Segja að Hussein sé sárlasinn

Hussein Hussein sem fluttur var með valdi frá Íslandi í síð­ustu viku hefur ekki fengið lækn­is­að­stoð í Aþenu og fjöl­skylda hans hefur miklar áhyggjur af hratt versn­andi heilsu­fari hans. Þau segja að hann hafi lítið sem ekk­ert borðað síðan þau komu til Aþenu. Myndband sem Stundin fékk sent sýnir þegar Hussein er mein­aður aðgangur að sjúkra­húsi í Aþenu í gær.

Segja að Hussein sé sárlasinn

„Take the metro and go“ segir mað­ur­inn sem stendur vörð við hlið að spít­ala í Aþenu við Hussein og fjöl­skyldu hans sem þangað leit­uðu eftir lækn­is­að­stoð fyrir Hussein í gær. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar sagði mað­ur­inn að sjúkra­stofn­unin væri full og búið að loka og því ekki hægt að taka á móti fleiri sjúk­lingum. Þau þyrftu því að leita annað. Samkvæmt sömu heim­ildum var veiku fólki hleypt inn á meðan Hussein beið fyrir utan. Fjöl­skyldan fór því á annað sjúkra­hús og þar var þeim einnig vísað frá sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Fjöl­skyldan hefur miklar áhyggjur af versn­andi heilsu­fari Husseins sem sé nú þegar sárlas­inn, hann hafi lítið sem ekk­ert borðað frá því að hann var fluttur með valdi frá Íslandi aðfar­arnótt 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Fyrstu nótt­ina í Aþenu gisti fjöl­skyldan á hót­eli en síðan þá hafa þau verið á göt­unni, gist í almenn­ings­görðum. „Við vorum í …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    Og allt til að draga athyglina frá íslenskum vopnasala. Það er algengt að þegar fólk tengt ..... valdastéttinni brýtur lög er farið í að útbúa brellibrögð til að taka athyglina frá þeim. "Núna hentu þau fötluðum fyrir bíl" mætti segja.
    Ég sagði við vini mína strax og Vopnasalinn og ofstækis liðið kom fram að Núna myndi vera búinn til atburðarás. Og það varð.
    Og til að við yrðum reglulega óglatt og reið þá var fatlaður maður valinn. Þessir spuna menn öfgamanna eru með ógeðslegastu persónum sem finnast. Ég veit að þeir lesa þetta, því það gera þeir sem eru fatlaðir Narsesistar.
    Stundinni þeir fara á námskeið hjá Rebublikana flokknum. Þeir fara á þau námskeið fyrir allar kosningar til að læra að verða meiri viðbjóður. Og um næstu kosningar sjáið þið hvaða þeim var kennt síðast.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár