Borg­ar­tún Ekið var á Kristján Finnsson og dóttur hans í Borg­ar­túni þriðju­dags­morg­un­inn 18. apríl. Mynd: Heiða Helgadóttir

Búinn að bíða eftir að það yrði ekið á hann

Kristján Finnsson var á leið til vinnu með dóttur sína í eft­ir­dragi þegar stærð­ar­innar pall­bíll þver­aði hjóla­stíg í Borg­ar­túni fyr­ir­vara­laust. Feðginin sluppu vel frá slys­inu. Kristján hjólar göt­una reglu­lega og hefur oft þurft að forða árekstri. Hann kallar eftir auk­inni með­vit­und öku­manna.

Tæpur ára­tugur er lið­inn frá því að Borg­ar­tún var end­ur­hannað, meðal ann­ars með það fyrir augum að bæta aðstæður fyrir hjól­reiðar. Þrátt fyrir það forð­ast sumir sem reglu­lega hjóla um borg­ina að fara um stíg­ana í Borg­ar­túni ef þeir kom­ast hjá því og leggja jafn­vel lykkju á leið sína, til að kom­ast hjá því að lenda í því sem Kristján Finnsson varð fyrir í síð­ustu viku.

Kristján var þá á hjól­inu með dóttur sína í eft­ir­dragi, á leið gegnum Borg­ar­tún í dag­vistun og vinnu, er stórum pall­bíl var ekið á hann. „Ég er búinn að bíða eftir þessu mjög lengi,“ segir Kristján við Heim­ild­ina, en þrátt fyrir að þetta sé í fyrsta sinn sem ekið er á hann í Borg­ar­tún­inu hefur hann margoft lent í því að þurfa að nauð­hemla á hjól­inu vegna bíla sem sveigja yfir hjóla­stíg­inn.

Kristján var á leið í vest­ur­átt og pall­bíll­inn líka, er …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÖIJ
    Össur Ingi Jónsson skrifaði
    Að banna vinstri beygjur úr innkeyrslum í Borgartúni myndi gera það margfallt öruggara. Bílar sem valda veseni þarna eru alltaf að taka vinstri beygjur. Þeir þurfa að stoppa á miðjum hjólastígnum til að sjá og bíða svo heillengi eftir færi á báðum akreinum. Besta er svo að vinstri beygjur eru algjör óþarfi í Borgartúninu útaf öllum hringtorgunum. Hjóla persónulega alltaf á götunni þegar ég fer Borgartúnið. Finnst ég ekki öruggur á þessum stígum.
    2
  • Guðný Bjarnadóttir skrifaði
    Ég hef lent í nákvæmlega þessu sama í Borgartúni, var á hjóli og bíll kom samsíða mér og beygði fyrirvaralaust í veg fyrir mig.
    1
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Á þeim áratugum sem ég hef hjólað hér í borginni hefur tillitssemi ökumanna í minn garð snaraukist. Það svo mjög að núna er aðalumkvörtunarefnið fíflagangur í nafni tillitssemi eins og að stoppa inni á gatnamótum á grænu beyjuljósi til að hleypa mér yfir á rauðu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár