„Ég er óléttur“

Stuttu áður en Henry Steinn Leifsson átti að hefja kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli, átján ára gam­all, tók lífið óvænta stefnu, þegar hann komst að því að hann bar barn undir belti. Hann segir hér frá með­göng­unni og lífi ein­stæðs föður, djúp­inu og létt­inum sem fylgir því að vita hver hann er.

„Ég er óléttur“

Nokkru áður en Henrý Steinn Leifsson átti að hefja kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli sagði hann systk­inum sínum að hann þyrfti að segja þeim nokkuð sem þau hefðu senni­lega aldrei heyrt áður og myndu lík­lega ekki heyra aftur: „Ég er óléttur.“ Eftir fæð­ing­una ákvað hann að gefa lík­am­anum tíma til að jafna sig en hóf ferlið þegar dóttir hans var eins árs gömul. Honum hefur aldrei liðið betur, þótt lífið sé ekki einn dans á rósum.

Sex grunnskólar

Henrý Steinn fædd­ist á Akureyri og ólst upp hjá móður sinni á Norð­ur­landi.  Hann á fjögur systk­ini sem eru sam­mæðra. Mikið rót var á fjöl­skyld­unni, en fram að ung­lings­árum heim­sótti hann föður sinn aðra hverja helgi: „Ég var í sex grunn­skólum,“ segir hann í gegnum tölvu­skjá, enda staddur fyrir norðan. „Það var pínu fúlt að ég þurfti stundum að taka náms­efnið aftur ef ég þurfti að fara í nýjan skóla á miðju skóla­ári. Ég man …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár