„Hagsmunir sjávarútvegs ráða sennilega mestu um það hagsmunamat að best sé að forðast fulla aðild“

Á Íslandi eru þrjár þjóðir. Ein lifir í krónu­hag­kerf­inu. Önnur eru fyr­ir­tæki á alþjóða­mark­aði sem nota krón­una tak­markað og sú þriðja rekur dótt­ur­fé­lög á Íslandi. Við þennan hóp má bæta stór­eigna­fólki sem geymir stóran hluta eigna sinna í erlendum gjald­miðlum. Vaxta­breyt­ingar koma aðeins við fyrsta hóp­inn. Þetta segir Gylfi Zoega í nýrri grein og veltir fyrir sér hvort ekki sé betra fyrir Ísland að ganga alla leið í Evr­ópu­sam­bandið.

„Hagsmunir sjávarútvegs ráða sennilega mestu um það hagsmunamat að best sé að forðast fulla aðild“

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði og fyrr­ver­andi með­limur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, segir í nýrri grein í Vís­bend­ingu að það felist innri mót­sögn í því fyrir Ísland að vera á innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins en ekki aðili að sam­band­inu sjálfu. 

Við þær aðstæður vaxi atvinnu­greinar stjórn­völdum yfir höfuð. „Almenn­ingur sem býr í krónu­hag­kerf­inu greiðir þá ekki ein­ungis hærri vexti en þeir sem búa í erlenda inn­lenda hag­kerf­inu heldur ráða kannski ekki svo miklu um mik­il­væg þjóð­fé­lags­mál þegar á reynir. Segja má að nútíma­væð­ing íslenska hag­kerf­is­ins hafi haf­ist með inn­göngu á Evrópska efna­hags­svæðið. En þótt mikið hafi áunn­ist þá vantar enn mikið upp á að inn­lend stjórn­sýsla geti bæði greitt veg­inn fyrir inn­lendum atvinnu­greinum og veitt þeim aðhald og eft­ir­lit eins og dæmin sanna á und­an­förnum vikum. Sú spurn­ing vaknar þá hvort ekki sé betra að fara alla leið!“

Gylfi segir að fyr­ir­komu­lagið geri það að verkum að Ísland …

Kjósa
82
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár