Frum­kraft­ur­inn sárs­auki Hulda segir sárs­auk­ann í sér vera hreyfi­afl í list­inni. Hún sé þó búin að róa hann, og sætt­ast við hann að mörgu leyti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ég er gegnsæ

Segja má að fer­ill Huldu Vil­hjálms­dóttur hafi byrjað þegar hún var stelpa í sveit, umlukin nátt­úru. Í verkum sínum leikur hún með nátt­úr­una og um leið birt­ing­ar­mynd hennar í mann­eskj­unum. Þessa dag­ana, þangað til 12. ágúst, er hún með einka­sýn­ingu í Listvali. Yfir­skriftin er: Ég er gegnsæ.

Náttúran blés Huldu í brjóst að lifa í list og á heima­síðu hennar má lesa að pabbi hennar hafi verið fyrstur til að eygja hæfi­leika hennar, hann keypti handa henni pensla og bók um list til að hvetja hana áfram. Hann sagði henni sögur um fjöllin en Hulda byrj­aði snemma að kanna þau í gegnum list­ina og líka árnar og sjó­inn.

Hún kaf­aði svo djúpt að það rann upp fyrir henni að kröftug form og hreyf­ingar nátt­úr­unnar spegl­uðu lík­ama konu og per­sónu. Hún var einnig inn­blásin af dag­bók móður sinnar sem hún hafði skrifað nokkrum árum áður en hún lést. Hið skrif­aða orð er Huldu eig­in­legt. Hún skrifar lítil ljóð og sækir inn­blástur í dag­inn, frá degi til dags.

Hér þarf ekki að taka fram að Hulda er ein­stakur lista­maður og mig hefur langað í verk eftir hana síðan ég heyrði fyrst um hana, í árdaga alls, þegar …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár