„Með þessu missti kirkjan að minnsta kosti eina sál“

Skrúfað var fyrir heitt vatn á tveimur bæjum í Reyk­holts­dal í Borg­ar­firði í byrjun júlí. Bæirnir hafa verið heita­vatns­lausir síðan. Ábúendur á bænum Skáney segja óbil­girni og yfir­gang fyrr­ver­andi prests í Reyk­holti, Geirs Waage, rót­ina að mál­inu. Í gildi sé samn­ingur við kirkju­mála­sjóð til næstu 37 ára um kaup og sölu á vatn­inu.

„Með þessu missti kirkjan að minnsta kosti eina sál“
Skilja ekki aðgerð­ar­leysi þjóð­kirkj­unnar Þau Birna og Bjarni í Skáney undr­ast að þjóð­kirkjan, sem á heita vatnið í Reyk­holti, leyfi Geir Waage að kom­ast upp með að loka á vatnið til þeirra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Klukkan var fimm í eft­ir­mið­dag­inn föstu­dag­inn 1. júlí síð­ast­lið­inn þegar ábú­endur á tveimur bæjum í Reyk­holts­dal í Borg­ar­firði urðu varir við að eitt­hvað furðu­legt var að ger­ast með heita vatnið heim á bæina. Fyrst dró úr þrýst­ingi en síðan hætti vatnið alveg að renna. Bændur grun­aði hvað ylli en það var varla að fólk tryði því þó. Það var ekki bilun sem olli vatns­leys­inu heldur var búið að skrúfa fyrir heita vatnið. Og ekki var það svo að ábú­endur hefðu ekki greitt reikn­inga sína eða með öðru móti brotið gegn samn­ingum um kaup þeirra á vatn­inu sem kom úr bor­holu í Reyk­holti, bor­holu sem stendur í landi prests­set­urs­ins þar og er í eigu kirkju­mála­sjóðs þjóð­kirkj­unnar.

Ástæð­urnar fyrir því að skrúfað var fyrir vatn til bæj­anna tveggja, Gríms­staða og Skán­eyjar, eru nokkuð flóknar. Þar koma saman deilur um notkun ábú­enda á vatn­inu, auk­inn kostn­aður vegna nýfram­kvæmda við öflun vatns, þing­lýstur …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RRS
    Raqnar Rúnar Sverrisson skrifaði
    "Dýrð sé Guði (og Geir) í umtalsverðum upphæðum" Amen.
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Pastor emeritus Geir Waage beitir hér bragði vinar sins Pútíns. Hann þarf hvorki leyfi biskups né kirkjunnar til að skrúfa fyrir krana á sinni lóð. Kirkjan er dauður hlutur, getur hvorki leyft né bannað neitt.
    3
  • Af Geir fer ekki gott orð neinsstaðar.
    Hvorki sem kennara,presti né manneskju.
    Geir Waage er smánarblettur á báðum stéttum, og mannkyninu líka.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár