Heimilin hafa aldrei tekið jafn mikið af verðtryggðum íbúðalánum í einum mánuði

Sífellt fleiri heim­ili eru að skipta úr óverð­tryggðum lánum yfir í verð­tryggð lán til að lækka mán­að­ar­lega greiðslu­byrði sína. Algjör spreng­ing varð í þess­ari þróun í júlí þegar umfang verð­tryggðra lána sem voru tekin var rúm­lega tvö­falt meira en mán­uð­inn áður. Á sama tíma er kaup­samn­ingum að fækka um næstum þriðj­ung milli ára.

Heimilin hafa aldrei tekið jafn mikið af verðtryggðum íbúðalánum í einum mánuði
Hægir á upp­bygg­ingu Samtök iðn­að­ar­ins segja í nýrri grein­ingu að fjöldi nýbyggðra íbúða á næstu árum verði undir þörfum sam­fé­lags­ins. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Heimili lands­ins tók alls verð­tryggð lán með veði í íbúð fyrir 15,7 millj­arða króna í júlí­mán­uði hjá stóru bönk­unum þremur: Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka. Það er lang­hæsta krónu­tala sem bank­arnir þrír hafa lánað í verð­tryggð íbúða­lán til heim­ila í einum mán­uði. Fyrra met var sett í mars 2017 þegar verð­tryggðu íbúða­lánin voru í heild 10,1 millj­arður króna á þávirði, sem er um 14 millj­arðar króna á núvirði. 

Aukn­ingin frá því í júlí­mán­uði er gríð­ar­leg, eða 118 pró­sent. Það þýðir að heim­ilin í land­inu tóku meira en tvisvar sinnum hærri verð­tryggða upp­hæð að láni í júlí en fyrri mán­uði. 

Þetta er meðal þess sem má lesa út úr nýbirtum tölum Seðla­banka Íslands um íslenska banka­kerfið. 

Að sama skapi hafa heim­ilin aldrei áður greitt upp jafn …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár