Horft er eftir vegi 408, upp Elliðavatnsheiðina í Heiðmörk. Svæðið var friðað árið 1950 og er stærsta útivistarsvæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins - heilir 32 ferkílómetrar að stærð og göngustígar þar spanna yfir 40 kílómetra. Innan Heiðmerkur eru Gvendarbrunnar sem hafa verið vatnsból Reykvíkinga síðan 1909 og sjá nú rúmlega 60% landsmanna fyrir fersku vatni. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur umsjón með svæðinu, sem liggur í túnfæti Reykjavíkur.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir (1)