Yfir 2.000 drukkn­uðu á síð­asta ári 116.000 flótta­menn reyndu í fyrra að kom­ast yfir Mið­jarð­ar­hafið að sögn Flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mynd: Brynja Dögg/IFRC

Hættulegasta flóttaleið heims

Rúmlega 2.000 mann­eskjur létu lífið á leið­inni yfir Mið­jarð­ar­hafið í fyrra, þar af 75 börn. 900 börn, hið minnsta, hafa síð­ustu sjö ár horfið í Mið­jarð­ar­hafið. Yngsta barnið sem bjargað hefur verið um borð í björg­un­ar­skipið Ocean Viking var 11 daga gam­alt og tók Brynja Dögg Frið­riks­dóttir, sendi­full­trúi Rauða kross­ins, þátt í björg­un­inni. Á sama tíma er andúð almenn­ings og stjórn­valda í Evrópu gagn­vart flótta­fólki að aukast, segir Þórir Guð­munds­son sem starf­aði fyrir Rauða kross­inn um ára­bil, meðal ann­ars við að bjarga flótta­fólki á Mið­jarð­ar­hafi.

Flest fólk sem neyð­ist til að flýja átök, ofbeldi, mis­munun, fátækt og jafn­vel yfir­vof­andi hung­ursneyð nú um stundir fer frá Norður-Afríku og yfir Mið­jarð­ar­hafið á leið sinni til Ítalíu, Spánar eða Grikk­lands. Yfir hafið eru þrjár megin flótta­leiðir; vest­ur­leiðin, aust­ur­leiðin og svo er það miðja hafs­ins, eins og flótta­leiðin sem lang­flestir fara um er kölluð, en hún er hættu­leg­asta flótta­leið í heimi.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Missing Migrants Project, sem er stofnun á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna, hefur verið til­kynnt að 23.312 flótta­menn hafi dáið á leið sinni yfir Mið­jarð­ar­haf frá árinu 2014, þar á meðal 894 börn. Stofn­unin sér um að skrá fjölda þeirra sem er saknað eftir að hafa reynt að flýja yfir Mið­jarð­ar­hafið. Flest sem fara þessa leið leggja af stað frá Líbýu. Missing Migrants Project segja að mun fleiri hafi dáið en tölur þeirra segi til um því að þau geti aðeins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Er ekki hættulegasta flóttaleið heims milli N- og S-Kóreu?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár