Ekki eða mjög ólíklega tengsl milli bólusetninga og dauðsfalla - Þó ekki hægt að útiloka eitt tilvik

Í fjórum til­vikum af fimm þar sem til­kynnt var um alvar­leg atvik, and­lát og veik­indi, eftir bólu­setn­ingar við Covid-19 var ekki eða mjög ólík­lega um orsaka­sam­band að ræða. Í einu til­viki var ekki hægt að úti­loka tengsl en þó talið lík­legra að and­lát ein­stak­lings hafi átt sér skýr­ingar í und­ir­liggj­andi ástandi hans.

Rann­nsókn emb­ættis land­læknis á til­kynn­ingum um hugs­an­legar alvar­legar auka­verk­anir eftir bólu­setn­ingu við Covid-19 leiddi í ljós að í fjórum til­vikum af fimm var ekki eða mjög ólík­legt að um tengsl væri að ræða. Í einu til­viki var ekki hægt að úti­loka tengsl með vissu en þó er lík­legra að und­ir­liggj­andi ástand ein­stak­lings­ins hafi verið orsökin.

Þetta kom fram í máli Ölmu Möller land­læknis á upp­lýs­inga­fundi emb­ættis land­læknis og almanna­varna nú áðan. Rann­sóknin laut að fimm til­kynn­ingum um alvar­leg atvik, fjórum and­látum og einum alvar­legum veik­indum. Tveir sér­fræð­ingar í öldr­un­ar­lækn­ingum fóru ítar­lega yfir gögn og sjúkra­sögu þess­ara fimm ein­stak­linga og lögðu mat á hvort að um hugs­an­leg orsaka­tengsl væri að ræða milli bólu­setn­ingar og umræddra alvar­legra atvika.

„Nið­ur­staða þeirra er að í fjórum þess­ara til­vika sé ekki eða mjög ólík­lega um orsaka­tengsl að ræða en í einu til­viki var ekki hægt að úti­loka tengsl með vissu, þótt lík­lega hefði and­látið fremur átt skýr­ingar í und­ir­liggj­andi ástandi þess ein­stak­lings,“ sagði Alma. Þeir læknar sem sinntu umræddum ein­stak­ling munu fá upp­lýs­ingar um rann­sókn­ina og munu þá geta upp­lýst aðstand­endur um nið­ur­stöð­urnar.

Þá var einnig kannað hvort and­lát væru fleiri þessar vikur heldur en í venju­legu ári og var það ekki. Áfram verður fylgst með þeirri töl­fræði. „Það verður að hafa í huga að íbúar hjúkr­un­ar­heim­ila lands­ins eru upp til hópa hrumir ein­stak­lingar, með fjölda lang­vinnra sjúk­dóma, fjöllyfja­með­ferð og færniskerð­ingu, og að með­al­tali þá and­ast um átján ein­stak­lingar úr þessum hópi á hverri viku,“ sagði Alma enn­fremur.

Sendar voru fyr­ir­spurnir til lyfja­stofn­una Evrópu og Norð­ur­land­anna um mögu­leg tengsl bólu­setn­inga og alvar­legra atvika. Um fá dauðs­föll hefur verið að ræða og almennt eru þau talin tengj­ast und­ir­liggj­andi sjúk­dómum.

Alma sagði að áfram þurfi að vega og meta í hverju til­viki hvort bólu­setja eigi eldri og hrum­ari ein­stak­linga, einkum ef ástand þeirra er nærri lífslokum. Ein­stak­lings­bundið mat fer fram í hverju til­viki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár