„Eitthvað mjög skrítið að gerast“ í umferðinni

Gunnar Geir Gunn­ars­son, deild­ar­stjóri öryggis-og fræðslu­deildar Umferð­ar­stofu, fer yfir árið í umferð­inni með Stund­inni. Hann er ugg­andi yfir fjölgun í umferð­ar­slysum á árinu miðað við árin á undan. Stærstu breyt­ing­una segir hann vera aukn­ingu á slysum á raf­magns­hlaupa­hjólum.

Gunnar Geir Gunn­ars­son, deild­ar­stjóri öryggis- og fræðslu­deildar Umferð­ar­stofu, er ugg­andi yfir fjölgun umferð­ar­slysa og slas­aðra á tíma­bil­inu jan­úar til sept­em­ber á árinu 2021, en á því tíma­bili voru umferð­ar­slys orðin fleiri en allt árið 2020 og 2019 sömu­leiðis. „Það er eitt­hvað mjög skrýtið að ger­ast. Við erum eig­in­lega bara mjög ugg­andi yfir þessum tölum,“ segir Gunnar. 

Aðspurður um það hver helsta breyt­ingin á þessu tíma­bili miðað við árin tvö á undan er segir hann fjölgun slysa á raf­magns­hlaupa­hjólum vera stærstu breyt­ing­una en á þessu tíma­bili hafa 30 ein­stak­lingar slasast alvar­lega á þeim far­ar­tækjum. Algeng­asta teg­und alvar­legra slysa á þessu tíma­bili var að óvar­inn veg­far­andi féll af far­ar­tæki, eða 42 slys, og þar á eftir voru 32 slys sem rekja má til útafakst­urs eða bíl­veltna og þriðja algeng­asta teg­und slyss er ekið á óvar­inn veg­far­anda. 

Hvað óvarða veg­far­endur varðar, það er að segja allir þeir sem ekki eru í bif­reið, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Mikill hluti hlaupahjólaslysum stafar af árekstrum við illa hönnuð umferðarmannvirki. Flest gatnamót í Reykjavík eru hönnuð sem farartálmi fyrir gangandi og hjólandi. Þræða þarf krákustíga. Fláar upp á gangstéttir eru víða þannig að erfitt er að komast slysalaust upp þá á rafskútu. Nýjir stígar er síðan lagðir þannig að göngu og hjólastígar fléttast saman í kaðlaprjónsmunstri sem fjölgar tækifærum til árekstra.
    0
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Hvert er hlutfall slysanna eftir hlutfalli samgöngutækja í umferð?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár