Í miðjum leik Togað var í hár ungs stráks og hann hæðn­is­lega boð­inn vel­kom­inn til Íslands vegna húð­litar

Móðir drengsins sem varð fyrir fordómum á N1 mótinu: „Þetta var mjög sárt“

Móðir drengs sem þurfti að þola niðr­andi athuga­semdir vegna húð­litar síns á N1 mót­inu í fót­bolta segir að skortur sé á aðgerðum frá stofn­unum til að draga úr kerf­is­bundnu mis­rétti í garð hör­unds­dökkra. Togað var í hár drengs­ins og hann boð­inn vel­kom­inn til Íslands þrátt fyrir að vera fæddur og upp­al­inn hér.

Achola Otieno er móðir 10 ára drengs sem keppti í á N1 fót­bolta­mót­inu fyrstu helg­ina í júlí. Hún seg­ist hafa orðið fyrir von­brigðum með athuga­semdir ungra drengja í garð sonar síns sem er dökkur á hör­und. Ingvar Örn Sig­hvats­son, faðir drengs­ins, greindi frá atvik­unum í Morg­un­út­varpi Rásar 2 þriðju­dag­inn 18. júlí.

Grét eftir leikinn

Sonur Acholu og Ingvars byrj­aði að æfa fót­bolta sex ára og hefur hann brenn­andi áhuga á íþrótt­inni. Þátttaka á mót­inu var stórt skref fyrir unga fót­bolta­kapp­ann og vini hans sem stóðu sig með prýði og unnu átta af níu leikjum. 

„Mótið var vel skipu­lagt og ég sá að strák­arnir vildu gera sitt besta,“ segir Achola sem fann fyrir keppn­is­skapi ungu strák­ana. „Það eru miklar til­finn­ingar á svæð­inu. Sumir eru að fagna, á meðan aðrir gráta.“  

Achola OtienoLeggur áherslu á að til þurfi að vera aðgerða­á­ætl­anir þegar upp koma atvik vegna kyn­þátt­a­níðs.

Hún segir að strax á fyrsta degi móts­ins hafi nokkrir ungir leik­menn, sem sátu utan vallar, hæðst að syni sínum á meðan á leik stóð þegar þeir buðu hann vel­kom­inn til Íslands og að tónn­inn hafi verið háðskur „og sögðu þessi er nýr, aftur og aftur.“ Sjálf er Achola upp­runa­lega frá Kenía en Ingvar er fæddur og upp­al­inn á Íslandi. For­eldr­arnir létu þjálf­ara og móts­stjórn vita af atvik­inu en dag­inn eftir hafi áreitið haldið áfram.

Lið drengs­ins vann leik en á meðan vinir hans fögn­uðu hljóp hann grát­andi í fang móður sinnar. „Hann var búinn að spila vel en eftir leik­inn kom hann beint í fangið mitt og grét mikið. Ég spurði hvað hafði gerst. Hann sagði að þetta hefði gerst aftur og spurði mig hvort ég hefði ekki látið vita af athuga­semdum dag­inn áður.“ Það hafði Achola vissu­lega gert en þennan dag voru strákar farnir að hæð­ast að syni hennar inni á vell­inum. „Það var strákur sem spurði hvort hann mætti snerta hár sonar míns, en hann er með fléttur í hár­inu. Strák­ur­inn sagði við hann: Ég held að þú viljir ekki að ég snerti hárið þitt af því að það er skítugt. Og tog­aði svo í hár hans. Eftir þetta fór sonur minn upp í rúm til að leggja sig en grét allan tím­ann.“

Ingvar, maður Acholu, sendi í kjöl­farið tölvu­póst á móts­stjórn og fengu hjónin þau við­brögð að málið yrði tekið til skoð­unar. „Við erum ennþá að bíða eftir að heyra frá þeim. Þau tóku okkur vel og báðu afsök­unar á þessu en það er ekk­ert meira gert.“ Fréttir bár­ust af því að annar hör­unds­dökkur þátt­tak­andi móts­ins hefði orðið fyrir aðkasti vegna húð­litar síns, og herma sögur að sá leik­maður sem lét ljótu ummælin falla hafi verið sendur heim. Heim­ildin hefur ekki fengið það stað­fest. Achola segir afar mik­il­vægt að til séu reglur um hvernig eigi að bregð­ast við þegar slík atvik koma upp.  

Ekki náð­ist í móts­stjórn N1 fót­bolta­móts­ins við gerð frétt­ar­innar. 

Ekki í fyrsta skipti

Þegar sonur þeirra hjóna var að byrja í grunn­skóla fór Achola í hverf­is­skól­ana og for­vitn­að­ist um hvort aðgerða­á­ætlun væri til staðar ef upp kæmu atvik tengd kyn­þátt­a­níði. Á öllum stöðum fékk hún það svar að kyn­þátt­a­níð væri ekki vanda­mál innan skól­ans. Í fyrra kom hins vegar upp leið­in­legt atvik þar sem ill­kvittnum ummælum var beint að syni hennar í skól­anum. „Þá skrif­aði mað­ur­inn minn til skóla­stjóra og kenn­ara. Hann sagði að strák­ur­inn okkar yrði heima þangað til að hald­inn yrði fundur um málið.“

Sjálf hefur Achola orðið fyrir áreiti af ýmsu tagi vegna húð­litar síns. Til dæmis því að fólk snerti hár hennar, spyrji óvið­eig­andi spurn­inga í sundi eða tali við hana ensku þrátt fyrir að hún svari á íslensku. Hún segir það hafa verið „miklu meira sær­andi“ að verða vitni af því sem sonur hennar hefur þurft að ganga í gegnum. 

Achola seg­ist hafa lagt mikið upp úr því í upp­eld­inu að kaupa bækur og leik­föng sem stuðla að jákvæðum við­horfum í garð fjöl­breyti­leika. Hún passi að ekki sé að finna rasísk ummæli eða annað sem sé sær­andi fyrir hör­unds­dökkt fólk í afþrey­ing­ar­efni barna sinna. Achola segir hins vegar að það eigi ekki að vera hlut­verk ein­stak­linga að takast á við kerf­is­bund­inn ras­isma, það sé hlut­verk heldur stofn­ana. „Þetta er svo þreyt­andi. Í raun­inni launa­laus vinna þar sem ég er að senda kvart­anir og benda á hvað er að.“ Einnig bendir hún á að það sé ekki gagn­legt að tala um að fólk sé ann­að­hvort gott eða vont þegar kemur að ras­isma, því að það dragi athygl­ina frá því að vand­inn sé kerf­is­lægur og að því sam­fé­lags­legt verk­efni að takast á við hann. Hún segir skort á aðgerðum frá stjórn­völdum og stofn­unum í þessum mála­flokki aug­ljósan. „Það vantar meiri stuðn­ing frá fólki sem hefur völd.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórdís Þórðardóttir skrifaði
    Takk fyrir þessa grein,. á sjálf 10 ára barnabarn sem fær endalaus rasísk skilaboð. Hvernig sem á er litið er þessar endalausu árásir vegna húð og hárlitar óásættanlegar og ég hef rekið mig á það margsinnis að fólk skilur ekki einu sinni ábendingar um að það sé að gefa rasísk og meiðandi skilaboð.
    1
  • Ásta Jensen skrifaði
    Afhverju eru hörundsdökkir svona viðkvæmir fyrir lit sínum. Er það ekki bara forvitni að vilja koma við afróhár? Það myndi gerast ef ég eða barnabörn mín myndu fara til Kenía. Þá yrðu þau snert upp og niður. Það sem maður er ekki vanur vekur forvitni. Ég var einu sinni kölluð bauni af því ég er með danskt ættarnafn. Ég fór ekki að gráta. Það ætti að kenna fólki sem flytur til Íslands að útlit þeirra og ættarsaga geti vakið athygli.
    -5
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      Þessi drengur flutti ekki til Íslands, hann fæddist hér.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár