Lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn kaupréttum stjórnar Alvotech

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech hefur veitt fjórum óháðum stjórn­ar­mönnum kaup­rétti í félag­inu. Stjórn félags­ins fékk heim­ild til að veita öllum stjórn­ar­mönnum slíka kaup­rétti en þeir stjórn­ar­menn sem eru tengdir Alvotech, meðal ann­ars Róbert Wessmann og Árni Harð­ar­son hafa afsalað sér þessum kaup­réttum. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi greiddi atkvæði gegn kaup­rétt­ar­kerf­inu.

Lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn kaupréttum stjórnar Alvotech
Afsalaði sér kaup­rétti Róbert Wessmann, for­stjóri Alvotech, stofn­andi og stærsti hlut­hafi, hefur afsalað sér kaup­rétti í fyr­ir­tæk­inu sem stjórn­ar­maður. Mynd: Alvogen

Fjórir stjórn­ar­menn Alvotech, sem tengdir eru hlut­höfum lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins, hafa afsalað sér kaup­réttum í fyr­ir­tæk­inu sem stjórnin hefur heim­ild til að veita. Um er að ræða fjóra af átta stjórn­ar­mönnum Alvotech, þá  Róbert Wessman, Árna Harð­ar­son, Tomas Ekman og Faysal Kalmoua.

Fjórir af stjórn­ar­mönn­unum munu hins vegar þiggja kaup­rétt­ina. Þetta eru þau Ann Merchant, Lisa Graver,  Linda McGoldrick og Richard Davies. Um er að ræða fyrsta skiptið sem Alvotech veitir kaup­rétti í félag­inu.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru meðal fjár­festa í Alvotech. 

„Stapi líf­eyr­is­sjóður kaus gegn til­lögu um hvata­kerfi fyrir stjórn­ar­menn hjá Alvotech“
Brynjar Þór Hreins­son,
starfs­maður Stapa líf­eyr­is­sjóðs

Hvatakerfi samþykkt á krítískum tíma

Þetta ger­ist eftir að hluta­bréfa­verð félags­ins lækk­aði mikið í kjöl­far þess að banda­ríska …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tapaði 332 milljónum krónum á dag á fyrsta ársfjórðungi
GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tap­aði 332 millj­ónum krónum á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa veðjað stórt á að Alvotech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hefur verið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uðum hefur félagið tapað um 180 millj­örðum króna. Stjórn­endur Alvotech eru hins vegar brattir og spá því að tekjur félags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúlletta Róberts og vitn­is­burðir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mikið álag“

Starfs­menn Alvotech lýsa vinnu­á­lag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leitað til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yfir­vinnu og fleiri málum. Vinnu­að­stæð­urnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá mark­aðs­leyfi fyrir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dreg­ist saman og sam­heita­lyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Banda­ríkj­unum og reiknað var með.
Háskólinn hjálpaði Róberti að eignast verksmiðjuna fyrir ekkert
SkýringRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Háskól­inn hjálp­aði Róberti að eign­ast verk­smiðj­una fyrir ekk­ert

Við­skiptin með lóð­ina í Vatns­mýri þar sem lyfja­verk­smiðja Alvotech reis vöktu til­tölu­lega litla athygli fyrir ára­tug síðan. Í við­skipt­unum voru Reykja­vík­ur­borg og Háskóli Íslands hins vegar að afhenda Róberti Wessman afnot af gæðum í opin­berri eigu á silf­ur­fati, sem hann hefur síðan notað til að hagn­ast ævin­týra­lega á í gegnum lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech.
Félag Róberts seldi skuldabréf í Alvotech á 12 milljarða rétt fyrir verðhrun
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Félag Róberts seldi skulda­bréf í Alvotech á 12 millj­arða rétt fyrir verð­hrun

Félaga­net Róberts Wessman hefur inn­leyst hagnað af sölu lyfja­verk­smiðj­unnar í Vatns­mýri á sama tíma og hluta­bréfa­verð Alvotech hefur hrunið. Árni Harð­ar­son segir að sala félags Róberts á skulda­bréfum sem það fékk sem greiðslu fyrir verk­smiðj­una sé til­viljun og teng­ist ekk­ert synjun Banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins á mark­aðs­leyfi til Alvotech.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár