260. spurningaþraut: Þjóðverjar og Þýskaland

260. spurningaþraut: Þjóðverjar og Þýskaland

Þrautin frá í gær.

***

Allar spurn­ingar um sama þema þar eð númer þraut­ar­innar endar á núlli. Að þessu sinni ber ég niður í Þýska­landi.

Fyrri auka­spurn­ingin:

Þjóð­verjar eiga tonn af frá­bærum tón­skáldum fyrr og síðar, en færri mynd­list­ar­menn í allra fremstu röð. Þeir eru þó nokkrir og einn þeirra — sem uppi var um 1500 — mál­aði þessa sjálfs­mynd af sér. Hvað hét hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Þýska­land er stærra en Ísland. En hve mörgum sinnum stærra, svona gróft séð? Er Þýska­land 2 sinnum stærra, 3,5 sinnum stærra, 5 sinnum stærra eða 7,5 sinnum stærra en Ísland?

2.   Hversu margir eru Þjóð­verjar, sam­kvæmt nýj­ustu tölum? Hér má muna fimm millj­ónum til eða frá.

3.   Hvað gerð­ist merki­leg­ast og afdrifa­rík­ast til lengri tíma litið í þýskri sögu þann 18. jan­úar 1871?

4.   Claudia Schiffer var senni­lega fræg­asta kona Þýska­lands á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar. Hver er hennar atvinna?

5.   Angela Merkel er kansl­ari Þýska­lands eins og flestir vita. Fyrir hvað flokk situr hún í emb­ætti?

6.   Keppt hefur verið um þýska meist­ara­tit­il­inn í fót­bolta allt frá 1903, að vísu ekki alveg sleitu­laust. Flestir vita að Bayern München hefur unnið þýska meist­ara­tit­il­inn í karla­flokki oft­ast allra liða, en hvaða lið hefur unnið næstoft­ast? Það er að vísu meira en hálf öld síðan liðið vann síð­ast.

7.   Berlín er lang­fjöl­menn­asta borg Þýska­lands. Hvaða borg er næst fjöl­menn­ust?

8.   Hvaða þýskur rit­höf­undur skrif­aði skáld­sög­una Tin­tromm­una?

9.   Ótelj­andi orr­ustur hafa verið háðar á þýskri grund. Ein sú allra fjöl­menn­asta var háð á þremur dögum í októ­ber 1813. Þar sigr­aði sam­ein­aður her Rússa, ýmissa Þjóð­verja og fleiri her Napól­e­ons Frakka­keis­ara. Þetta varð upp­hafið að enda­lokum Napól­e­ons. Við hvaða þýsku borg er þessi örlaga­ríka orr­usta kennd?

10.   Þýsku systk­inin Sophie Scholl og Hans Scholl stóðu á sínum tíma fyrir hópi sem kall­að­ist Hvíta rósin. Fyrir starf Hvítu rós­ar­innar voru þau dregin fyrir dóm, dæmd til dauða og afhöfðuð. En hverju helg­aði Hvíta rósin sig, sem yfir­völdum fannst svo hættu­legt?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi þýska lista­kona?

 

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Þýska­land er um það bil 3,5 sinnum stærra en Ísland.

2.   83 millj­ónir, svo rétt telst vera allt frá 78 til 88.

3.   Þýska­land sam­ein­að­ist — að mestu. „Keis­ara­dæmi stofnað“ er ekki full­nægj­andi, þar sem sér­stak­lega er spurt um atburð er hafði langvar­andi afleið­ingar. Keis­ara­dæmið stóð jú „aðeins“ í 45 ár eða svá.

4.   Fyr­ir­sæta.

5.    Kristi­lega demókrata.

6.   Nürnberg.

7.   Hamborg.

8.   Grass.

9.   Leipzig.

10.   Andstöðu við nas­isma og Hitler.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Dürer.

Á neðri mynd­inni er Nina Hagen.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár