Grjót­kast Stuðn­ings­maður Bol­son­aro grýtir örygg­is­lög­regl­una í átökum fyrir utan skrif­stofur for­seta­emb­ættis Brasilíu, eftir að æstur múgur hafði ráð­ist inn í stjórn­ar­bygg­ingar í höf­uð­borg lands­ins. Óeirð­irnar sköp­uð­ust vegna mót­mæla eftir inn­setn­ingu Lula da Silva í emb­ætti for­seta í byrjun árs. Mynd: Sergio Lima/AFP

Réðust á lýðræðislegar stofnanir í Brasilíu

Þúsundir stuðn­ings­manna fyrr­ver­andi Brasiílu­for­seta, Jair Bol­son­aro, réð­ust á opin­berar bygg­ingar í Brasilíu til að mót­mæla emb­ætt­is­töku nýs for­seta, Lula da Silva. Mann­flaum­ur­inn rudd­ist yfir tálma lög­reglu og inn í þing­hús og skrif­stofur for­seta þar sem húsa­kynni voru lögð í rúst.

Hundruð eða þús­undir stuðn­ings­manna Jair Bol­son­aro, fyrr­ver­andi for­seta Brasilíu, rudd­ust sunnu­dag­inn 8. jan­úar í gegnum tálma lög­reglu og örygg­is­sveita og inn í for­seta­höll lands­ins, inn í þing­húsið og bygg­ingu hæsta­réttar Brasilíu. Fjöl­margir stuðn­ings­menn for­set­ans fyrr­ver­andi komust inn í bygg­ing­arnar og ollu þar stór­tjóni, brutu allt og bröml­uðu. Kalla þurfti til óeirða­lög­reglu og her­lög­reglu sem kvað óeirð­irnar niður með táragasi, kylfum og vopna­valdi. For­set­inn Lula kallar óeirða­segg­ina fas­ista og óeirð­unum er líkt við inn­rás­ina í banda­ríska þing­húsið fyrir tveimur árum.

Bol­son­aro laut í lægra haldi fyrir Luis Inacio Lula da Silva, ávallt kall­aður Lula, í for­seta­kosn­ing­unum í Brasilíu í októ­ber síð­ast­liðnum. Úrslitin voru tví­sýn, Lula hlaut 50,9 pró­sent atkvæða gegn 49,1 pró­senti Bol­son­aro. Bol­son­aro neit­aði að við­ur­kenna úrslit kosn­ing­anna en í byrjun nóv­em­ber lýsti hann því þó að hann myndi virða nið­ur­stöð­una. Hann hvatti stuðn­ings­fólk sitt til að mót­mæla með frið­sam­legum hætti, hygð­ist það mót­mæla úrslitum kosn­ing­anna. Hann hefur þó haldið því fram að brögð hafi verið í tafli og að um stór­felld kosn­inga­svik hafi verið að ræða við kosn­ing­arnar. Engin gögn hafa komið fram sem styðja þær full­yrð­ingar.

Úrslit kosn­ing­anna voru stað­fest 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn og sama dag réð­ust stuðn­ings­menn Bol­son­aros á lög­reglu­stöðvar í höf­uð­borg­inni Brasilíu, meðal ann­ars á höf­uð­stöðvar rík­is­lög­regl­unnar.

Þing undir árásÞúsundir stuðn­ings­manna Bol­son­aros tóku þátt í óeirð­unum. Mann­fjöld­inn safn­að­ist saman og hluti hans réðst síðan inn í stjórn­ar­bygg­ingar, meðal ann­ars inn í þjóð­þing Brasilíu.

Lula var settur í emb­ætti for­seta 1. jan­úar síð­ast­lið­inn, í þriðja sinn, en hann gegndi áður emb­ætti for­seta á árunum 2003 til 2011. Forveri hans, Bol­son­aro, var ekki við­staddur inn­setn­ing­ar­at­höfn­ina en hann fór til Banda­ríkj­anna fyrir athöfn­ina. Áður hafði hann ávarpað stuðn­ings­menn sína, ítrekað að brögð hefðu verið í tafli í kosn­ing­unum en engu að síður for­dæmt það ofbeldi sem stuðn­ings­menn hans höfðu beitt í kjöl­farið.

Bol­son­aro for­dæmdi einnig árás stuðn­ings­manna sinna á þing­húsið, skrif­stofur for­seta­emb­ætt­is­ins og hæsta­rétt á Twitter sama dag og árás­irnar áttu sér stað. Lula for­seti kall­aði stuðn­ings­menn Bol­son­aro fas­ista og ofstæk­is­menn og lýsti því að allir þeir sem tekið hefðu þátt í óeirð­unum yrðu leit­aðir uppi og þeim refsað. Þjóð­ar­leið­togar for­dæmdu hver af öðrum atburð­ina, þannig kall­aði Alberto Fernandez, for­seti Argent­ínu, þau til­raun til valda­ráns. Joe Biden Banda­ríka­for­seti sagði árás­ina smán­ar­lega og lýsti stuðn­ingi sínum við brasil­ísk stjórn­völd og Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, kall­aði atburð­ina árás á lýð­ræðið.

Skemmd­ar­verk og skríls­lætiMót­mæl­endur réð­ust meðal ann­ars á húsa­kynni hæsta­réttar Brasilíu og möl­brutu þar rúður og skemmdu inn­an­stokks­muni.

Hinn 6. jan­úar síð­ast­lið­inn voru tvö ár frá því að æstur múgur réðst inn í þing­hús Banda­ríkj­anna í Washington. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings var að þáver­andi Banda­ríkja­for­seti, Donald Trump, bæri meg­in­á­byrgð á árásinni með því að æsa stuðn­ings­menn sína upp með end­ur­teknum og ósönnum full­yrð­ingum um kosn­inga­svik. Þá hafi hann hvatt stuðn­ings­menn sína til að mæta til Washington í mót­mæli.

Jair Bol­son­aro hefur verið kall­aður Tropical-Trump, hinn suður-amer­íski Trump. Lula hefur í yfir­lýs­ingum sagt Bol­son­aro bera ábyrgð á óeirð­unum, rétt eins og Trump fyrir tveimur árum. Því hefur Bol­son­aro ein­dregið hafnað.

Kylfum beittÓeirða­lög­regla á hestum var send á vett­vang til að dreifa mann­fjölda við skrif­stofu for­seta­emb­ætt­is­ins.
Fallinn af bakiHer­lög­reglu­maður hefur hér fallið af baki hesti sínum og bíður skelfdur þess sem verða vill meðan stuðn­ings­menn Bol­son­aros hóp­ast að honum.
Komið til bjargarMót­mæl­endur koma her­lög­reglu­mann­inum til aðstoðar og verja hann fyrir óeirða­seggjum.
Ráðist að bif­reiðEngu var eirt í óeirð­unum, þannig var ráð­ist á bíla her­lög­regl­unnar jafnt sem önnur far­ar­tæki.
Táragasi beittBrasil­íska lög­reglan beitti meðal ann­ars táragasi til að dreifa lýðnum eftir að mót­mæl­endur höfðu ráð­ist inn í þing­húsið í Brasilíu.
Flúið af vett­vangiMót­mæl­endur flýja örygg­is­lög­reglu­menn, gráa fyrir járnum, fyrir utan for­seta­skrif­stof­urnar.
Byssum brugðiðLög­reglu­menn skutu gúmmí­kúlum að mót­mæl­endum, úðuðu pip­ar­spreyi og sprengdu táragas­sprengjur til að ná stjórn á ástand­inu.
Hundruð hand­tekinHunduð mót­mæl­enda voru hand­tekin strax í aðgerðum lög­reglu. Lula for­seti hefur heitið því að allir þeir sem tóku þátt í óeirð­unum verði eltir uppi, hand­teknir og þeim refsað.
Gríð­ar­leg eyði­legg­ingÖrygg­is­verðir í brasil­íska þing­inu virða fyrir sér eyði­legg­ing­una, degi eftir árás­ina. Hug­renn­inga­tengsl við árás­ina á banda­ríska þing­húsið árið 2021 eru óhjá­kvæmi­leg.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár