Myndlist tileinkuð Kópavogi og blokkinni sem var heilt þorp

Fjórir mynd­list­ar­menn eiga verk á sýn­ing­unni Skýja­borg í Gerð­ar­safni en það eru þau Eirún Sig­urð­ar­dóttir, Berglind Jóna Hlyns­dóttir, Bjarki Bragason og Unnar Örn Auðarson. Verk Eirúnar tengj­ast þeim árum sem hún bjó í fjöl­býl­is­hús­inu við Engi­hjálla 3.

Myndlist tileinkuð Kópavogi og blokkinni sem var heilt þorp

Kópa­vogur er það sem öll lista­verk mynd­list­ar­mann­anna fjög­urra eiga sam­eig­in­legt á sýn­ing­unni Skýja­borg í Gerð­ar­safni, en það eru þau Eirún Sig­urð­ar­dóttir, Berglind Jóna Hlyns­dóttir, Bjarki Bragason og Unnar Örn Auðarson. Brynja Sveins­dóttir og Klara Þór­halls­dóttir eru sýn­ing­ar­stjórar. Sýningin þykir vitna um háleitar áætl­anir í bænum á stórum og smáum skala, svo sem ein­stak­linga sem byggðu sér heim­ili úr nið­ur­níddum kofa, ung pör sem reistu fjöl­býli sem og sam­tök íbúa sem létu til sín taka í mál­efnum bæj­ar­fé­lags­ins og til dæmis um það hvernig land­svæðið er hrá­efni til breyt­inga og upp­bygg­ingar en á kostnað þess sem var. Þess má geta að fólk getur hlustað á mynd­list­ar­menn­ina lýsa verkum sínum í gegnum hlað­varp sem Gerð­ar­safn býður gestum sýn­ing­ar­innar upp á og þarf að verða sér úti um kóða. Þetta getur fólk jafn­vel gert heima hjá sér. 

Mynstrin

„Þessi sýn­ing er tengd Kópavogi á mis­mun­andi vegu og mynd­list­ar­menn­irnir fjórir tengja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár