Eva Joly um rannsóknina á Samherja: „Það er skortur á vilja til að rannsaka þá sem skapa velsæld í landinu“

Fransk norski lögfræð­ing­urinn Eva Joly segir að Samherji sé það valda­mikill á Íslandi að lítill áhugi sé á því að rannsaka Namibíu­málið. Tekið er viðtal við Evu í þýska blaðinu Süddeutsche Zeitung í dag þar sem fjallað er um Namibíu­málið og uppljóstr­arann Jóhannes Stef­ánsson.

Gagnrýnir rannsóknina á Íslandi
Gagn­rýnir rann­sókn­ina á Íslandi Eva Joly gagn­rýnir rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins á Íslandi í við­tali við Süddeutsche Zeitung. Mynd: Kristinn Magnússon

Fransk-norski lögfræðingurinn Eva Joly segir að á Íslandi ríki áhuga­leysi á að rannsaka fjár­sterka aðila sem skapa velsæld í landinu. Joly vísar með orðum sínum til rann­sóknarinnar á Samherja­málinu í Namibíu á Íslandi. Þessi orð lætur hún falla í viðtali við þýska blaðið Süddeutsche Zeitung í dag.

Í greininni þar sem vitnað er til orða Joly er fjallað um Namibíumál Samherja í löngu og ítarlegu máli og er sérstakur fókus á uppljóstrarann Jóhannes Stef­ánsson og sjúkra­sögu hans. Jóhannes hefur haldið því fram að eitrað hafi verið fyrir sér þegar hann starfaði sem framkvæmda­stjóri Samherja í Namibíu. Orðrétt segir Joly í viðtalinu. „Það er skortur á vilja til að rannsaka þá sem skapa velsæld í landinu.“

Joly hefur verið lögfræði­legur ráðgjafi Jóhannesar frá því Namibíu­málið kom upp í umfjöllunum Wikileaks, Kveiks, Stundarinnar og Al Jazeera í nóvember árið 2019 og er hún því einn af þeim aðilum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár