Kostn­aður Flestir lands­menn taka sum­ar­frí í júlí­mán­uði og margir leggja þá land undir fót, eða bíl. Fyrir þá sem það gera eykst elds­neytis­kostn­aður veru­lega í þeim mán­uði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bensínlítrinn ekki verið ódýrari síðan í apríl 2022 en gæti farið að hækka á ný

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra var um 304 krón­ur um miðjan mán­uð­inn og hafði þá lækkað um 38,2 krónur á einu ári. Fyrir ári síðan tóku olíu­fé­lögin um tíu pró­sent af hverjum seldum lítra. Nú taka þau tæp­lega 20 pró­sent.


Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra á Íslandi lækk­aði um 4,2 krónur milli júní og júlí­mán­aðar og hefur ekki verið lægra síðan í apríl í fyrra. Þá var verðið síð­ast undir 300 krónum á lítra en hefur hald­ist yfir því marki síðan þá og var 303,7 krónur um miðjan þennan mánuð. 

Frá því að við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra náði sinni hæstu krónu­tölu í Íslands­sög­unni, fyrir nákvæm­lega ári síðan, hefur verði lækkað um 38,2 krónur, eða rúm­lega ell­efu pró­sent. 

Þetta má lesa út úr nýrri bens­ín­vakt Heim­ild­ar­innar.

Hinn hái verð­miði sum­arið 2022 átti rætur sínar að rekja til óvissu á mörk­uðum eftir að stríð skall á í Úkraínu í febr­úar í fyrra.  

Við­mið­un­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­tölu hverju sinni til að forð­ast áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

Á sama tíma hefur heims­mark­aðs­verð á tunnu af hrá­olíu lækkað um fjórð­ung en inni í þeirri lækkun er skörp hækkun síð­ustu vikur. Verðið hefur hækkað um tæp­lega tíu pró­sent síðan í lok júní. Vaninn er að það taki nokkurn tíma fyrir verð­breyt­ingar á heims­mark­aði að koma fram í verð­inu á bens­ín­lítr­anum við dæl­una hér­lendis, þar sem birgðir þurfi að klár­ast áður en nýjar eru keyptar inn sem taka mið af gild­andi verði. Því bendir margt til þess að bens­ín­lítr­inn muni hækka á ný í nán­ustu fram­tíð eftir að hafa lækkað stöðugt síð­ast­liðið ár. 

Hlutur olíufélaga tvöfaldast á einu ári

Íslensku olíu­fé­lögin kaupa alla sína olíu af sama aðilum, Equinor í Noregi. Álagning olíu­fé­laga á Íslandi nú 19,3 pró­sent af hverjum seldum lítra. Samkvæmt bens­ín­vakt­inni taka þau til sín 58,7 krónur af hverjum seldum lítra. Fyrir ári síðan, í júlí 2022, tóku þau til sínu 48,02 krónur af lítra, eða tíu pró­sent af hverjum seldum lítra. Inni í þess­ari álagn­ingu er áætl­aður kostn­aður á borð við flutn­inga og trygg­ingar.

Að hluta til mátti skýra þá lágu álagn­ingu sem var í fyrra­sumar með því að olíu­­­­­­­fé­lögin voru ekki, tíma­bundið, að velta hækk­­­­­­unum á heims­­­­­­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið. Það hafa þau hins vegar verið að gera síð­ast­liðið ár og þar með aukið hagnað sinn af elds­neyt­is­söl­unni. 

Inn­kaup­verð íslenskra olíu­fé­laga á elds­neyti, sem ákvarð­ast einkum af heims­mark­aðs­verði og gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal, hefur nefni­lega lækkað um 35 pró­sent á einu ári. Það var, sam­kvæmt útreikn­ingum bens­ín­vakt­ar­innar, 138,1 krónur í júlí í fyrra en tæp­lega 90 krónur í sama mán­uði í ár. Ef horft er 13 mán­uði aftur í tím­ann, til júní­mán­aðar í fyrra þegar áætlað inn­kaupa­verð náði hámarki í 148,5 krónum á lítra, hefur það lækkað um 40 pró­sent. 

Ef horft er lengra aftur í tím­ann, til júlí 2020, þá kostar bens­ín­lítr­inn nú 52 pró­sent fleiri krónur en hann gerði þá. Að teknu til­liti til verð­bólgu er hann tæp­lega 59 krónum dýr­ari, eða 24 pró­sent, en hann var fyrir þremur árum síðan.

Ríkið tekur rúmlega helming

Hlutur rík­­­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Alls er virð­is­auka­hlut­fallið sem leggst á bens­ín­lítr­ann 19,35 pró­sent, almenna bens­ín­gjaldið hækk­aði úr 30,2 krónum í 32,5 krónur um síð­ustu ára­mót og sér­staka bens­ín­gjaldið fór úr 48,7 krónum í 52,45 krónur. Þá hækk­aði kolefn­is­gjaldið úr 10,5 krónum í 11,3 krónur. 

Alls tekur íslenska ríkið nú um 155,08 krónur af hverjum seldum lítra af bens­íni, eða um 51 pró­sent. 

Von er á fleiri hækk­unum á þá sem keyra um á bílum á næstu árum. Ráðamenn hafa lengi boðað veggjöld víða til að standa undir nauð­syn­legum sam­göngu­fram­kvæmdum og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stytt­ist í að svokölluð flýti- og umferð­ar­gjöld legg­ist á. Þau eiga að að fjár­magna helm­ing kostn­aðar vegna sam­göngusátt­mála fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið, þar sem stærsti ein­staki kostn­að­ar­lið­ur­inn er hin svo­kall­aða Borg­ar­lína. 

Til stóð að leggja fram frum­varp um þau í nóv­em­ber í fyrra og áætl­anir gerðu ráð fyrir að þau yrðu lögð á í ár. Því var þó frestað og nú stendur til að frum­varpið líti dags­ins ljós á þessu ári, og gjöldin raunar boðuð í fimm ára fjár­mála­á­ætlun sem kynnt var í mars. Gangi það eftir eiga gjöldin að leggj­ast á frá byrjun næsta árs. Nú er reiknað með, að teknu til­liti til verð­lags­breyt­inga, að gjöldin skili 74,6 millj­örðum króna inn í verk­efnið á tíu árum.

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­legir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.

  • Líklegt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veitum. Mismunur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.

  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­aðar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Ótrúlegt hve stór hlutur fer til „samfélagsins“ – hvað verður um þessa ótrúlegu fjármuni?
    Og enn vekur það furðu með Metan væðingu farartækja – sem dó í fæðingu og getur ekki einu sinni annað lágmarks almennings samgöngum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár