„Einstakur atburður“ í sögu þjóðar

Leita þarf sjö þús­und ár aftur í tím­ann eftir sam­bæri­legu eld­gosi og því sem nú stendur yfir á Reykja­nesskaga. Kristín Jóns­dóttir eld­fjalla- og jarð­skjálfta­fræð­ingur telur lík­legt að gosið geti staðið um tals­verða hríð en ólík­legt sé að það standi árum saman. „Dáleið­andi feg­urð sem jafn­ast ekki á við neitt sem maður hefur séð,“ segir Andri Snær Magnason rit­höf­undur.

„Einstakur atburður“ í sögu þjóðar
Mæðgurnar Ásta Þor­leifs­dóttir og Lilja Steinunn Jóns­dóttir. Mynd: Heida Helgadottir

Hraun­rennsli úr eld­gos­inu við Fagra­dals­fjall í Geld­inga­dölum hefur verið jafnt og stöðugt frá því byrj­aði að gjósa 19. mars síð­ast­lið­inn. Það gefur til­efni til að ætla að gosið geti staðið yfir um nokkuð langa hríð en þó er ekki lík­legt að gosið muni standa árum saman. Hraun­rennslið er hins vegar fremur lítið, svo lítið að ekki þarf að draga mikið úr því til að gos­rásin stíflist og gos­inu ljúki þar með.

Eldgosið sem um ræðir er ein­stakur atburður að því marki að leita þarf aftur um sjö þús­und ár til að finna sam­bæri­legt gos á Reykja­nesskaga, segir Kristín Jóns­dóttir, eld­fjalla- og jarð­skjálfta­fræð­ingur og hóp­stjóri nátt­úru­vár­vökt­unar hjá Veð­ur­stofu Íslands. „Gos á Reykja­nesi var kannski komið á tíma ef við skoðum sjö, átta hund­ruð ár aftur í tím­ann en að það skyldi ger­ast akkúrat núna, á þessum tímum sem við lifum, er í raun ein­stakt. Þetta gos hefði alveg eins getað orðið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár