Íslenskunemi sér fram á brottvísun úr landi

Erlendir nem­endur sem eiga upp­runa­land utan Evrópu þurfa að stand­ast strangar kröfur frá Útlend­inga­stofnun. Auk þess að stand­ast fullt nám á hverju miss­eri þarf það líka að sýna fram á að það hafi trygga afkomu, þrátt fyrir að mega aðeins vinna 40 pró­sent starf.

Íslenskunemi sér fram á brottvísun úr landi
Stendur frammi fyrir brott­vísun Kelsey Paige Hopkins hefur stundað nám við Háskóla Íslands í sex ár en stendur nú frammi fyrir því að verða vísað úr landi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Sex ára dvöl mín hefur verið linnu­laus þrekraun út af þessum málum,“ segir banda­rískur nemi í íslensku, sem hefur stundað nám við Háskóla Íslands og unnið við fræðslu­störf, en stendur frammi fyrir því að vera vísað úr landi.

Hún segir að þeir útlend­ingar utan Evrópu sem leggi á sig að stunda nám hér þurfi að eiga við mis­kunn­ar­laust kerfi sem „hefur það hlut­verk að halda útlend­ingum úti“.

Námsmenn og verka­fólk utan Evrópu sem leggur land undir fót þarf á hverju ári að sýna fram á að það hafi trygga afkomu þegar það end­ur­nýjar dval­ar­leyfi sitt. Fram­færslu­við­mið Útlend­inga­stofn­unar hefur verið tengt við fjár­hags­að­stoð Reykja­vík­ur­borgar, en hún er 27.000 krónum hærri en náms­lán LÍN. Til að mæta þessu við­miði hafa erlendir náms­menn aðeins leyfi til að vinna 40 pró­sent starf með námi. Algengt er að náms­menn þurfi að beita klækja­brögðum til að stand­ast þessi við­mið. 

Framfærsluviðmið hærri en tekjumöguleikar

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár