Dreymir um að segja ósagðar sögur flóttafólks

Sayed Khanog­hli hefur verið á flótta meiri­hluta ævi sinnar. Hann yfir­gaf Afganistan 14 ára og hélt út í óviss­una. Hann kom til Íslands fyrir fjórum árum og útskrif­að­ist í vor af kvik­mynda­gerð­ar­braut Borg­ar­holts­skóla, nokkuð sem hann taldi ómögu­legt fyrir nokkrum árum. Draum­ur­inn er að verða leik­stjóri og segja sög­una sem aldrei er sögð „af fólki sem eru flótta­menn, fólki sem er eins og ég, að byrja nýtt líf“.

Dreymir um að segja ósagðar sögur flóttafólks
Stúdent Sayed Khanog­hli er 23 ára nýstúd­ent sem koms sem flótta­mað­ur frá Af­gan­ist­an fyrir fjórum árum. Að ljúka skóla­göngu var fjar­lægur draumur en nú dreymir hann um að nýta það sem hann lærði á kvik­mynda­braut í Borg­ar­holts­skóla til að segja sögur flótta­fólks. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er flótta­maður. Ég hugs­aði að ég gæti aldrei farið aftur í skóla af því að ég er flótta­maður. En, vá, þetta er mjög geggjuð til­finn­ing,“ segir Sayed sem sett­ist niður með blaða­manni Heim­ild­ar­innar nokkrum dögum eftir útskrift. Þegar Sayed hóf nám í FÁ fyrir fjórum árum, þá 19 ára gam­all, hafði hann litla trú á að hann myndi nokkurn tím­ann útskrif­ast. „Þetta er mjög erfitt! Ég tal­aði enga íslensku og allir kenn­ar­arnir töl­uðu íslensku, allir áfang­arnir voru á íslensku. Það var smá erfitt, en það tókst, það er geggjað,“ segir Sayed. Á íslensku.   

Hann kom til Íslands í des­em­ber 2018 og hóf nám í Fjöl­brauta­skól­anum í Ármúla haustið 2019 og flutti sig síðar í Borg­ar­holts­skóla þaðan sem hann lauk stúd­ents­prófi af kvik­mynda­braut í maí. „Hér er ég í dag, það hefur verið mik­ill heiður að vinna að þessum áfanga og ég hefði ekki getað gert það án stuðn­ings …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár