Flokkadrættir í íslensku menningarlífi

Kalda­stríðs­módern­ism­inn berst hingað í gegnum tíma­rit sem banda­ríska leyni­þjón­ustan styrkti bak við tjöldin og hér á landi er hún heim­færð upp á átök sem höfðu staðið um abstrakt mál­verk og atóm­ljóð­list.

Flokkadrættir í íslensku menningarlífi
Haukur Ingv­ars­son Mynd: Heiða Helgadóttir

Bókin Fulltrúi þess besta í banda­rískri mennningu segir frá því hvernig orð­spor banda­ríska rit­höf­und­ar­ins Williams Faulkners barst til Íslands á fjórða ára­tugnum fyrir til­stilli nor­rænna þýð­inga og hvernig það festi sig í sessi í krafti opin­bers og óop­in­bers menn­ing­ar­starfs Banda­ríkj­anna á tímum kalda stríðs­ins. Í bók­inni er sagt frá því hvernig höf­undur sem lengi naut lít­illar við­ur­kenn­ingar í heima­landi sínu reis til æðstu met­orða og hlaut að lokum Nóbels­verð­launin í bók­menntum. Haukur Ingv­ars­son, rit­höf­undur og bók­mennta­fræð­ingur, leit­aði víða í rann­sókn sinni og heim­sótti meðal ann­ars skjala­söfn í Banda­ríkj­unum, Noregi og Svíþjóð. Við sögu koma banda­rískir leyni­þjón­ustu­menn, leynd­ar­dómar á bóka­safni Ísa­fjarðar en hæst ber kannski frá­sögn af heim­sókn Faulkners til Reykja­víkur árið 1955. Um leið og sögð er saga Faulkners er varpað ljósi á flokka­drætti í íslensku menn­ing­ar­lífi og kast­ljós­inu beint að því alþjóð­lega sam­hengi sem íslenskir mennta­menn á hægri væng stjórn­mál­anna störf­uðu í en þar var banda­ríska leyni­þjón­ustan, CIA, ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár