253. spurningaþraut: Akhenaton, tófú og söngglöð bandarísk fjölskylda

253. spurningaþraut: Akhenaton, tófú og söngglöð bandarísk fjölskylda

Hér leyn­ist hlekkur á þraut­ina frá í gær, skilj­iði.

***

Auka­spurn­ing fyrri:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Á árunum 1970-1975 hélt banda­rísk fjöl­skylda úti söng­flokki sex bræðra, auk þess sem Marie systir þeirra var líka söng­kona og kom stöku sinnum fram með bræðrum sínum. Tón­listin sem fjöl­skyldan flutti þótti hvorki djúp né fram­sækin, heldur var um að ræða popp af allra ein­föld­ustu gerð. Þetta popp náði þó miklum vin­sældum og yngri drengirnir þóttu bæðir sætir og prúðir. Hvað var ætt­ar­nafn þess­arar söng­elsku fjöl­skyldu?

2.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Montevideo?

3.   Hver er stærsta hvala­teg­undin?

4.   Hvaða dýra­teg­und er teikni­mynda­fígúran Garfield eða Grettir? 

5.   Hver varð fyrir val­inu sem þjálf­ari árs­ins í kjöri íþrótta­f­rétta­manna rétt fyrir ára­mótin?

6.   Í hvaða landi fædd­ist Búdda? Hér er átt við land­svæðið, þótt sjálfur fæð­ing­ar­stað­ur­inn til­heyri nú raunar öðru ríki.

7.   Rúmlega 1.300 árum fyrir Krist varð Akhenaton nokkur kon­ungur Egifta­lands. Hann kom á sann­kall­aðri bylt­ingu í trú­málum þjóðar sinnar, en eftir að hann dó var bylt­ingin aft­ur­kölluð og Egiftar hurfu aftur að fyrri háttum. Hvað hafði verið grund­vall­ar­at­riði og þunga­miðja í umskiptum Akhenatons?

8.   Hvað hét móðir Elísa­betar Breta­drottn­ingar? For­nafnið dugar eins og einatt hjá kónga­fólki.

9.   Eitt venju­legt fet sam­svarar um það bil hve mörgum sentí­metrum?

10.   Hver er uppi­staðan í tófú? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Teikn­ingin hér að neðan á við atburð úr Íslend­inga­sögu einni. Hver er sú saga?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Osmond.

2.   Úrúgvæ.

3.   Steypireyður.

4.   Köttur.

5.   Elísabet Gunn­ars­dóttir.

6.   Á Indlandi.

7.   Ein­gyð­is­trú.

8.   Elísabet.

9.   Þrjátíu senti­metrar. Ef menn fara upp í 31 má það sosum telj­ast rétt, því hárétt er svarið 30,48.

10.  Soja­baunir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er söng­stjarnan Barbra Streisand ung að árum.

Á neðri mynd­inni má sjá Helga Harð­beins­son þurrka blóð af spjóti sínu á sjali Guðrúnar Ósvíf­urs­dóttur eftir að hann drap Bolla eig­in­mann hennar. Frá þessu segir í Laxdælu.

***

Og gáið svo að spurn­ing­unum síðan í gær, sé þeim eigi aflokið. Hér er hlekk­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár