259. spurningaþraut: Að hverju leitar SETI og hver var Jan Janszoon?

259. spurningaþraut: Að hverju leitar SETI og hver var Jan Janszoon?

Jú, alveg rétt: Hér er hlekkur á þraut gær­dags­ins. Mig minnir að þú eigir hana eftir.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Við hvaða tæki­færi var myndin hér að ofan tekin?

***

Aða­spurn­ingar:

1.   Margaret Mitchell var rit­höf­undur og einn sá vin­sæl­asti í heimi, en bara út á eina bók, því fleiri gaf hún ekki út um sína daga. Hvað hét þessi vin­sæla bók Mitchell?

2.   Hver skrif­aði sög­una Sunnu­dags­kvöld til mánu­dags­morg­uns?

3.   Hvar á land­inu er Reyk­hóla­sveit?

4.   Banda­rískt tón­skáld heitir Philip Glass. Íslenskur tón­list­ar­maður gaf fyrir nokkrum miss­erum út túlkun sína á verkum hans. Hver er tón­list­ar­mað­ur­inn?

5.   Quetzalcoatl hét guð einn. Hvar í ver­öld­inni var hann í hávegum hafður. Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

6.   Hversu hár er Hvanna­dals­hnjúkur? Skekkju­mörk eru 2 metrar til eða frá.

7.   Í hvaða landi var Friðrik mikli kon­ungur á árunum 1740-1786?

8.   Jan Janszoon var hol­lenskur maður er fædd­ist í Haarlem árið 1575. Hann gerð­ist sjó­maður á unga aldri. Hver eru tengsl Jan Janszoons við íslenska sögu?

9.   SETI heitir stofnun ein, sem komið var á kopp­inn árið 1984 og hefur unnið að mark­miðum sínum sleitu­laust síðan. Mark­miðin fel­ast í leit að til­teknu fyr­ir­brigði, sem ekki hefur fund­ist ennþá, og sumir eru reyndar hálfsmeykir við til­hugs­un­ina ef það myndi nú finn­ast. En í reynd efast þó fáir um að þetta sé til og senni­lega mjög víða. Að hverju er SETI að leita?

10.   Árið 1929 varð hinn núver­andi Sjálf­stæð­is­flokkur til við sam­ein­ingu Frjáls­lynda flokks­ins og ... hvað hét hinn flokk­ur­inn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Húsið á mynd­inni hér að neðan var aldrei reist. Hvaða hús er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Gone With the Wind, eða Á hverf­anda hveli.

2.   Ásta Sig­urð­ar­dóttir.

3.   Á Vest­fjörðum.

4.   Víkingur Heiðar.

5.   Mið-Ameríku. 

6.   Hnjúk­ur­inn mælist vera 2,109.6 metrar, svo rétt dæm­ist vera 2.107-2.112.

7.   Prúss­landi. Þýska­land er að sjálf­sögðu ekki rétt.

8.   Hann var einn af leið­togum hins svo­nefnda Tyrkja­ráns. Nóg er að kann­ast við Tyrkjaránið, annað skiptir ekki máli í þetta sinn.

9.   Lífi í alheim­inum, geim­verum.

10.   Íhalds­flokk­ur­inn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni kveður Nixon Banda­ríkja­for­seti Hvíta húsið 1974 eftir að hafa neyðst til að segja af sér. „Afsögn“ og „Nixon“ dugar.

Á neðri mynd­inni er stöðv­ar­hús vatns­afls­virkj­unar sem fossa­fé­lagið Títan hugð­ist reisa við Urriða­foss í Þjórsá. Hér er nóg að vita að málið snýst um „virkjun“ og nefna þarf ann­að­hvort Títan eða Einar Bene­dikts­son, frum­kvöðul félags­ins. 

***

Og ef þú átt þraut gær­dags­ins enn eftir, þá er hér aptur hlekkur á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár