fyrir vind­myll­um. Þannig að miðað við þessar upp­lýs­ingar sem við erum að fá núna þá eru þetta ekki góðir staðir fyrir vind­orku­ver.“

Jón Gunnar á heim­ili sínu á Selfossi. Að baki honum er stytta af hrafni sem samt­arfs­menn hans á Nátt­úru­fræði­stofnun gáfu honum við starfs­lokin.

Hvernig finnst þér ramma­á­ætlun hafa virkað sem stjórn­tæki?

„Hún hefði virkað vel, ef menn hefðu fylgt því sem lagt var upp með,“ svarar Jón Gunn­ar. „Ferlið hefur auð­vitað gengið miklu hægar en það átti að gera vegna eilífra deilna um ein­staka kosti. Þegar lögin voru fyrir Alþingi á sínum tíma benti Nátt­úru­fræði­stofnun á galla þess að verk­efn­is­stjórn ætti að hand­velja ein­stak­linga til að vera í fag­hóp­um. Að það væri röng stefna. Frekar ætti fela stofn­unum þar sem þekk­ingin er mikil að gera fag­vinn­una enda væri það í sam­ræmi við lög­boðið hlut­verk þeirra. Ákvarð­ana­takan gæti eftir sem áður verið hjá verk­efn­is­stjórn.“ Á þetta var ekki hlust­að.

Líkt og margt annað í nátt­úru­vernd­ar­málum segir Jón Gunnar að bar­áttan fyrir ramma­á­ætlun hafi verið löng og ströng. Lögin um nýt­ingu og vernd land­svæða voru svo sett árið 1999.

Því þetta er fag

Jón Gunnar sat í fyrstu verk­efn­is­stjórn­inni. „Eftir þá vinnu, þennan fyrsta áfanga, fannst mér ljóst að þetta fyr­ir­komu­lag, með þessa fag­hópa, gengi ekki upp. Því þetta er fag. Og það er ekki í lagi að láta þessa grunn­vinnu, mat á virkj­ana­kost­unum og áhrifum þeirra, í hend­urnar á Pétri og Páli.“

Fjögur og hálft ár eru síðan til­laga til þings­á­lykt­unar um þriðja áfang­ann var lögð fyrst fram. Það var svo gert aft­ur. Og aft­ur. Nú síð­ast í des­em­ber. Og enn er hún ekki afgreidd. „Ég skil ekki af hverju umhverf­is­ráð­herra hefur ekki lagt hana fyrr inn á þing­ið. Hann hefur setið á ráð­herra­stóli í tæp fjögur ár. Til­lagan eins og hún lítur út í dag var til­búin þegar hann tók við.“

Svartá og Suðurá á Norð­ur­landi eru til­nefndar á nátt­úru­minja­skrá vegna ferskvatns­vist­gerða og fugla.

Hver er þín skoðun á hálend­is­þjóð­garði?

„Mér finnst gott og blessað að eiga draum um mið­há­lend­is­þjóð­garð. En ég hefði viljað stíga styttri skref í einu og búa til net frið­un­ar­svæða eins og þau eru skil­greind í til­lögum Nátt­úru­fræði­stofn­un­ar. Vernda það sem er vernd­ar­þurfi. Þegar netið væri komið á tel ég að eft­ir­leik­ur­inn yrði auð­veld­ari. Rök­stuðn­ing­ur­inn sterk­ari.“

Áherslan á ferða­mennsku innan hálend­is­þjóð­garðs­ins sé of mikil og hann telur skýr­ing­una m.a. fel­ast í því að umhverf­is­ráð­herra sé mennt­aður í Banda­ríkj­un­um. Þar sé nátt­úru­vernd­ar­kerfið allt annað en hér á landi og skipu­lag þjóð­garða lík­ara fólkvöng­unum okkar - úti­vist­ar­svæði. „Í Banda­ríkj­unum er lagt mikið upp úr ferða­mönn­um,“ segir hann. Í Evr­ópu sé unnið skipu­legar og með skýr­ari aðferða- og hug­mynda­fræði. „En ráð­herr­ann virð­ist ekki vilja horfa til Evr­ópu heldur halla sér að banda­ríska kerf­inu. Og hálend­is­þjóð­garð­ur, eins og hann er áform­að­ur, er hluti af því.“

Að vernda nátt­úr­una hennar sjálfrar vegna

Jón Gunnar segir umræð­una farna að minna sig á hinar gömlu heim­speki­deil­ur; hvort verið sé að vernda nátt­úr­una hennar sjálfrar vegna eða fyrir mann­inn. „Mér finnst ráð­herr­ann tala á þann veg að við eigum að vernda nátt­úr­una fyrir mann­inn á meðan hugs­unin í nátt­úru­vernd­ar­lög­unum er þver­öf­ug.“

Í ráð­herra­tíð Guð­mundar Inga hafa nokkur svæði verið frið­lýst en Jón Gunnar bendir á að flest séu þau friðuð að ósk heima­manna. Þetta eru svæði eins og Geys­ir, Goða­foss, Akurey og Látra­bjarg, sem margir Íslend­ingar héldu eflaust að væru nú þegar frið­uð, svæði sem engin bein ógn steðjar að, ekki nema þá vegna ágangs ferða­manna. „Hag­ræni hvat­inn er fyr­ir­ferð­ar­mik­ill í þessum frið­lýs­ing­um. Enda notar ráð­herr­ann það alveg stöðugt, að friðun svæðis laði að svo marga ferða­menn. En við viljum ekki endi­lega fá ferða­menn á alla þessa staði sem þarf að vernda.“

Það er ekki til­viljun að hrafn er í merki Nátt­úru­fræði­stofn­unar. Hann er þar að ósk og til­lögu Jóns Gunnars.

Þú hættir sem for­stjóri Nátt­úru­fræði­stofn­unar í des­em­ber þegar þú varðst sjö­tug­ur. Hefðir þú viljað vinna leng­ur?

„Fyrir hálfu ári hefði ég svarað þess­ari spurn­ingu ját­andi. En núna er ég feg­inn að hafa hætt. Þetta var alveg komið gott.“

Spurður hvort að það sé eitt­hvað í fræð­unum sem hann langi að halda áfram að grúska í seg­ist hann vera búinn að fá nóg af slíku – í bili að minnsta kosti. En hver veit, kannski sest hann við ein­hvern dag­inn og skrifar bók.

Jón Gunnar hefur alla tíð verið mik­ill úti­vist­ar­maður og stundað veiðar þegar því hefur verið við­kom­ið. Á sínum yngri árum var hann með hagla­byssu til taks í skott­inu á bíln­um. „Ég skaut rjúpu og gæs þegar ég var ungur en svo óx ég upp úr því og fór í stang­veið­ina,“ segir hann.

Hrafnar hafa fylgt Jóni Gunn­ari í gegnum lífið allt frá æsku­ár­um. Spurður hvað það sé við hrafn­inn sem heilli segir hann þá ein­fald­lega skemmti­lega. Það er því engin til­viljun að hrafn sé í merki Nátt­úru­fræði­stofn­un­ar. „Hrafn­inn er alls stað­ar,“ segir hann. Þó að við Íslend­ingar séum aldir upp við að sjá hann bæði í sveit og borg er hann ein­stakur á heims­mæli­kvarða eins og svo margt annað í okkar nátt­úru. „Ís­lenski hrafn­inn er sér­stök deili­teg­und,“ bendir Jón Gunnar á. „Vængirnir á honum eru styttri en á hröfnum sem finn­ast ann­ars staðar í Evr­ópu miðað við sté­lið. Hann hefur verið á Íslandi miklu lengur en við mann­fólk­ið.“

Og það er fleira sem skýrir áhug­ann á hrafn­in­um. Í kringum hann er alls konar þjóð­trú sem Jón Gunnar hefur gaman að. „Guð launar fyrir hrafn­inn.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár