252. spurningaþraut: Hversu gömul verður Greta Thunberg í dag, og fleiri spurningar

252. spurningaþraut: Hversu gömul verður Greta Thunberg í dag, og fleiri spurningar

Hér er þrautin frá í gær, 2. jan­úar.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er það sem rís hér á hörpu­diski upp úr sjónum, að því er best verður séð?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í dag heldur upp á 52ja ára afmælið sitt einn helsti afreks­maður heims­ins í til­tek­inni grein. Því miður er óljóst hvort hann geri sér fulla grein fyrir því sjálfur, því hann hefur í mörg ár glímt við heilaskaða, eftir að hafa lent í alvar­legu slysi. Slysið tengd­ist reyndar ekki neitt grein­inni sem hann var afreks­maður, og hafði þá nýlega lagt á hill­una. Hvað heitir mað­ur­inn?

2.   Greta Thunberg á líka afmæli í dag, sú ötula bar­áttu­stúlka gegn ham­fara­hlýnun, sem vakið hefur athygli um gjörvalla heims­byggð­ina. Hvað verður Greta gömul í dag?

3.   Hvaða ár tók kona í fyrsta sinn sæti í rík­is­stjórn Íslands?

4.   Hvaða ár voru í fyrsta sinn fleiri en ein kona í rík­is­stjórn Íslands?

5.   Mjói­fjörður og Seyði­fjörður eru tveir Aust­fjarð­anna, eins og allir vita. En á allt öðrum stað á land­inu eru líka að að finna Mjóa­fjörð og Seyð­is­fjörð. Hvar er það? Hér verður svarið að vera nokkuð nákvæmt.

6.   Hvað hét höf­uð­borgin í Vestur-Þýska­landi meðan það ríki var við lýði fyrir sam­ein­ingu Þýska­lands?

7.   Jaroslav Hasek var tékk­neskur rit­höf­undur. Hann er lang­sam­leg­asta þekkt­astur fyrir eina skáld­sögu sína, en hún heitir eftir aðal­per­són­unni, her­manni sem lendir í ýmsu. Hvað heitir skáldsagan?

8.   Hvað er fjöl­menn­asta ríki heims­ins?

9.   Ef við lítum á heims­álf­urnar Norður- og Suður-Ameríku sem eina heild, þá eru Banda­ríkin fjöl­menn­asta ríkið en Brasilía í öðru sæti. En hvað er þá þriðja fjöl­menn­asta ríkið í Ameríkum?

10.   Í til­teknu landi er fram­leiddur vin­sæll bjór sem heitir Corona. Hug­myndir hafa komið upp um að breyta nafni bjórs­ins vegna kór­óna­veirunnar, en ekki hefur orðið af því ennþá. Frá hvaða landi er Corona-bjór?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Schumacher.

2.   Átján ára.

3.   1970.

4.   1999. Þegar ný rík­is­stjórn tók við um mitt ár urðu þrjár konur ráð­herrar: Ingi­björg Pálma­dóttir (sem hafði verið ráð­herra frá 1995), Siv Frið­leifs­dóttir og Sólveig Pét­urs­dóttir. Á gaml­árs­dag bætt­ist Val­gerður Sverr­is­dóttir í hóp­inn.

5.   Inn úr Ísa­fjarð­ar­djúpi. „Á Vest­fjörðum“ dugar ekki.

6.   Bonn.

7.   Góði dát­inn Svejk.

8.   Kína.

9.   Mexíkó.

10.   Mexíkó.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er ást­ar­gyðjan Venus. Það er líka heim­ilt að segja Afródíta.

Á neðri mynd­inni er Villi Neto, eins og hann kom fyrir sjónir í ára­mótaskaup­inu.

***

Hér er svo aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár