Hildur Gríms Sjúkra­þjálf­ar­inn hvetur hlaupa rilt að hugsa vel um sig og byrja rólega.

Hvernig get ég orðið betri hlaupari?

Hlaupa­sum­arið nær hámarki í ágúst þegar að stærsta hlaup árs­ins, Reykja­vík­ur­mara­þon, fer fram. Und­ir­bún­ingur er haf­inn hjá mörgum og hvetja þjálf­arar hlaupara til þess að fara rólega af stað og hafa gaman.

Nú stytt­ist í Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka og Strava appið er að fyll­ast af 10-20 kíló­metra skemmtiskokkum vina og ætt­ingja sem virð­ast ekki eiga í neinum vand­ræðum með að koma sér af stað. Hlaup njóta tölu­verðra vin­sælda á Íslandi enda er til mikið af skemmti­legum hlaupa­leiðum um landið allt. Fyrir þá sem vilja hlaupa sín fyrstu skref í íþrótta­grein­inni eða ná meiri árangri er hægt að sækja hlaupa­þjálfun hjá fag­að­ilum. 

Heim­ildin náði tali af þremur þjálf­urum sem öll hlaupa sér til lífs­bóta. Þau hvetja fólk til að byrja rólega, byggja sig upp og finna gleð­ina í hlaup­unum. 

Hlaup og labb

„Mig langar svo að fólk sé ekki að mikla þetta fyrir sér heldur hugsa um heils­una og að gera sitt besta,“ segir Silja Úlf­ars­dóttir, þjálf­ari og fyrrum frjáls­í­þrótta­kona. Hún býður upp á hlaupa­þjálfun fyrir byrj­endur og lengra komna. 

Silja ÚlfarsHvetur fólk til að hlaupa á eigin for­sendum.

Silja segir það algengt að fólk mikli fyrir sér að byrja að hlaupa og leggur áherslu á að hver og einn hlaupi á sínum eigin for­sendum. „Til þess að bæta þig þarftu að bæta við kíló­metrum og tíma á fótum. Ef þú vilt taka sér­stökum fram­förum eru alltaf þættir sem er hægt að skoða eins og styrkt­ar­þjálfun, lið­leika­þjálfun, nær­ing, svefn og að passa meiðslafor­varnir. En hver og einn finnur hvað hentar sér og sínum fjöl­skyldu­hagi.“ 

„Svo er ótrú­lega snið­ugt að taka hlaup og labb. Fyrstu tvær til þrjár vik­urnar geta reynst þeim sem eru að byrja afar erf­iðar. Þá get­urðu til dæmis sett þér mark­mið um að skokka eina mín­útu og labba tvær á móti eða skokka tvo ljósastaura og labba tvo.“ Eftir fyrstu tvær vik­urnar segir Silja að þolið fari hraðar upp. 

„En svo þarf fólk líka að sýna sér mildi og skilja að stundum á maður bara ekki góða daga og það er í lagi.“
Silja Úlf­ars­dóttir

„Ég myndi hvetja fólk til að finna hvað hentar því best og í hvað það hefur tíma. Það er gott að gera plan, setja sér mark­mið og reyna að standa við það.“ Þjálf­ar­inn leggur áherslu á að heilsan eigi alltaf að vera í for­gangi, sama hvað. „Það var góður maður sem sagði einu sinni við mig í áfalla­hjálp að ef þú ert í lagi, þá eru börnin í lagi. Oft setur fjöl­skyldu­fólk börnin alltaf í fyrsta sæti. En málið er að við for­eldr­arnir verðum að vera upp á okkar besta til þess að geta hlustað á börnin.“ 

Það getur reynst fólki krefj­andi að klára hlaup þegar það er orðið þreytt. Silja segir það gott að klára verk­efnin sem maður byrjar á jafn­vel þó það þurfi að labba ein­hvern hluta vega­lengd­ar­innar. „Sjálfri finnst mér gott ef ég er að missa móð­inn að setja á hvetj­andi hlað­varp eða eitt­hvað sem drífur mig áfram. En svo þarf fólk líka að sýna sér mildi og skilja að stundum á maður bara ekki góða daga og það er í lagi.“

Styrktarþjálfun og gleði

Sigurjón Ernir Sturlu­son, yfir­þjálf­ari og eig­andi Ultraform, seg­ist tals­maður styrkta­ræf­inga sam­hliða hlaupum. „Styrkt­ar­þjálfun er lyk­ill að lífs­gæðum. Því betra standi sem vöðvarnir þínir eru í, því betur muntu kom­ast í gegnum lífið. Þannig að ef það er eitt­hvað sem ein­stak­lingar eiga að fók­usa á, þá er það styrkt­ar­þjálfun.“ 

Hjá Ultraform hafa iðk­endur aðgengi að skokk­hlaupum í þremur ólíkum styrk­leika­flokkum.

Sigurjón ErnirSegir styrk lyk­il­at­riði fyrir árang í hlaupum.

„Ég fók­usa svo­lítið á lang­lífi og lífs­gæða hug­mynda­fræð­ina. Að lík­am­inn sam­svari sér svo­lítið vel,“ svarar Sigurjón Ernir. Hann bætir við að lík­ams­þyngda­ræf­ingar geti verið nóg fyrir hlaupara, ekki þurfi endi­lega að vera með þungar rétt­stöðu­æf­ingar eða bak­pressur. Hlauparar sem ekki eru vanir styrkta­ræf­ingum þurfa að gefa sér tíma til að aðlag­ast þeim og passa sig á meiðsla­hættu ef stutt er í mót. „Fyrir með­al­mann­inn myndi ég segja að tvær til fjórar styrkta­ræf­ingar í viku væri mjög gott.“ 

Sigurjón Ernir telur fleiri hafa stundað úti­vist vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins og fjár­fest í hlaupa­bún­aði. „Svo held ég bara að orðið ber­ist. Þessi prófar hlaupin, talar við næsta vin og svo er vina­hóp­ur­inn allur kom­inn af stað. Maður sér það mikið þegar maður er að fara í þessar keppnir. Það eru stórir vina­hópar að fara saman.“

„Svo erum við bara þannig að við viljum alltaf meira, hvort sem það er tengt pen­ingum í vinnu eða flott­ari bíl eða stærra húsi eða hvað það er. Það er alveg eins með hlaupin: um leið og maður er kom­inn með bakt­er­í­una þá vill fólk teygja sig lengra og lengra. Sem er bæði gott og slæmt,“ og hlær létti­lega. 

Sigurjón ErnirÁ fleygi­ferð.

Þjálf­ar­inn segir byrj­endur ekki þurfa að vera með flókið prógram. „Þú getur byrjað að labba, skokka og hlaupa á milli ljósastaura. Það er mjög mik­il­vægt að byggja upp grunn rólega til þess að fá rétta upp­lifun af hlaup­unum.“ Eftir því sem hlaup­ari verður van­ari, því meira er hægt að reyna á kerfið. „Þú getur byrjað einu sinni eða tvisvar í viku og svo bætt við þriðju eða fjórðu æfing­unni. Við Íslend­ingar förum alltaf heils­hugar inn í allt sem við gerum. Við ætlum bara að fara beint í mara­þonið og að hlaupa fimm sinnum í viku. Það getur oft komið í bakið á fólki. Gott er að byrja rólega og reyna að finna gleð­ina í þessu.“ 

Sigurjón Ernir segir fullt af fal­legum nátt­úruperlum í nágrenni Reykja­víkur eins og Esjuna, Helga­fell og Heiðmörk, og því til­valið að njóta feg­urð­ar­innar á meðan á hlaupi stendur og reyna að hafa gaman. 

Góður hlaupafélagi

Hildur Gríms­dóttir er einka- og sjúkra­þjálf­ari búsett á Selfossi. „Í byrj­enda prógram­inu mínu lærir fólk að hlaupa sam­fellt lengur í einu og ég myndi segja að allir í þjálfun hjá mér, óháð getu, læri mik­il­vægi rólegu hlaupanna.“

Hún leggur áherslu á að hlaup séu þol­in­mæð­is­vinna, enda taki tíma að byggja upp góðan grunn. „Maður þarf þraut­seigju, aga og trú á sjálfum sér. Það er að mörgu að huga við hlaup þótt fyrsta skrefið sé auð­vitað bara að reima á sig góða hlaupa­skó. Gott prógram og þjálf­ari gefur þér svo þetta extra sem maður þarf gjarnan til að kom­ast lengra, leið­bein­ingar um hvernig og hvatn­ing­una á leið­inni.“ 

Hildur Gríms­dóttirSjúkra­þjálf­ar­inn segir það mik­il­vægt að eiga góðan hlaupa­fé­laga.

Sjúkra­þjálf­ar­inn segir góðan hlaupara hafa þol­in­mæði, þraut­seigju, aga og trú á sjálfum sér. „Mik­il­vægt er að huga að svefni, nær­ingu og and­legri líðan. Hann hefur skýr mark­mið, hvort sem hlaupin eru hobbý eða keppn­istengd. Þú mátt hafa það sem mark­mið að hlaupa fyrir sjálfa þig og þína heilsu án þess að stefna á ákveðna vega­lengd, tíma eða keppn­is­hlaup. Þú ert samt hlaup­ari fyrir því, og getur bara verið ansi góður hlaup­ari ef þú ýtir þér áfram og heldur ákveðnum söð­ug­leika og aga í þínum æfingum.“

Aðspurð segir hún svefn og nær­ingu skipta lyk­il­máli fyrir hlaupara. Auk þess sé gott að hafa prógram „bæði til að vinna í átt að mark­miðum þínum og líka til að stýra álag­inu sem er partur af því að kom­ast hjá meiðslum eins og hægt er.“ Í sinni þjálfun notar Hildur teygjur þó þátt­tak­endur hafi alltaf val um hvort það henti þeim eða ekki. Hún segir góðan hlaupa­fé­laga líka gera gæfumun „Ég veit að það getur alveg verið gott að hlaupa stundum ein. Byrj­endur sækja gjarnan í að hlaupa í felum til að byrja með en góður hlaupa­fé­lagi eða hópur getur gert algjört krafta­verk.“

Óléttir hlaupagarpar

Hildur hefur mik­inn áhuga á kven­heilsu og býr yfir þekk­ingu á með­göngu- og fæð­ing­ar­sjúkra­þjálfun. Það er í lagi fyrir óléttar konur að hlaupa á með­göngu „ef þær finna ekki óþæg­indi á meðan og eftir hlaupin, sér­stak­lega á fyrri hluta með­göngu. Þetta fer líka auð­vitað eftir hlaupa­reynslu og bak­grunni þar. Ég mæli hins vegar ekki endi­lega með því að hlaupa á síð­ari hluta með­göngu. Þótt þú getir það, er ekki endi­lega þar með sagt að þú ættir að gera það.“ 

„Þyngd­ar­punkt­ur­inn er breyttur, álagið á mjaðma­grind og brind­ar­botn er orðið marg­falt meira en þegar kona er ekki með barni og fleiri þættir spila inn í líka. Konur hafa samt auð­vitað val og ég styð þær í því sem þær vilja gera, svo lengi sem það er innan skyn­sam­legra marka, og ég leið­beini þeim með það. Það er eðli­legt og óum­flýgj­an­legt að það hægist á manni við hlaup á með­göngu og svo er mik­il­vægt að passa vel upp á ákefð og þjálf­un­ar­á­lag. Þess vegna er mik­il­vægt að hafa góðan þjálf­ara sem þekkir vel til á hlhið­ar­lín­unni.“

Hvatning á samfélagsmiðlum

Á sam­fé­lags­miðlum má nálg­ast ýmis gagn­legt og upp­lýsandi efni um hlaup. Þar er bæði venju­legt fólk að deila sínum eigin reynslu og svo þjálf­arar eða íþrótta­fólk sem veitir frek­ari leið­bein­ingar. Hér fyrir neðan má til að mynda sjá mynd­band frá hinni bresku Natacha Océane sem fær millj­ónir áhorfs á hlaupa og heilsu mynd­bönd sín. 

Einnig hafa verið gefnar út vin­sælar bækur um hlaup eins og What I Talk About When I Talk About Running eftir Haruki Murakami og 26 Mar­at­hons: What I Learned About Faith, Identity, Running and Life from My Marathon Career eftir ólympíska hlauparann Meb Keflezighi. 

Áður en haldið er út að hlaupa næst er gott að hafa ráð Silju í huga um að hlaupa á eigin for­sendum, Sig­ur­jóns Ernis um að finna gleð­ina og Hildar Gríms um að huga að svefni, nær­ingu og hvíld.

Gangi þér vel!

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár