Tekjur RÚV af auglýsingasölu hafa aukist um næstum 50 prósent á tveimur árum

Þrátt fyrir að aug­lýs­inga­sala hafi skilað RÚV 372 millj­ónum krónum meira í kass­ann í fyrra en árið áður, og þær tekjur hafi auk­ist um 774 millj­ónir króna á tveimur árum, þá tap­aði RÚV 164 millj­ónum króna á árinu 2022.

Tekjur RÚV af auglýsingasölu hafa aukist um næstum 50 prósent á tveimur árum
Útvarps­stjóri Stefán Eiríks­son hefur stýrt RÚV frá árinu 2020. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tap varð af rekstri RÚV í fyrra upp á alls 164 millj­ónir króna þrátt fyrir að rekstr­ar­tekjur hafi vaxið um 849 millj­ónir króna, og verið 7,9 millj­arðar króna. Árið 2021 hafði rík­is­mið­ill­inn skilað 45 millj­óna króna hagn­aði. 

Þetta er í annað sinn síðan árið 2014 sem RÚV skilar tapi. Athygli vekur að óskil­greindur „annar rekstr­ar­kostn­aður“ jókst um 560 millj­ónir króna milli ári. Gengið hefur nokkuð á eigið fé RÚV á und­an­förnum árum en eig­in­fjár­hlut­fallið var 28,5 pró­sent árið 2018. Um síð­ustu ára­mót var það komið niður í 20,1 pró­sent. 

Rekstr­ar­hagn­aður jókst milli ára og var 337 millj­ónir króna. Hrein fjár­magns­gjöld, sem nán­ast tvö­föld­uð­ust milli ára, átu hann hins vegar upp að mestu en þau voru 501 millj­ónir króna á síð­asta ári. 

Þetta kemur fram í nýlega birtum árs­reikn­ingi RÚV.

Auglýsingatekjur aukist mikið á tveimur árum

Tekjur RÚV eru að uppi­stöðu tvenns­kon­ar: tekjur af almanna­þjón­ustu sem koma í formi fram­lags úr rík­is­sjóði og tekjur af sam­keppn­is­rekstri. Alls fékk RÚV næstum 5,1 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra sem var 430 millj­ónum krónum meira en komu þaðan árið 2021. Þær greiðslur munu aukast veru­lega á þessu ári, en áætlað er að rík­is­sjóður greiði RÚV 5,7 millj­arða króna á árinu 2023. Auk þess munu greiðslur til rík­is­mið­ils­ins úr sam­eig­in­legum sjóðum að óbreyttu fara stig­hækk­andi á næstu árum sökum þess að útvarps­gjaldið fylgir verð­lags­breyt­ingum. Auk þess er öllum full­orðnum ein­stak­lingum og lög­að­ilum gert að greiða gjaldið. Þegar fólki og fyr­ir­tækjum fjölgar, þá fjölgar krón­unum sem renna til RÚV. 

Tekjur af sam­keppn­is­rekstri juk­ust líka skarpt milli ára, eða um 454 millj­ónir króna, og voru rúm­lega 2,8 millj­arðar króna. Þar munar mestu um tekjur af aug­lýs­ingum og kost­unum, sem voru 2,4 millj­arðar króna og juk­ust um 372 millj­ónir króna milli ára. Á tveimur árum hafa þær auk­ist um 774 millj­ónir króna, eða um 48 pró­sent. Til sam­an­burðar má nefna að styrkir sem greiddir voru út til á þriðja tug einka­rek­inna fjöl­miðla úr rík­is­sjóði í fyrra voru um 385 millj­ónir króna. Sú upp­hæð var því svipuð og sú tekju­aukn­ing sem RÚV tók til sín í gegnum aug­lýs­inga­sölu á síð­asta ári. 

Þessara tekna er aflað í gegnum dótt­ur­fé­lagið RÚV sölu, þar sem störf­uðu 17 manns í byrjun síð­asta árs. Sá sjón­varps­við­burður sem ugg­laust hefur skilað RÚV mestum tekjum vegna kost­unar og aug­lýs­inga­sölu er heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu sem fram fór í Katar í lok síð­asta árs. Um er að ræða einn stærsta sjón­varps­við­burð í heimi og áhorfið á hann er gríð­ar­legt. 

Laun útvarpsstjóra hækkuðu um 217 þúsund á mánuði

Stöðu­gildum fjölg­aði um tvö hjá RÚV milli ára og voru 254 á árinu 2022. Launa­kostn­aður jókst sam­hliða um 225 millj­ónir króna og var rúm­lega 3,2 millj­arðar króna.

Heild­ar­laun og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur Stef­áns Eiríks­sonar útvarps­stjóra námu 32,6 millj­ónum króna í fyrra. Þau hækk­uðu um 8,7 pró­sent milli ára, eða um 217 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Það þýðir að Stefán var með 2,7 millj­ónir króna á mán­uði í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð fyrir að stýra stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, og því eina sem er í eigu rík­is­ins. 

Stefán var ráð­inn snemma árs 2020 og þá skip­aður til fimm ára. Hann er tíundi útvarps­stjóri RÚV frá upp­hafi og tók við starf­inu af Magn­úsi Geir Þórð­ar­syn­i. 

RÚV er rekið í sam­ræmi við þjón­ustu­samn­ing sem gerður er við það ráðu­neyti sem fer með mál­efni fjöl­miðla hverju sinni. Nú er það ráðu­neyti menn­ingar- og við­skipta­mála sem stýrt er af Lilju Alfreðs­dótt­ur. Nýr þjón­ustu­samn­ingur var und­ir­rit­aður í lok árs 2020 og lát­inn gilda aft­ur­virkt frá 1. jan­úar á því ári. Hann rennur út í lok þessa árs. 

Fréttablaðið í þrot

Miklar svipt­ingar hafa verið í íslenskum fjöl­miðlum und­an­farið. Sú nýjasta, sem átti sér stað í lok síð­ustu viku, fól í sér að Frétta­blaðið, sem hefur verið risa­leik­andi á mark­aðnum í meira en tvo ára­tugi og var eitt af tveimur eft­ir­stand­andi dag­blöðum lands­ins, hætti rekstri. Samhliða hætti syst­ur­mið­ill­inn Hring­braut, sem hélt úti sjón­varps­stöð, útsend­ingum. Fyr­ir­tækið voru gefin upp til gjald­þrota­skipta á mánu­dag og hátt í 100 manns misstu vinn­una. Áður hafði N4 hætt rekstri á þessu ári. Einka­rekna fjöl­miðlaflóran hefur því sífellt verið að verða fátæk­legri.

Í tölum sem Hagstofa Íslands birti í lok árs í fyrra kom fram að tekjur allra fjöl­miðla á Íslandi hafi verið 27 millj­örðum króna árið 2021. Á föstu verð­lagi er það sama upp­hæð og þeir þén­uðu árið 2015, en 13 pró­sent minni tekjur en miðl­arnir höfðu sam­an­lagt árið 2005. Inni í þessum tölum eru þær tekjur sem RÚV tók til sín, en það var með 25 pró­sent hlut­deild í fjöl­miðla­tekjum á árinu 2021. Í þeim kom fram að RÚV hafi verið að auka hlut­deild sína í aug­lýs­inga­tekjum á und­an­förnum árum. Miðað við upp­gjör RÚV vegna síð­asta árs má búast við að hlut­deild RÚV í heild­ar­tekjum fjöl­miðla hafi auk­ist á því ári.

Ætla að draga úr umsvifum RÚV

Í nýlega kynntri fjár­má­l­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára er boðað að unnið verði að því „að draga úr umsvifum Rík­is­út­varps­ins á sam­keppn­is­mark­aði“, en það þýðir að reynt verður að setja hömlur á getu rík­is­mið­ils­ins til að sækja sér aug­lýs­ingafé. Engin útfærsla á því mark­miði er þó lögð fram í áætl­un­inni, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar stendur ekki til að taka RÚV að öllu leyti af aug­lýs­inga­mark­aði. 

Í áætl­un­inni segir að unnið verði að end­ur­nýjun þjón­ustu­samn­ings ráð­herra við RÚV sem, líkt og áður sagði, rennur út í lok árs 2023. „Lögð verður áfram­hald­andi áhersla á að Rík­is­út­varpið muni áfram sem hingað til leit­ast við að fylgja þróun fjöl­miðl­unar, m.a. með breyttum áherslum í dag­skrá og fjöl­breytt­ara efn­is­fram­boði á vef, auk þess að gera eldra efni aðgengi­legra en áður. [...] Helstu áskor­anir næstu árin eru að við­halda og efla það traust sem almenn­ingur ber til Rík­is­út­varps­ins, sbr. árlegar mæl­ingar þar að lút­andi. Þá stendur Rík­is­út­varpið enn frammi fyrir því að lækka skuldir og halda óbreyttum tekjum til að hægt verði að halda úti sam­bæri­legri dag­skrá og verið hefur.“

Þar var einnig boðað að auka árlegan stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla um 400 millj­ónir króna á næsta ári og að hann verði þá um 777 millj­ónir króna. Við­bót­ar­fram­lagið, sem ætlað er „tryggja fjöl­breytni á fjöl­miðla­mark­aði“ mun verða tryggt til fimm ára, eða út árið 2028.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar stendur meðal ann­ars til að miðla við­bót­ar­fjár­hæð­inni til fjöl­miðla í gegnum skattaí­vilnun og er aðgerð­inni að hluta til ætlað að hvetja fjöl­miðla til að taka upp áskrift­ar­fyr­ir­komu­lag. Útfærsla á leið­inni er þó ekki til­greind í áætl­un­inni.

Heim­ildin er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­­­ar­­­styrk úr rík­­­is­­­sjóði.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár