Mynd: Ásgeir H Ingólfsson

Skjaldborgartíminn: Mitt á milli Moskvu og Patreksfjarðar

Á Skjald­borg ferð­ast maður til Pat­reks­fjarðar og þaðan til Moskvu og Mjanmar, á sjó­inn, til Tálkna­fjarðar og í greni Haga­ljóns­ins sjálfs. En kannski mest inn­á­við. Á þess­ari hátíð íslenskra heim­ilda­mynda eru menn í sjálf­skoðun þessa dag­ana, en finna sig auð­vitað á Skjald­borg, undir vök­ulu eft­ir­liti hafs­ins og krumma. Og svo voru verð­launin – Heima­leik­ur­inn fékk Einarinn, áhorf­enda­verð­laun hátíð­ar­innar, Skuld, sem fékk hvatn­ing­ar­verð­laun dóm­nefndar, og Soviet Barbara, sem fékk Ljós­kast­ar­ann, aðal­verð­laun dóm­nefndar.

Þetta byrjar ekki vel. Við sitjum í ferj­unni Baldri, sem er venju­lega eins og hálf­gerður for­máli hátíð­ar­innar, þegar maður byrjar að hitta alla gömlu Skjald­borg­ar­ana – og fólk er að tala um að fara í eitt­hvað praktískt nám, að það sé búið að gef­ast upp á heim­ilda­mynda­gerð eftir enn eitt gjald­þrotið og sé jafn­vel að íhuga að fá sér alvöru 9 til 5 vinnu og hætta þessu harki.

Er kuln­unin að ná okkur öllum, er harkið að buga okkur? Íþrótta­menn hætta á besta aldri af því lík­am­inn hefur fengið á sig of mörg högg. Heim­ilda­mynd­ar­gerð­ar­menn hætta þegar heima­bank­inn er búinn að fá á sig of mörg högg.

En það er enn von. Mögulega verða hálf­gerð kyn­slóða­skipti á þess­ari hátíð, og þótt gamla liðið hafi virkað dálítið bugað í bátnum þá kemur gamla blikið hægt og rólega …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár