Purdue Pharma og Actavis: Svipuð saga af blekkingum og ábyrgðarleysi

Þegar horft er á við­skipti íslenska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis á ópíóða­mark­aðnum í Banda­ríkj­unum á árunum 2005 til 2012 kemur í ljós mynstur sem er líkt við­skipta­háttum banda­ríska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Purdue Pharma, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­is­ins sem talið er bera mesta ábyrgð á ópíóða­far­aldr­inum í Banda­ríkj­unum. Actavis dró úr því hversu ávana­bind­andi mor­fín­lyfin eru, ýkti jákvæða virkni þeirra, hunds­aði eft­ir­lits­hlut­verk sitt við sölu lyfja og tók ekki mark á gagn­rýni banda­rískra stjórn­valda.

<span>Purdue Pharma og Actavis:</span> Svipuð saga af blekkingum og ábyrgðarleysi
Svipað mynstur Actavis beitti sams konar aðferðum og Purdue Pharma gerði við sölu og mark­aðs­setn­ingu á mor­fín­lyfjum í Banda­ríkj­unum. Hér sjást með­limir úr Sackler-fjöl­skyld­unni, eig­anda Purdue, á mynd.

Þær blekk­ingar sem lyfja­fyr­ir­tækið Purdue Pharma beitti til að mark­aðs­setja og selja mor­fín­lyfið OxyContin hafa verið til umfjöll­unar í banda­rískum fjöl­miðlum um ára­bil. Á grund­velli þess­ara blekk­inga, sem beindust bæði gegn lækn­unum sem ávís­uðu OxyContin og gegn not­endum lyfs­ins, hefur fyr­ir­tækið kom­ist að sam­komu­lagi við yfir­völd í Banda­ríkj­unum um að greiða skaða­bætur upp á marga millj­arða doll­ara. Þessi saga Purdue Pharma er að meðal ann­ars sögð í þátt­unum Dopesick með Michael Keaton í aðal­hlut­verki.

Blekk­ingar Purdue Pharma sner­ust meðal ann­ars um eft­ir­far­andi atriði.

- Að segja ósatt um hversu ávana­bind­andi OxyContin væri í raun. Fyr­ir­tækið stað­hæfði að innan við 1 pró­sent not­enda yrðu háðir lyf­inu án þess að rann­sóknir sýndu fram á þetta. 

- Að stinga undir stól upp­lýs­ingum frá læknum og not­endum lyfs­ins um að það væri meira ávana­bind­andi en fram kæmi í upp­lýs­ingum frá fyr­ir­tæk­inu.

- Að falsa ætluð vís­inda­leg gögn sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

Lífeyrissjóður harmar ábyrgð sína á ópíóðafaraldri
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Líf­eyr­is­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem fjár­festu í Actavis þegar fyr­ir­tækið var stór­tækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum segj­ast ekki hafa vitað um skað­semi og vill­andi mark­aðs­setn­ingu mor­fín­lyfj­anna. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir högn­uð­ust um 27 millj­arða þegar þeir seldu fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar hluta­bréf í Actavis árið 2007, eftir að fyr­ir­tækið var farið að selja mor­fín­lyf í stórum stíl.
Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóðafaraldursins
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 millj­arða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­urs­ins

Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóða­töflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúm­lega þrjá millj­arða taflna. Í byrjun febr­úar var greint frá því að fyr­ir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í rík­inu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylk­inu. Eigandi Actavis-félag­anna í dag, Teva, við­ur­kennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæt­urnar.
Fékk 490 töflur frá heimilislækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heim­il­is­lækni á tveimur mán­uðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynnt­ist OxyContin þegar mað­ur­inn hennar var krabba­meins­sjúk­lingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig lang­vinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa mor­fín­lyfjum fyrir sam­kvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir kon­unnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því frá­hvörfin séu „við­bjóður“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár