Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, birti í dag bréf til starfsmanna á vef samstæðunnar vegna afsökunarbeiðni sem Innsikt, sérblað Aftenposten í Noregi, birti í nýjasta hefti sínu vegna forsíðuumfjöllunar í hefti sem birtist í febrúar. Þar fer hann yfir afsökunarbeiðnina og og segir að þar komi fram að blaðið hafi brotið gegn eigin starfsreglum sem leiddi til þess að Samherja hafi ekki verið gefinn kostur á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri eins og starfsreglur blaðamanna kveði á um. Með bréfinu fylgir þýðing á afsökunarbeiðni Innsikt á íslensku og ensku.
Í greininni leiðréttir Innsikt ýmsar rangfærslur sem birtar voru í greininni og biðst afsökunar á þeim. Þar segir að ekki hafi verið jafnvægi í frásögn og framsetningu. Í afsökunarbeiðninni er meðal annars sérstaklega tekið fram að ýmsar staðhæfingar í greininni, sem skrifuð var af danska blaðamanninum Lasse Skytt, hafi meðal annars byggt um of á einhliða frásögn Jóhannesar …
Athugasemdir