Sósíalistar segjast ætla að útrýma fátækt á næsta ári og boða fordæmalitla útgjaldaaukningu

Stefnu­mál Sós­í­alista­flokks­ins kosta gríð­ar­lega fjár­muni sem flokk­ur­inn ætlar að mæta með auk­inni skatt­heimtu af hinum eigna­meiri. Flokk­ur­inn gerir ekki grein fyrir því hvaða fjár­hæðir gætu komið í hlut rík­is­ins með þeim hætti. Sós­í­alistar boða lækk­aðar álögur á elds­neyti og það að dóm­stólar verði ruddir ef þörf krefur.

Sósíalistar segjast ætla að útrýma fátækt á næsta ári og boða fordæmalitla útgjaldaaukningu
Boða skatt­lækk­anir á lág­tekju­fólk en hátekju­skatta á þá eigna­meiri Sós­í­alista­flokkur Íslands vill ráð­ast gegn nýfrjáls­hyggj­unni sem flokk­ur­inn segir að hafi valdið for­dæma­lausum ójöfn­uði. Gunnar Smári Egilsson er odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Mynd: Pressphotos

Hvergi er gerð til­raun til að kostn­að­ar­meta stefnur Sós­í­alista­flokks Íslands, ekki í neinum mála­flokki. Aðeins á einum stað er það nefnt hverju gjald­taka eða skatt­heimta gæti skilað hinu opin­bera, með auknum veiði­gjöldum. Þrátt fyrir útfærðar til­lögur um breyt­ingar á skatt­heimtu hafa Sós­í­alistar ekki birt útreikn­inga á því hverju þær gætu skilað rík­is­sjóði og sveit­ar­fé­lögum. Því kemur hvergi fram hvernig eigi að fjár­magna kosn­inga­lof­orð Sós­í­alista­flokks Íslands.

Sós­í­alistar vilja „vinda ofan af nýfrjáls­hyggj­unni“ og er sér­stakur kafli til­eink­aður því bar­áttu­máli í kosn­inga­stefnu flokks­ins. Sós­í­alistar líta svo á að nýfrjáls­hyggja sé ríkj­andi hug­mynda­fræði í sam­fé­lag­inu og að hún hafi fram­kallað ójöfnuð sem eigi sér fá for­dæmi í mann­kyns­sög­unni, ýtt undir stríðs­rekstur Vest­ur­landa í fátækum löndum, fram­kallað krísu í geð­heil­brigði og beri ábyrgð á lofts­lags­breyt­ingum, svo eitt­hvað sé talið.

Boða eignaupptöku

Til að vinda ofan af nýfrjáls­hyggj­unni  þurfi að snúa við skatta­lækk­unum síð­ustu ára og „hætt verður að lækka skatta á hin ríku“. Þá vilja Sós­í­alistar að engar rík­is­eignir verði seldar, hvaða nafni sem þær nefn­ast. Miðað við það vilja Sós­í­alistar ekki að ríkið selji eign­ar­hluta sína í fjár­mála­stofn­unum, hluta í öðrum fyr­ir­tækjum, að fast­eignir verði ekki seldar og ekki jarðir.

Stöðva á einka­væð­ingu auð­linda og koma þeim sem er í einka­eigu til almenn­ings. Þetta er ekki sér­stak­lega skýrt frekar, þó ljóst sé að þarna séu Sós­í­alistar meðal ann­ars að vísa til sjáv­ar­auð­lind­ar­innar. Hvort verið sé að boða upp­töku á til að mynda vatns­rétt­indum, hvort sem er um að ræða til virkj­ana eða neyslu­vatns, er ekki sér­stak­lega til­greint, og ekki heldur hvort verið sé að boða eigna­upp­töku á landi.

„Það eina sem mun svelta undir stjórn Sós­í­alista­flokks­ins eru banka­reikn­ingar auð­manna í skatta­skjólum“

Sós­í­alista­flokkur Íslands vill að allri útvistun opin­berrar þjón­ustu verði hætt, gjald­taka fyrir grunn­kerfi verði afnumin og svelti­stefnu stjórn­valda gagn­vart opin­berri þjón­ustu verði alfarið hætt. „Það eina sem mun svelta undir stjórn Sós­í­alista­flokks­ins eru banka­reikn­ingar auð­manna í skatta­skjólum.“

Tekjur undir lágmarksframfærslu ekki skattlagðar

Sós­í­alistar hyggj­ast útrýma fátækt á næsta ári. Í það minnst ber yfir­skrift þess kafla heitið „Útrýmum fátækt árið 2022“.  Til þess að svo megi verða á að leggja bann við skatt­lagn­ingu tekna sem eru undir lág­marks­fram­færslu. Mán­að­ar­leg fjár­hags­að­stoð Reykja­vík­ur­borgar, sem dæmi, er 212.694 krónur. Yrðu skatt­leys­is­mörk færð til þeirrar upp­hæðar má gera ráð fyrir að skatt­tekjur hins opin­bera drag­ast saman um 22 millj­arða. Væri miðað við lág­marks­laun, um 350 þús­und krónur, myndu skatt­tekjur drag­ast saman um hátt í 200 millj­arða króna. Hvernig á að afla fjár til að fylla í það gat er ekki skýrt í stefnu flokks­ins.

Þá á að tryggja að eft­ir­launa­fólk, öryrkjar, atvinnu­lausir, náms­fólk og þeir sem séu á fram­færi sveit­ar­fé­lag hafi tekjur sem mið­ist að lág­marki við lægstu umsömdu kjör á vinnu­mark­aði. Vernda þarf börn gegn fátækt og ekki á að taka gjöld af heil­brigð­is­þjón­ustu þeirra, menntun, tóm­stundum, sam­göngum eða annarri þjón­ustu. Þá eiga börn að njóta per­sónu­af­sláttar hjá skatti eins og full­orðnir. Öll heil­brigð­is­þjón­usta á að vera gjald­frjáls að mati Sós­í­alista­flokks­ins. Ekki kemur fram hvað þessar aðgerðir myndu kosta en ljóst er að kostn­að­ur­inn hleypur á millj­örðum.

Boða auðlegðarskatt og hátekjuskatt

Um skatta­mál í stærra sam­hengi segir í stefnu­skrá Sós­í­alista að lækka eigi skatta á miðl­ungs og lægri tekjur og er þar miðað við að lækkun skatt­byrði á þær nemi um 700 þús­und krónum á ári. Ekki er lagt mat á það hversu mikið tekjur rík­is­sjóðs myndu skerð­ast við það en aug­ljóst er að um tugi millj­arða er að ræða. Á síð­asta ári námu tekjur rík­is­ins vegna skatta á tekjur og hagnað ein­stak­linga tæpum 211 millj­örðum króna og fram­telj­endur voru um 312.500 tals­ins.

Flokk­ur­inn vill á móti taka upp auð­legð­ar­skatt, tvö pró­sent á hreina eign umfram 200 millj­ónir króna og upp í níu pró­sent hjá hjónum sem eiga yfir 10 millj­arða króna. Sós­í­alistar vilja þá að fjár­magnstekjur verði skatt­lagðar eins og launa­tekjur. Það hafi einnig þann kost að þegar búið sé að fella launa­tekjur og fjár­magnstekjur undir sama skatt­kerfi sé einnig hægt að leggja á hátekju­skatt á heild­ar­tekjur. Hugmynd Sós­í­alista er að leggja á 60 pró­senta skatt á tekjur umfram fimm millj­ónir króna á mán­uði, 75 pró­sent á tekjur umfram 20 millj­ónir og 90 pró­sent á tekjur umfram 50 millj­ónir á mán­uði.  Ekki kemur fram hvað Sósílistar telja að þessar aðgerðir muni skila háum fjár­hæðum í rík­is­sjóð en til­greint er að mat flokks­ins sé að innan við eitt pró­sent skatt­greið­enda myndi greiða auð­legð­ar­skatt.

Enn fremur vill flokk­ur­inn að erfða­fjár­skattur verði þrepa­skiptur á sama hátt og tekju­skattur. Skatt­leys­is­mörk yrðu hins vegar hærri, 60 millj­ónir, og miða Sós­í­alistar þar við „gott íbúða­verð“.

Svo vikið sé aftur að áætlun Sós­í­alista um að útrýma fátækt á næsta ári vill flokk­ur­inn hækka barna­bætur í rúm­lega 50 þús­und krónur á mán­uði. „Að hluta til yrði hækk­unin fjár­mögnuð með bratt­ari skatt­stiga og hátekju­þrepum,“ segir í stefnu flokks­ins. Sömu­leiðis á að hækka á hús­næð­is­bætur.

Hyggjast brjóta upp sjávarútvegsfyrirtækin

Miklu púðri er eytt í umfjöllun um sjáv­ar­út­vegs­mál, þar sem Sós­í­alistar vilja gjör­bylt­ingu. Flokk­ur­inn vill leggja niður kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi í núver­andi mynd, enda hafi það þró­ast frá upp­haf­legu mark­miði þess, að vernda fiski­stofna, yfir í einka­væð­ingu fiski­mið­anna sem í reynd séu í eigu almenn­ings.

Veiði­gjöld á að inn­heimta við löndun og stinga Sós­í­alistar upp á að þau yrðu 24 pró­sent af verð­mætum afl­ans, sem myndi færa rík­is­sjóði 35 millj­arða króna á ári miðað við afla­verð síð­asta árs. Veiði­gjöld renni bæði til sveit­ar­fé­laga og til ríkis. Veiði­gjöld síð­asta árs skil­uðu hinu opin­bera tæpum fimm millj­örðum króna svo Sós­í­alistar meta auk­inn ábata af eigin kerfi á 30 millj­arða króna, fyrsta kastið í það minnsta.

„Þegar stór­fyr­ir­tækjum er leyft að vaxa sam­fé­lag­inu yfir höfuð þá verða þau að skað­valdi og það ber að bregð­ast við þeim sem slíkum“

Samkvæmt stefnu flokks­ins yrðu settar á tak­mark­anir á umfang stór­út­gerða og þær brotnar upp í tvö eða fleiri félög. Að sama skapi verði óheim­ilt að sömu fyr­ir­tæki sinni bæði veiðum, vinnslu og sölu afurða. Það sé gert til að koma í veg fyrir að fyr­ir­tækin geti selt afurð­irnar í útlöndum með það að mark­miði að geta „falið þar gróð­ann“. Samherji er sér­stak­lega til­greindur sem dæmi um fyr­ir­tæki sem þyrfti að kljúfa upp, bæði langsum og þversum eins og það er orðað. „Yfir­gangur og frekja þessa fyr­ir­tækis ætti ekki að koma neinum á óvart. Þegar stór­fyr­ir­tækjum er leyft að vaxa sam­fé­lag­inu yfir höfuð þá verða þau að skað­valdi og það ber að bregð­ast við þeim sem slíkum.“

Sós­í­alista­flokkur Íslands boðar sér­staka rann­sókn á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. „Í ljósi Sam­herj­a­máls­ins verði fimm stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin rann­sökuð til að kanna hvort þar hafi mútum verið beitt, fisk­verð falsað, sjó­menn hlunn­farnir, skotið undan skatti, arður af rekstr­inum og auð­lind­inni fal­inn í aflöndum eða brotið með öðrum hætti gegn sam­fé­lag­inu. Ef stór­felld svik koma í ljós við þessar rann­sóknir verður efnt til rann­sóknar á næstu fimm útgerð­ar­fyr­ir­tækjum.“

Flokk­ur­inn vill þá að bundið verði í stjórn­ar­skrá að fisk­veiði­auð­lindin sé eign þjóð­ar­innar. Almenn­ingur, val­inn með slembivali, móti fisk­veiði­stefn­una til lengri tíma, á svoköll­uðum fiski­þingum, með upp­lýs­ingum og grein­ingum frá sér­fræð­ingum. Loka á núver­andi kvóta­kerfi strax og taka upp daga­kerfi þar til umtöluð fiski­þing hafa farið fram. Þá verði hand­færa­veiðar gefnar frjálsar fimm daga í viku frá mars til októ­ber. 

Ryðja dómstóla ef þörf krefur

Flokk­ur­inn hyggst ráð­ast að rótum spill­ingar, eins og það er orðað. Með því er átt við að auka skuli gagn­sæi hjá hinu opin­bera og skráðum fyr­ir­tækjum. Að skoð­ana- og tján­ing­ar­frelsið verði styrkt með því að styrkja blaða­menn beint „í stað þess að styrkja rit­stjórnir fjöl­miðla í eigu auð­fólks“. Flokk­ur­inn vill auka sjálf­stæði Rík­is­út­varps­ins og breyta rekstri þess frá því opin­beru hluta­fé­lagið yfir í stofnun að nýju. Efla á hags­muna­skrán­ingu vald­hafa, og auka raun­veru­lega ábyrgð þeirra. Auka þarf virka vernd upp­ljóstr­ara að mati flokks­ins.

„Leggja af ráð­herra­bíla, einka­bíl­stjóra og allt slíkt snobb og tildur“

Styrkja þarf sjálf­stæði dóm­stóla eftir því sem kemur fram í stefnu Sós­í­alista­flokks­ins. „Ryðja dóma ef þess ger­ist þörf til að vinda ofan af spill­ingu lið­inna ára­tuga.“ Með hvaða hætti hreinsa á út úr dóm­stól­unum, hvernig lagt verði mat á hvort þess sé þörf eða hverjir taki þá ákvörðun, er ekki skýrt. Ekki er heldur skýrt í hverju spill­ing lið­inna ára­tuga innan dóms­kerf­is­ins felst.

Sós­í­alistar segja að auka þurfi sjálf­stæði lög­reglu og vernda hana gegn afskiptum fram­kvæmda­valds, styrkja efna­hags­brota­deild­ina, svo og skatt­rann­sóknir. Auka á sjálf­stæði ákæru­valds og vernda það gegn afskiptum fram­kvæmda­valds­ins.

Undir yfir­skrift­inni „Burt með elítu­stjórn­mál“ lofa Sós­í­alistar að þing­menn flokks­ins lækki laun sín, með því að gefa hluta þeirra til Vor­stjörn­unnar, styrkt­ar­sjóðs sem styður hags­muna­bar­áttu þeirra sem verr eru settir í sam­fé­lag­inu. Við fyrsta tæki­færi munu Sós­í­alistar síðan lækka laun kjör­inna full­trúa, „leggja af ráð­herra­bíla, einka­bíl­stjóra og allt slíkt snobb og tildur.“

Vilja lækka álögur á jarðefnaeldsneyti

Í umhverf­is­málum vilja Sós­í­alistar að auknar kröfur verði settar á fyr­ir­tæki um hrað­ari end­ur­nýjun og úreld­ingu eldri öku­tækja. Ekki eru sömu kröfur gerða á almenn­ing þrátt fyrir að flokk­ur­inn sé þeirrar skoð­unar að almennt eigi að end­ur­nýja bíla­flot­ann. „Dregið verði úr álögum á elds­neyti þar sem mörg heim­ili eiga engan annan kost um sinn en að styðj­ast við öku­tæki sem eru knúin meng­andi orku­gjöfum.“ Þessi stefna flokks­ins er að flestu leyti frá­brugðin stefnum ann­arra flokka. Margir aðrir flokkar hafa á sinni stefnu­skrá að láta þá sem menga greiða fyrir þá mengun, kerf­is­breyt­ingar séu í þá átt að draga úr losun en ekki í hina átt­ina. Þá gerir flokk­ur­inn að til­lögu sinni að hinir tekju­lægstu verði styrktir beint til að kaupa, leigja eða nota far­ar­tæki sem gangi fyrir hreinni orku.

Flokk­ur­inn vill stór­bæta almenn­ings­sam­göngur, ekki síst milli lands­hluta, sem verði á vegum opin­berra aðila en ekki með útboði. Hugað verði sér­stak­lega að bættum almenn­ings­sam­göngum milli Reykja­víkur og Kefla­vík­ur­flug­vallar.

Flokk­ur­inn boðar nýtt grænt hag­kerfi, þar sem allir sem vilja og geta fá störf í skóg­rækt. Verk­efnið yrði hluti af atvinnu­fram­boðs­trygg­ingu. Bændum sem vilji draga úr sauð­fjár­rækt bjóð­ist rausn­ar­legir styrkir til að hefja græna verð­mæta­sköpun, meðal ann­ars í skóg­rækt.

Lofa 30 þúsund íbúðum

Undir byggða­málakafla stefnu­skrár Sós­í­alista fellir flokk­ur­inn meðal ann­ars heil­brigð­is­mál og vill byggja upp gjald­frjálst og rík­is­rekið heil­brigð­is­kerfi á lands­byggð­inni, svo fólk þurfi ekki að sækja heil­brigð­is­þjón­ustu um langan veg frá heima­byggð.

Byggja á upp þrjá­tíu þús­und íbúðir á 10 árum um land allt, með áherslu á ódýrt og gott íbúð­ar­hús­næði í félags­legum rekstri segir í stefn­unni. Hvernig það verður gert kemur ekki fram í stefnu flokks­ins. Ekki er minnst á hvaðan lóðir undir umræddar þrjá­tíu þús­und íbúðir eigi að koma, ekki segir heldur hvort ríkið eigi að fjár­magna bygg­inga­fram­kvæmd­irnar, hvort ein­göngu sé um að ræða leigu­í­búðir í félags­legum rekstri eða hvort ein­hverjar íbúð­anna verði sér­eign. Ekki kemur fram hvernig dreifa eigi umræddum íbúðum um landið, hvort einka­að­ilar í bygg­inga­geir­anum muni byggja þær eða hvort Sós­í­alistar stefni að því að hið opin­bera setji á fót bygg­inga­fyr­ir­tæki.

Sós­í­alistar boða land­bún­að­ar­stefnu þar sem áhersla er lögð á smærri og milli­stór býli og upp­bygg­ingu fjöl­skyldurek­innar og sam­vinnu­rek­innar ferða­þjón­ustu. Ekki er frekar skýrt hvað átt er við með smærri og með­al­stórum býlum og ekki er til­greint hvaða búgreina verið er að vísa til. Sós­í­alistar vilja þá auka nýsköpun í land­bún­aði, einkum ylrækt og líf­ræna fram­leiðslu. Veita á afslátt á raf­orku­verði til ylræktar. Flokk­ur­inn vill setja búsetu­skyldu eða aðrar kvaðir á jarðir sem seldar eru. 

Í sam­göngu­málum leggur flokk­ur­inn áherslu á að vega­kerfið allt verði gjald­frjálst og fram­kvæmdir kost­aðar úr rík­is­sjóði. 

Ráðast gegn ofbeldisfaraldrinum

Sós­í­alista­flokkur Íslands boðar aðgerðir til að stöðva það sem þau kalla ofbeld­is­far­ald­ur­inn. Kominn sé tími á opin­berar aðgerðir til að taka á kyn­bundnu ofbeldi, sem og stofn­ana­bundnu ofbeldi. Flokk­ur­inn vill setja á lagg­irnar ofbeld­is­eft­ir­lit sem rann­saki eftir ábend­ingum eða að eigin frum­kvæði vinnu­staði, skóla og aðra opin­bera staði og hafi vald til að bregð­ast við þar sem sýnt er að ofbeldi og áreitni grass­erar „fjar­lægja ofbeld­is­menn, svipta staði starfs­leyfi og beita öðrum leiðum til að tryggja starfs­fólki, nemum og gestum öryggi“.

Þá vill flokk­ur­inn að sjálf­stæð lög­reglu- og ákæru­stofnun verði sett á lagg­irnar sem sér­hæfi sig í rann­sókn og máls­með­ferð kyn­bund­inna ofbeld­is­mála. Brota­þolar fái gjaf­sókn til að reka einka­mál. Ávallt á að fjar­lægja brota­menn af heim­ilum ef um heim­il­is­of­beldi er að ræða. Vernda þarf brota­þola fyrir brota­mönnum. Reka á heim­ili fyrir brota­menn sem ekki sæta fang­els­is­vist eða gæslu­varð­haldi.

Þróa á náms­efni í kynja­fræði, um kyn­ferð­is­of­beldi og annað ofbeldi og það inn­leitt fyrir alla árganga leik-, grunn- og fram­halds­skóla. Auk þess á að vinna fræðslu­efni fyrir allan almenn­ing. Þróa á nám­skeið fyrir öll sem vinni með börnum, starfs­fólk heil­brigð­is­stofn­ana og fólks sem vinnur með fötl­uðum til að auka þekk­ingu á merkjum um ofbeldi, hvernig hægt sé að koma í veg fyrir það og bregð­ast við. Allir sem starfa í umræddum geirum ljúki slíkum nám­skeiðum. Sömu kröfur verði gerðar til yfir­manna í opin­berum stofn­unum og til einka­fyr­ir­tækja sem eigi í við­skiptum við hið opin­bera.

Tryggja á brota­þolum með­ferð við áföllum og hið opin­bera skal greiða sann­girnis- og miska­bætur til þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi og skaða en geta ekki sótt bætur í einka­málum.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur verið á tals­verðri sigl­ingu í skoð­ana­könn­unum síð­ustu vikur. Flokk­ur­inn bauð ekki fram til Alþingis við síð­ustu kosn­ingar en fengi kjörna þing­menn í kosn­ing­unum 25. sept­em­ber næst­kom­andi ef marka má kann­anir.

Í könnun Maskínu sem birt var á Vísi í gær mæld­ist flokk­ur­inn með 7,9 pró­senta fylgi, sem myndi að lík­indum skila flokknum fjórum til fimm alþing­is­mönnum. Í könnun MMR fyrir Morg­un­blaðið sem birt var 6. sept­em­ber mæld­ist flokk­ur­inn með 8,1 pró­senta stuðn­ing sem blaðið mat sem svo að myndi skila flokknum fjórum kjörnum þing­mönnum. Í þjóð­ar­púlsi Gallup frá því 30. ágúst síð­ast­liðnum mæld­ust Sós­í­alistar með 8,2 pró­senta fylgi sem myndi sam­kvæmt könn­un­inni duga til þess að fá fimm þing­menn kjörna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár