Mynd: Davíð Þór

Hvað varð um þingmennina?

Eftir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar viku 25 þing­menn af þingi. Nú, rúmu ári seinna, er allur gangur á hvað þetta fólk er að gera. Sumir eru atvinnu­lausir eða glíma við kulnun á meðan öðrum hafa verið falin marg­vís­leg verk­efni af fyrr­ver­andi kol­legum sínum á þingi.

Allt frá efna­hags­hrun­inu 2008 hefur það verið venja en ekki und­an­tekn­ing að gjör­breyt­ing verði á þeim hópi þing­manna sem kjörnir eru í alþing­is­kosn­ingum. Þannig voru 27 nýir þing­menn kjörnir á þing í fyrstu kosn­ing­unum eftir hrunið, árið 2009. Í kosn­ingum árið 2016 kom 31 nýr þing­maður inn á þing en heldur færri, 19 tals­ins, í kosn­ing­unum árið eftir. Í alþing­is­kosn­ing­unum síð­asta haust varð end­ur­nýj­unin svo 25 þing­menn.

En á móti hverjum einum sem tekur sæti á þingi hlýtur einn frá að hverfa. Því eru þeir vel á annað hund­rað þing­menn­irnir fyrr­ver­andi sem nú gegna öðrum hlut­verkum. En hvað verður um alla þessa fyrr­ver­andi þing­menn?

Þekkt dæmi eru um þing­menn sem hafa farið beina, eða því sem næst beina, leið af þingi í hags­muna­gæslu hvers konar fyrir fyr­ir­tæki, félög eða sam­tök. Þannig tók Einar Kristinn Guð­finns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ráð­herra og for­seti Alþingis, við for­mennsku í Lands­sam­bandi fisk­eld­is­stöðva aðeins …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Í mínum huga eru Kjarninn og Stundin ómissandi fjölmiðlar.,
    og heiðarlegir.
    1
  • Alltaf skal ég vera tryggur áskrifandi að stundinni á meðan ég get borgað blaðið svei mér þá alla daga því einmitt svona blað þarf að vera á islandi
    4
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Landssamband fiskeldisstöðva eru samtök sem eiga mikið undir góðum tengslum við stjórnvöld og í Einari Kristni fengu þau slíkan mann".
    - Það var ekki tilviljun að skattur sem fyrirhugaður var á laxeldið var felldur niður. Þetta var ekki e-h sem Bjarna Ben bara datt sí sona í hug.
    "Get yourself a general" segja bandarískir vopnaframleiðendur. Herforingjar á eftirlaunum eru eftirsóttir ráðgjafar þeirra.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár