Brúnin þyngist á Sjálfstæðismönnum sem uppnefndir eru „Karlakórinn Grátbræður“

Hver Sjálf­stæð­is­flokks­mað­ur­inn á fætur öðrum hefur síð­ustu daga og vikur stigið fram og fundið rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu og einkum sam­starfs­flokknum Vinstri grænum allt til for­áttu. Fyrir vikið gerir for­maður Mið­flokks­ins grín að þeim og vara­borg­ar­full­trúi Vinstri grænna segir þá „sturl­aða af frekju“.

Brúnin þyngist á Sjálfstæðismönnum sem uppnefndir eru „Karlakórinn Grátbræður“
Menn­irnir skipt­ast á skotum Mikil hrúta­lykt er af þeim skrifum sem birst hafa und­an­farna daga um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið. Mynd: Heimildin Tómas

Tölu­verður titr­ingur virð­ist orð­inn innan raða sjálf­stæð­is­fólks vegna núver­andi rík­is­stjórn­ar­samt­arfs. Síðustu daga hafa tveir framá­menn í flokknum, Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri í Ölfusi, og Brynjar Níelsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, birt greinar þar sem þeir hafa hellt úr skálum reiði sinnar vegna stjórn­ar­sam­starfs­ins og vegna fram­göngu ráð­herra og þing­manna flokks­ins. Formaður Mið­flokks­ins gerir fyrir vikið að þeim stólpa­grín og framá­maður í Vinstri grænum upp­nefnir þá, og fleiri Sjálf­stæð­is­menn, „Karla­kór­inn Grát­bræður“.

Grein Brynjars birt­ist í fyrra­dag undir fyr­ir­sögn­inni „Herkvaðn­ing til hægri manna og borg­ara­legra afla“. Í henni er Brynjar ekk­ert að skafa utan af því. 

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur nú verið í stjórn í sex ár með stækum vinstri flokki af gamla skól­anum og venju­legum Fram­sókn­ar­flokki sem veit sjaldan í hvorn fót­inn hann á að stíga og forð­ast að taka erf­iðar ákvarð­anir. Nú er svo komið að sjálf­stæð­is­menn eru víða mjög óhressir með stöð­una á stjórn­ar­heim­il­inu og eru hrein­lega ekki að átta sig fyrir hvað flokk­ur­inn stendur í þessu stjórn­ar­sam­starfi,“ skrifar Brynjar heldur óhress. Brynjar var sem kunn­ugt er aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra allt þar til Jóni var vikið úr rík­is­stjórn í júní síð­ast­liðnum, við litla hrifn­ingu þeirra beggja.

Hvalveiðibannið hleypir illu blóði í Sjálfstæðismenn

Brynjar fer hörðum orðum um sam­flokks­menn sína á þingi, sem hafi ekki stigið niður fæti þegar Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra stöðv­aði hval­veiðar Krist­jáns Lofts­sonar dag­inn áður en þær áttu að hefj­ast. Þá segir hann að ein­tómt aðgerð­ar­leysi hafi ríkt í orku­málum í tíð rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins, lög um útlend­inga séu ónýt en ekki þurfi „neinn spek­ing til að átta sig á að nauð­syn­legu reglu­verki í þessum mála­flokki verður ekki komið á í stjórn­ar­sam­starfi við Vg nema með látum.“

„Nú er svo komið að sjálf­stæð­is­menn eru víða mjög óhressir með stöð­una á stjórn­ar­heim­il­inu“
Brynjar Níelsson

Brynjar ákallar því hægri menn og borg­ara­lega sinn­aða menn, en greinin öll er meira og minna í karl­kyni, til að láta í sér heyra. „Ef flokk­ur­inn ætlar að halda þessu sam­starfi óbreyttu vegna þess að for­mönnum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna líður vel svo saman og ráð­herrum annt um stól­ana, er við­búið að brestir mynd­ist í sam­stöðu hægri manna og borg­ara­lega afla,“ skrifar Brynjar.

Hræðast flótta yfir í Miðflokkinn

Í Facebook-færslu sem Brynjar skrif­aði í gær sést að heldur hefur sljákkað í honum. Segir hann að til­gangur grein­ar­innar hafi verið að þjappa flokks­mönnum saman. „Það er engin lausn að stofna nýjan flokk hægri manna eða ganga í Mið­flokk­inn, eins konar einkafirma Sig­mundar Davíðs, eins ágætur og hann er. Það er eng­inn annar flokkur með stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í stórum lýð­ræð­is­legum flokki koma fram ólík sjón­ar­mið og við eigum að berj­ast fyrir okkar sjón­ar­miðum innan flokks­ins og afla þeim fylgis. Ekki rjúka á dyr í fússi“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins birtir í dag grein þar sem hann gerir stólpa­grín að þessum við­snún­ingi Brynjars. Eftir að hafa hrósað honum fyrir kjarn­yrt grein­ar­skrif segir Sig­mundur: „En svo fóru svip­urnar á loft í Valhöll og Brynjar, sem hafði haft rétt fyrir sér dag­inn áður og vissi það vel, skrif­aði nýja færslu. Að þessu sinni um að hann væri ekki í „einkafirma” og þyrfti því að láta undan fólki með allt aðrar skoð­anir. 

„Þá hefði hann getað blikkað aug­unum til að senda okkur frek­ari skila­boð. Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt.“
Sig­mundur Davíð Gunn­ars­son
um við­snún­ing Brynjars Níels­sonar

Það hefði verið betra og skemmti­legra ef Brynjar hefði birt þennan seinni pistil á mynd­bands­formi. Helst hald­andi á dag­blaði til að sýna dag­setn­ing­una. Þá hefði hann getað blikkað aug­unum til að senda okkur frek­ari skila­boð. Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt.“

„Ég styð ekki lengur þessa ríkisstjórn“

Í gær birt­ist þá grein Elliða undir fyr­ir­sögn­inni „Ég styð ekki lengur þessa rík­is­stjórn“. Þar byrjar Elliði á að reka þann varnagla, sem hann beinir til and­stæð­inga Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að þeir geti gleymt því að flokk­ur­inn sé að klofna. „Gleymið hug­mynd­inni um að við sem erum ósátt teljum kröftum okkar og hug­sjónum betur borgið innan Mið­flokks­ins. Gleymið hug­mynd­inni um að við kennum for­manni okkar um stöð­una. Verið samt alveg viss um að við erum mörg ósátt og viljum breyt­ingar, og það strax.“

Elliði segir að hann hafi stutt rík­is­stjórn­ar­sam­starfið þegar til þess var stofnað, til að ná ró og stöð­ug­leika. Hins vegar styðji hann ekki lengur rík­is­stjórn­ina. „Ástæðan er sú að þessi rík­is­stjórn, vinnu­lag hennar og áherslur, eru fjarri þeim gildum sem við mörg innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins viljum vinna að.“ Síðan vísar Elliði í sömu mál og Brynjar, hval­veiði­bann, orku­mál og útlend­inga­mál.

„Krafan er skýr. Ann­að­hvort verður að verða breyt­ing á áherslum þess­arar rík­is­stjórnar eða að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur frammi fyrir því að líf­dagar hennar eru taldir.“

Segir sjálfstæðismönnunum að hafa áhyggjur af sínum eigin flokki

Í sinni grein gerir Sig­mundur Davíð líka grín að skrifum Elliða, og einkum virð­ist honum skemmt yfir hræðslu hans, og raunar Brynjars, yfir því að ein­hverjir óánægðir Sjálf­stæð­is­menn gætu gerst lið­hlaupar og hörfað yfir í Mið­flokk­inn. „Ekki hafa áhyggjur af Mið­flokknum. Verið þið sjálfir. Hafið frekar áhyggjur af því að sam­kvæmt nýj­ustu könnun séuð þið fyrst og fremst að missa fylgi til Pírata! og Sam­fylk­ing­ar­innar,“ skrifar Sig­mundur Davíð í kersknis­legum tón.

Bjarni Bene­dikts­son sagði í við­talið í Þjóð­málum, vef­sjón­varpi Morg­un­blaðs­ins, í síð­ustu viku að hval­veiði­bann Svan­dísar hefði sett stjórn­ar­sam­starfið allt upp í loft. Flokk­ur­inn hafi ekki ætlað sér að fara í stjórn­ar­sam­starf um bann við hval­veiðum. Á sama vett­vangi 20. júní síð­ast­lið­inn, nema í það skiptið hét þátt­ur­inn Dagmál, lýsti Jón Gunn­ars­son því, degi eftir að hann var settur af sem ráð­herra, að núver­andi stjórn­ar­sam­starf gengi ekki áfram. „Mitt mat er það að í dag sé þetta farið að verða þjóð­inni dýr­keypt,“ sagði Jón meðal ann­ars í það skiptið.

Óli Björn Kárason, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, birti 5. júlí grein í Morg­un­blað­inu þar sem hann skrif­aði: „Mat­væla­ráð­herra hefur gert atlögu að sam­starfi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Og þar með veikt rík­is­stjórn­ina og grafið undan mögu­leikum hennar til að leysa erfið verk­efni á kom­andi mán­uðum.“ Það eru ekki einu grein­ar­skrif Óla Bjarnar þar sem hann hefur haft ýmis­legt á hornum sér varð­andi stjórn­ar­sam­starfið.

 Miðaldra sjálfstæðismenn sem gráta fallega

Stefán Pálsson, vara­borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, eig­in­maður Stein­unnar Þóru Árna­dóttur þing­manns, og áhrifa­maður innan flokks­ins til margra ára brást í morgun við skrifum þeirra Elliða og Brynjars, og vís­aði raunar einnig í við­tölin við Jón, Bjarna og skrif Óla Bjarnar. Á Facebook-síðu sinni birti hann færslu sem hefst á orð­unum „Karla­kór­inn Grát­bræður“.

„Margt bendir til að stórir hlutar Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu að verða óstjórn­tækir með öllu, enda sturl­aðir af frekju“
Stefán Pálsson

„Mikið er nú aumt að fylgj­ast með við­kvæmu blómunum, ridd­ara­liðs­sveit mið­aldra Sjálf­stæð­is­manna, sem grætur svo fal­lega á síðum helstu mál­gagna flokks­ins. Margt bendir til að stórir hlutar Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu að verða óstjórn­tækir með öllu, enda sturl­aðir af frekju og hlaupa upp með stjórn­ar­slita­hót­unum þegar þeir fá ekki allt sem þeir vilja. Sú spurn­ing vaknar hvort þessi armur flokks­ins sé algjör­lega ófær um að vera í stjórn­ar­sam­starfi með flokki sem hann getur ekki vaðið yfir?“ skrifar Stefán.

Athygli vekur orða­lag Stefáns þegar hann talar um að Sjálf­stæð­is­menn gráti fal­lega á „síðum helstu mál­gagna flokks­ins“. Greinar þeirra Elliða og Brynjars birt­ust báðar á vef­síð­unni Viljanum, undir stjórn Björns Inga Hrafns­sonar, en sá mið­ill hefur hægt og rólega verið að vakna úr dái síð­ustu vikur.

Ekki hefur orðið vart við við­brögð ann­ars flokks­fólks Vinstri grænna við greina­skrif­unum, svo séð verði. Þá er ekki að sjá að Fram­sókn­ar­menn kippi sér neitt sér­stak­lega upp við málið. Því má segja að ýfing­arnar séu, í það minnsta enn sem komið er, því sem næst ein­göngu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í bróð­erni þeir vega þar hvern annan.

Kjósa
56
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Farið hefur Fe betra þetta eru Spiltir menn og Flokkurin allur, Samherja malið og Islandsbanki Sala,
    Það er ekki hægt að Ljuga upp a þessa Glæpamen, Það er komin timi a hreinsanir. BURT MEÐ RIKISTJORN.
    1
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Svo sem ekkert nýtt í málflutningi Sjálfstæðismanna, bara eins og alltaf. Þeir eru að lýsa sjálfum sér, hverjir þeir eru og fyrir hvað þeir standa. Lýsingin er eins og þróunarheimspekin lýsir gildismati og viðhorfum smábarnasálna. Smábarnasálin finnst m.a. að hún sé mjög þroskuð / gáfuð og umfram allt hefur smábarnasálin „alltaf rétt fyrir sér“. Smábarnasálir og ungar sálir eru stórir hópar í öllum samfélögum og því er það e.t.v. „verkefnið“ að veita aðhald, svo skaðinn af athöfnum þeirra verði ekki meiri en ásættanlegt er. Svona aðhald eins og foreldrar viðhafa gegn ungum börnum sínum þegar eitthvað veður, sem ekki er æskilegt. Stundum bregðast börnin við með frekjukasti, ef þau fá ekki það sem þau vilja.
    0
  • Björn Ólafsson skrifaði
    XB kippir sér venjulega ekki upp við eitt né neitt, enda eins og rekald úti á ballarhafi í íslenskum stjórnmálum.
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Finnist Sjálfstæðismönnum stjórnarsamstarfið óþolandi, eiga þeir að segja því lokið. Að öðrum kosti gera þeir sig ómarktæka, og fylgið heldur áfram að reitast af þeim.
    2
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Vonandi er þjóðin vakna og losar sig við landráðamenn og gróða fíkla.
    2
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Nú leggjast allir sem einn á það að gera svika tuðrurna í vg að blórabögglum.
    Í aumri tilrau til að reyna að klóra yfir eigin skít og getuleysi stærstu skipulögðu glæpasamtaka Íslands, sjálfstæðisflokksins og á sama tíma sitja út í horni meðlimir elstu skipulögðu glæpasamtaka Íslands, framsóknarflokksins þögulir sem gröfin og vona að vg verði geislavirkari en þeir sjálfir eftir bólfarirnar með mestu arðræningum og þjófum íslandssöguna.
    3
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvaða persónur sjálfstæðisflokksins eru að tjá sig ?
    Hafa þessar persónur einhvern ,,stadus" hjá sjálfstæðisflokknum ?
    Elliði Vignisson ? Flúði frá Vestmannaeyjum ?
    Brynjar Níelsson ? Jón Gunnarsson gat ekki einu sinni notað hann ?

    Sjálfstæðisflokkurinn sýnir okkar hvert hann er að fara með Óla Björn Kárason sem þingflokksformann ?
    Enginn heilvita íslendingur vill vera með Óla Birni og ,,flöskunni úr Garðabæ" ? Er það ?
    7
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    *******************************************************************
    Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra seldi föður sínum hlut í ríkisbanka með afslætti.

    Í nágrannalöndunum væri stjórnmálaferli hans þess vegna lokið.

    Þar vilja stjórnmálaflokkarnir ekki hafa slíka menn í forsvari.
    *******************************************************************
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár