Mynd: Páll Stefánsson

Unglingsárin voru tekin af mér

Ung kona sem var á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi í tvö ár seg­ist vilja að tíma­bilið þegar Ingj­aldur Arn­þórs­son stýrði heim­il­unum verði rann­sakað. Hún seg­ist vilja fá við­ur­kenn­ingu á því að hún hafi verið beitt kerf­is­bundnu ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu þegar hún var barn. Ung­lings­árin hafi verið tekin af henni.

„Ég vissi ekk­ert hvað var að ger­ast, ég vissi ekk­ert um þetta heim­ili, ég var alger­lega aftengd umhverfi mínu og lifði í ótta sem átti eftir að fara versn­andi.“ Svona lýsir ung kona, sem ekki vill koma fram undir nafni, líðan sinni þegar hún var á leið­inni norður á með­ferð­ar­heim­lið Lauga­land þar sem hún átti eftir að vera í tvö ár. Hún kom árið 2003, þá þrettán ára gömul. „Ég hafði orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og glímdi því við mikla and­lega van­líðan og var lögð inn á Barna- og ung­linga­geð­deild­ina um tíma en ég var ekki með fíkni­vanda heldur var þetta kall­aður hegð­un­ar­vandi,“ segir hún.  

„Ég var skelfingu lostin“

Hún segir að fyrsta dag­inn á Lauga­landi hafi Áslaug, eig­in­kona Ingjalds, farið með hana inn í her­bergi og skipað henni að afklæð­ast svo að hún gæti athugað hvort hún væri að smygla ein­hverju inn á heim­ilið sem ekki mætti vera …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár