Norðurál fjármagnaði áróðursherferð gegn Landsvirkjun

Norðurál fjár­magn­aði og skipu­lagði áróð­urs­her­ferð sem átti að veikja samn­ings­stöðu Lands­virkj­unar um raf­orku­verð. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins gekkst við þessu og baðst afsök­unar áður en samn­ingar náð­ust árið 2016. Her­ferðin hafði ásýnd gras­rót­ar­hreyf­ingar en var í raun þaul­skipu­lögð og fjár­mögnuð með milli­göngu lítt þekkts almanna­teng­ils.

Norðurál fjármagnaði áróðursherferð gegn Landsvirkjun
Erfitt sam­tal Ragnar Guð­munds­son var for­stjóri Norð­ur­áls þegar fyr­ir­tækið stóð í harð­vít­ugum deilum við Lands­virkjun um raf­orku­verð. Harkan var jafn­vel meiri en áður hefur komið fram.

Félag sem kenndi sig við „Auð­lindir okkar“, og hélt meðal ann­ars úti sam­nefndum Facebook-hópi, sem kynnt var sem fram­tak áhuga­fólks um auð­linda­nýt­ingu og orku­mál, var í raun áróð­urs­her­ferð, fjár­mögnuð og skipu­lögð af Norð­ur­áli.

Mark­miðið var að veikja samn­ings­stöðu Lands­virkj­unar þegar tek­ist var á um tuga millj­arða króna raf­orku­kaup álvers­ins á Grund­ar­tanga. Því var haldið fram að Lands­virkjun væri að verð­leggja raf­orku sína svo hátt að stór­iðju­fyr­ir­tæki neydd­ust til að loka. Að baki lægi ein­hvers konar sam­særi for­stjóra Lands­virkj­unar.

Glencore, stærsti eig­andi Norð­ur­áls, var stað­inn að því að skipu­leggja og fjár­magna sams konar áróð­urs­her­ferð í Ástralíu, sem lýst var sem árás á lýð­ræði lands­ins.

Stjórn­endur Norð­ur­áls, sem hafa oft­sinnis áður þver­tekið fyrir að hafa haft nokkuð með áróð­urs­her­ferð­ina að gera, neita að svara spurn­ingum um málið og segja það „gamlar erjur“ sem hafi verið „ræddar og gerðar upp fyrir margt löngu“.

Kjósa
85
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Hattur ofan fyrir þér Helgi Seljan, enn og AFTUR.
    EKKI láta deigann síga, fyrir alla mun og þjóðar heill.
    0
  • Skuli Waldorff skrifaði
    Ég er Skúli Waldorff
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þessi umræða minnir enn og aftur á þá áhættu að eiga sölu allt að 80% allrar raforkuframleiðslu landsins undir þremur eða fjórum (mis siðavöndum) kaupendum. Fyrr eða síðar kemur sæstrengur til alvöru umræðu.
    1
    • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
      Ég hefði miklar áhyggjur af því sæstrengur yrði fjármagnaður af Glencore.
      1
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Liggur ekki beint við í framhaldinu að senda fyrirspurn til Vilhjálms Birgissonar hvort hann hafi beint eða óbeint verið á mála hjá Norðuráli þegar hann skrifaði sínar frægu varnargreinar fyrir álrisann og gagnrýndi það háa orkuverð sem Landsvirkjun lét þá borga.
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár