Til að samþætta skilning á loftslagsmálum sagðist Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vilja að allir, sérfræðingar sem og almenningur, þekki bókhaldskerfin þrjú sem notuð eru til að halda utan um losun Íslendinga af gróðurhúsalofttegundum. Hér er skýring á þessum kerfum.
„Maður heldur, sérstaklega í hópi eins og þessum, að það séu allir inni í málum. Það er fullkominn misskilningur,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, með bros á vör, í pontu hátíðarsals Háskóla Íslands, þar sem hann ræddi um loftslagsmál.
Í hátíðarsalnum þennan dag voru samankomnir nokkrir af helstu sérfræðingum Íslands í loftslagsmálum, þar á meðal Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, sem boðaði til fundarins ásamt Guðlaugi Þór og ráðuneyti hans, sem og aðilar frá stofnun Ólafs …
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir