Ólafur Þ. Harðarson: Líklegast að Samfylkingin sé að sópa til sín lausafylginu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 16 pró­senta fylgi og Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor seg­ist ekki muna eftir verri útkomu flokks­ins í skoð­ana­könnun frá upp­hafi vega. Hann hefur þó fyr­ir­vara á könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins Prósents en þær hafi sýnt sig í að sýna meiri skekkjur en almennt er.

<span>Ólafur Þ. Harðarson:</span> Líklegast að Samfylkingin sé að sópa til sín lausafylginu
Fleiri kann­anir þurfi til Ólafur segir, þó hann minn­ist þess ekki að hafa séð jafn lága fylg­is­mæl­ingu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, óvar­legt að full­yrði að fylgi flokks­ins sé komið jafn lágt og það mælist í könnun Prósents. Fleiri kann­anir þurfi að koma sem sýni sömu nið­ur­stöðu til að hægt sé að slá því föstu. Mynd: Vísindavefurinn

„Stóra myndin er mjög svipuð og hefur verið í öðrum könn­unum en til­hneig­ing­arnar eru kannski ýkt­ari, sér­stak­lega með Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Fljótt á litið man ég ekki eftir svona lágri tölu í nokk­urri könnun, frá upp­hafi.“ Þetta segir Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor um nýja könnun skoð­an­fyr­ir­tæk­is­ins Prósents sem sýnir Sjálf­stæð­is­flokk­inn fá verstu fylg­is­mæl­ingu í sög­unni en Sam­fylk­ing­una halda áfram að styrkja stöðu sína.

Ólafur segir að þessi könnun sýni svip­aða sviðs­mynd og hefur verið að birt­ast í öðrum fylg­is­mæl­ingum að und­an­förnu. Hann vill þó slá varnagla við því að lesa of mikið úr könn­un­inni að svo komnu máli.

„Það þarf að hafa í huga að Prósent hefur stundum verið ákveð­inn útlagi í könn­unum, sveifl­urnar hjá þeim hafa verið meiri en hjá öðrum könn­un­ar­fyr­ir­tækjum. Það er dæmi um að síð­asta könnun þeirra fyrir kosn­ingar hafi verið tölu­vert langt frá kosn­inga­úr­slitum, svo ég hef aðeins meiri fyr­ir­vara á könn­unum Prósents en öðrum könn­unum. Maður tekur í raun ekki mark á 16 pró­senta mæl­ingu Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrr en nokkrar aðrar kannannir hafa stað­fest slíkar tölur.

Hins vegar hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verið að mæl­ast heldur verr und­an­farið heldur en hann gerði á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins. Þá var flokk­ur­inn alla jafna að mæl­ast rétt undir kjör­fylgi, oft með þetta 22 til 24 pró­sent, en í síð­ustu könn­unum hefur hann verið að mæl­ast undir 20 pró­sentum. Staða flokks­ins er því ekki góð í könn­unum þessar vik­urnar og þetta sínu versta nið­ur­staðan.“

Telur hvalveiðibannið ekki hafa mikil áhrif

Spurður hvort hann telji að hval­veiði­bann Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra geti hafa haft ein­hver áhrif á fylgi, ýmist við Vinstri græn eða Sjálf­stæð­is­flokk­inn, segir Ólafur að það telji hann ekki.

„Það er mjög óal­gengt að eitt mál hafi mikil áhrif á fylgi flokks. Það að hvala­málið yrði til þess að hnika fylgi Vinstri grænna eða Sjálf­stæð­is­flokks, nú eða ann­arra flokka, eitt­hvað til er harla ólík­legt. Vinstri græn styrkja í raun kannski þann hóp sem þegar studdi flokk­inn og hið sama má segja um Sjálf­stæð­is­flokk­inn, lík­legt er að þeir sem eru mjög and­vígir bann­inu hafi stutt flokk­inn fyrir.“

„Þó það sé skipt um einn ráð­herra er afar ólík­legt að slík skipti hafi mikil áhrif á fylgi ein­stakra flokka“

Ólafur segir einnig, aðspurður um hvort hægt sé að lesa eitt­hvað út úr þessum fylgis­tölum í sam­hengi við ráð­herra­skipti Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem Jón Gunn­ars­son vék úr rík­is­stjórn en Guðrún Haf­steins­dóttir kom í hans stað, að svo telji hann ekki. „Þó það sé skipt um einn ráð­herra er afar ólík­legt að slík skipti hafi mikil áhrif á fylgi ein­stakra flokka.“

Kristrúnar-áhrifin mögulega ýkt

Stuðn­ingur við Sam­fylk­ing­una hefur þó auk­ist jafnt og þétt eftir að Kristrún Frosta­dóttir tók við for­manns­emb­ætti í flokknum. Spurður hvort hann telji að það séu Kristrúnar-áhrif svarar Ólafur: „Eitthvað hlýtur það að vera og það er áreið­an­lega tengt for­manns­skipt­unum. Ég hef hins vegar talið að menn ýki oft þau áhrif sem per­sónu­ein­kenni leið­toga hafi á fylgi flokka. Hins vegar, ef leið­togum tekst að koma stefnu flokka til skila á ein­faldan og skýran hátt, þá getur það skilað sér í veru­legum fylg­is­breyt­ingu. Ég held því að lyk­ill­inn í fylg­is­breyt­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar liggi ekki fyrst og fremst í per­sónu Kristrúnar heldur því að hún end­ur­nýj­aði for­gangs­röð flokks­ins, lagði áherslu á það sem hún kall­aði kjarna­gildi jafn­að­ar­stefn­unnar og er með ein­fald­ari og kannski skýr­ari skila­boð en flokk­ur­inn hafði áður. Það hefur ekki orðið nein grund­vall­ar­breyt­ing á stefnu flokks­ins.“

Framsókn í svipaðri stöðu og var á síðasta kjörtímabili

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með sama fylgi og klofn­ings­flokk­ur­inn Mið­flokkur, og getur tæp­lega unað vel við sitt. Ólafur segir að í síð­ustu nokkuð mörgum könn­unum hafi Framsókn mælst með um tíu pró­sent. Nú sé flokk­ur­inn að mæl­ast með fylgi á pari við það sem oft­ast mæld­ist á síð­asta kjör­tíma­bili. „Það sem gerð­ist í kosn­ing­unum síð­ast var að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætti mjög miklu við sig á til­tölu­lega skömmum tíma. Það er lík­lega það sem oft er kallað lausa­fylgi og nú virð­ist það að miklu leyti vera farið yfir til Sam­fylk­ing­ar­innar. Framsókn er á svip­uðum slóðum og flokk­ur­inn var mest allt kjör­tíma­bil, og auð­vitað eru menn fúlir yfir því. En það þarf að hafa í huga að það er frekar til­hneig­ing til þess að stjórn­ar­flokkar tapi fylgi í könn­unum frekar en stjórn­ar­and­stöðu­flokkar. Auðvitað er þetta ekki sér­stak­lega gott fyrir Framsókn, í síð­ustu kosn­ingum bak­aði Sigurður Ingi Sigmund Davíð ef svo má segja en nú eru þeir komnir í sömu stöðu og á síð­asta kjör­tíma­bili.“

„Auðvitað eru menn fúlir yfir því“
Ólafur Þ. Harð­ar­son
um fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ólafur seg­ist telja að tölu­vert af fylg­is­aukn­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar megi skýra með því að flokk­ur­inn sé að fá lausa­fylgi víða að frá hinum flokk­unum. „Ein skil­grein­ing á lausa­fylgi gæti verið sú að það væru kjós­endur sem skiptu um flokk milli kosn­inga og núna und­an­farin ára­tug hefur um helm­ingur kjós­enda verið í þeim hópi. Það er gríð­ar­lega hátt hlut­fall og býður upp á mögu­leika á gríð­ar­legu umróti og miklum fylg­is­breyt­ingum, eins og við höfum séð. Ég hef ekki séð mikið af könn­unum und­an­farið sem segja okkur nákvæm­lega hvernig fylgi hefur verið að streyma milli flokk­anna, en miðað við töl­urnar sem við höfum, þá virð­ist vera ljóst að Sam­fylk­ingin er að fá vænt­an­lega mest fylgi frá Framsókn, sem þeir hafa verið að tapa frá kosn­ingum, en líka frá Vinstri grænum.“

 

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    *******************************************************************
    Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra seldi föður sínum hlut í ríkisbanka með afslætti.

    Í nágrannalöndunum væri stjórnmálaferli hans þess vegna lokið.

    Þar vilja stjórnmálaflokkarnir ekki hafa slíka menn í forsvari.
    *******************************************************************
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár