255. spurningaþraut: Hver af þessum eyjum er sjálfstætt ríki – Galapagos-eyjar, Nauru, Páskaeyja, Pitcairn eða Tahiti?

255. spurningaþraut: Hver af þessum eyjum er sjálfstætt ríki – Galapagos-eyjar, Nauru, Páskaeyja, Pitcairn eða Tahiti?

Þrautin. Síðan. Í. Gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Hver er hin dapra kona á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða landi er borgin Þessa­lónika eða Saloniki?

2.   Hvaða dag­blað var stofnað í Reykja­vík árið 1910?

3.   Hvaða gyðja í nor­rænni goða­fræði gætir eplanna, sem tryggja goð­unum eilífa æsku?

4.   Hvað af fót­bolta­lið­unum í London hefur oft­ast unnið enska meist­ara­tit­il­inn frá upp­hafi?

5.   Hvað hét yngri bróðir Grettis Ásmund­ar­sonar, sem fylgdi honum að lokum í útlegð og dauða?

6.   Fyrsti for­sæt­is­ráð­herra í landi nokkru hét Pehr Svin­hufvud. Seinna varð hann for­seti lands­ins. Hvaða land var þetta?

7.   Marla Maples heitir banda­rísk leik­kona sem reyndar þykir ekki meðal hinna öfl­ug­ustu í sínu fagi. Hún hefur aðal­lega leikið í frekar klénum sjón­varps­þáttum. Enda er til­kall Maples til frægðar allt annað en það sem hún hefur feng­ist við í vinn­unni. Hvað er Marla Maples fræg­ust fyrir?

8.   Stromboli heitir nátt­úru­fyr­ir­brigði eitt. Fyrir hvað er það frægt?

9.   Hver af þessum eyjum í Kyrra­hafi er sjálf­stætt ríki: Galapa­gos-eyjar, Nauru, Páska­eyja (Rapa Nui), Pitcairn eða Tahiti?

10.   Hvaða á fellur til sjávar rétt við borg­ina New Orleans?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Hvað heita herra­menn­irnir á þessu flotta mót­or­hjóli á mynd­inni hér að neðan?

Myndin var tekin árið 1919.

Athugið að þið eigið í raun­inni alls ekki að þekkja menn­ina í sjón, auk þess sem mynd­gæðin eru ekki mikil.

Það þarf því svo­lítið hug­mynda­flug til að leysa þessa þraut.

En það á alveg að vera hægt samt!

*** 

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Grikk­landi.

2.   Vísir.

3.   Iðunn.

4.   Arsenal.

5.   Illugi.

6.   Finnland.

Maria Maples

7.   Hún var eig­in­kona Donald Trumps númer tvö.

8.   Þar eru nær stöðug eld­gos. (Þetta er eyja nálægt Ítal­íu­ströndum.)

9.   Nauru.

10.   Miss­issippi.

***

Alex­andra og Nikulás II

Svör við auka­spurn­ingum.

Konan á efri mynd­inni er Alex­andra, síð­asta keis­ara­ynja Rúss­lands.

Hún hafði svo sann­ar­lega ástæðu til að vera döpur enda fór allt hennar líf í hunda, ekki síst fyrir til­verknað hennar sjálfrar.

Á neðri mynd­inni má sjá þá félaga Harley og Davidson á einu af fyrstu mót­or­hjól­unum sem þeir fram­leiddu í sam­ein­ingu.

***

Og hér er svo aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár