Rukka inn á drullusvað

Bíla­stæði sem land­eig­endur við eld­gosið rukka inn á er drullu­svað og ófært að stórum hluta.

Land­eig­endur að jörð­inni Hrauni, sem nær yfir gossvæðið í Geld­inga­dölum, tóku upp gjald­töku fyrir mán­uði síðan á bíla­stæði við eld­gosið. Að sögn tals­manns land­eig­anda var gjald­skylda „óum­flýj­an­leg“ til þess að leggja ný bíla­stæði á svæð­inu. 

Göngu­fólk sem kemur hefur á svæðið und­an­farna daga hefur veitt því eft­ir­tekt að bíla­stæðið sem rukkað er inn á er að miklu leyti ófært fólks­bílum og jafn­vel stærri bílum. Þannig er bíla­stæði sem stendur næst Nátthaga að meiri hluta drullu­svað. Engu að síður stendur yfir gjald­taka á svæð­inu. Þannig er ferða­löngum mætt með með skilti þar sem ítrekað er að greiða eigi fyrir bíla­stæðið: „Gjald­taka er nauð­syn­leg til að auka öryggi, bæta aðgengi og þjón­ustu og til þess að vernda nátt­úr­una. Takk fyrir að sýna því skiln­ing,“ segja land­eig­endur á til­kynn­ing­ar­skiltum á svæð­inu.

Eftir göngu að eld­gos­inu um helg­ina heyrð­ust erlendir ferða­menn kvarta undan því að skór þeirra hefðu fyrst orðið skítugir við lok göng­unnar þegar þeir fóru yfir bíla­stæðið.

Engar upp­lýs­ingar eru gefnar um hvernig má ná sam­bandi við sölu­að­il­ann og ekki er að sjá að veitt sé þjón­usta önnur en notkun bíla­stæðis. Á sama tíma hafa ferða­menn gert sér að leik að ganga ofan á nýstorkn­uðu hraun­inu með til­heyr­andi hættu á að brenna af völdum hraun­strauma sem legið geta undir hell­unni.

Bíla­stæðiðTún hafa verið nýtt undir bíla­stæði gegn gjaldi, en ástand þeirra var svona um helg­ina.
Ferða­menn kanna gjald­skylduVið upp­hafið að göngu­leið­inni í Nátthaga er annað skilti með áminn­ingu um að greiða bíla­stæða­gjald.
LagtVestari hluti bíla­stæð­is­ins er betur far­inn en sá eystri.

Fram hefur komið að raf­rænt eft­ir­lit sé fyr­ir­hugað og að þannig muni greiðslan ekki vera val­kvæð. 

Grinda­vík­ur­bær hefur þegar fengið 10 millj­óna króna styrk úr Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða til að bæta aðgengi að gossvæð­inu og „útbúa púða fyrir aðstöðu­sköpun ásamt sal­ern­is­að­stöðu, bíla­stæði, skilti og merk­ingar“.

Land­eig­endur og jafn­vel opin­berir aðilar hafa sýnt vax­andi til­hneig­ingu til að inn­heimta gjald af fólki fyrir að sjá nátt­úr­una. Þannig ákv­aðu eig­endur félags­ins Power Minerals Iceland að hefja gjald­töku inn á Mýr­dals­sand og rukka þannig aðgang fyr­ir­tækja að svæð­inu sem telur meðal ann­ars Hjör­leifs­höfða, Hafursey og Kötlu­jökul, undir þeim for­merkjum að tak­marka umferð á svæð­inu og stöðva utan­vega­akstur. Þá hefur bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar í hyggju að rukka meðal ann­ars fyrir aðgang að hvera­svæð­inu Seltúni í Krýsuvík og síðar hell­inum Leið­ar­enda við Blá­fjalla­veg. Í Hvera­gerði hyggst bæj­ar­stjórnin semja við Örygg­is­mið­stöð­ina um að fram­fylgja inn­heimtu á gjaldi við Reykja­dal.

Stundin hefur ekki náð sam­bandi við tals­mann land­eig­enda að Hrauni í þess­ari viku til að spyrja út í gjald­tök­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár