Jöklamælingar ganga á milli kynslóða: „Við berum núna ábyrgð á þessum jökli“

Frá árinu 2015 hefur Sverrir Aðal­steinn Jónsson ásamt fjöl­skyldu sinni mælt breyt­ingar á Tungna­hryggs­jökli á Trölla­skaga. Á þeim tíma hefur jök­ul­sporð­ur­inn hörfað um rúma 58 metra.

Jöklamælingar ganga á milli kynslóða: „Við berum núna ábyrgð á þessum jökli“
Fjöl­skyldu­sport að mæla sporð­inn Frá árinu 2015 hefur fjöl­skyldan frá Smiðs­gerði mælti hop Tungna­hryggs­jök­uls. Myndin er frá mæl­inga­ferð síð­asta hausts. Lengst til vinstri er Ágúst Þór Gunn­lau­ags­son, svo Sverrir Aðal­steinn Jónsson, Eyjólfur Árni Sverr­is­son og lengst til hægri er Þór­hildur Halla Jóns­dóttir. Mynd: Sverrir Aðalsteinn Jónsson

Breyt­ingar á jöklum á Íslandi sýna skýrt hvernig lofts­lags­breyt­ingar hafa áhrif. Áratugum saman hafa jök­ul­sporðar fjölda jökla hér á landi verið mældir og fram­hlaup þeirra eða hop verið skráð. Á síð­ustu árum hafa nán­ast allir jök­ul­sporðar sem fylgst er með á Íslandi hopað og er orðin nokkuð víð­tæk sam­staða um það innan vís­inda­sam­fé­lags­ins að ástæðan sé hlýn­andi lofts­lag, vegna lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum.

Sverrir Aðal­steinn Jónsson jarð­fræð­ingur hefur frá árinu 2015, ásamt fjöl­skyldu sinni, mælt jök­ul­sporð Tungna­hryggs­jök­uls. Tungna­hryggs­jök­ull er stærsti jök­ull­inn á Trölla­skaga og er hátt innst í Kol­beins­dal, sem liggur sam­síða Hjalta­dal. „Ég hafði, eftir að hafa verið í jarð­fræði­námi, vitað af þessum sporða­mæl­ingum sem Jökla­rann­sókn­ar­fé­lagið hefur verið með lengi, og langað að taka þátt í því. Ég var síðan ein­hvern tím­ann að ræða við Odd Sig­urðs­son jökla­fræð­ing um sporða­mæl­ingar, meðal ann­ars á Tungna­hryggs­jökli, og hann hvatti mig til að end­ur­vekja þar mæl­ingar. Tungna­hryggs­jök­ull klofnar eig­in­lega í tvo jökla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár