Framlag til einkarekinna fjölmiðla úr ríkissjóði aukið um 360 milljónir

Til stendur að inn­leiða fyr­ir­komu­lag sem veitir þeim sem eru áskrif­endur að rit­stýrðum fjöl­miðlum skatta­af­slátt. Vegna þessa verða fram­lög til einka­rek­inna fjöl­miðla úr rík­is­sjóði tvö­földuð á næsta ári. Útvarps­gjaldið, sem fjár­magnað hluta rekst­urs RÚV, verður að óbreyttu 6,2 millj­arðar króna á næsta ári og hækkar um 415 millj­ónir króna milli ára.

Framlag til einkarekinna fjölmiðla úr ríkissjóði aukið um 360 milljónir
Ráðherra fjöl­miðla Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra mun leggja fram frum­varp á kom­andi þingi sem á að hvetja lands­menn til að ger­ast áskrif­endur að rit­stýrðum fjöl­miðlum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nýir hvatar til auk­innar áskriftar að þeim fjöl­miðlum sem eru með starf­andi rit­stjórn verða inn­leiddir á næsta ári sam­kvæmt nýbirtu fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2024. Gert er ráð fyrir að hvat­arnir kosti rík­is­sjóð 360 millj­ónir króna á ári. Um var­an­lega aukn­ingu á fjár­heim­ild til mála­flokks­ins verður að ræða.

 Vegna þessa mun heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna fram­lags til einka­rek­inna fjöl­miðla aukast úr 477 millj­ónum króna í ár í 727 millj­ónir króna á næsta ári. Í ár áttu 377 millj­ónir króna að fara í greiðslur vegna stuðn­ings­kerfis þar sem hluti rit­stjórn­ar­kostn­aðar einka­rek­inna fjöl­miðla er end­ur­greiddur en pott­ur­inn stækk­aði eftir að hluti fjár­laga­nefndar reyndi að koma á 100 millj­óna króna sér­stakri styrkja­greiðslu til sjón­varps­stöðv­ar­innar N4 í des­em­ber í fyrra. Sú til­raun var stöðvuð eftir að fjár­heim­ild fékkst til að veita styrk­inn og því var ákveðið að setja …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár