251. spurningaþraut: Ríkissaksóknari, Góðrarvonarhöfði, Abu Bakr og Atahualpa

251. spurningaþraut: Ríkissaksóknari, Góðrarvonarhöfði, Abu Bakr og Atahualpa

Þrautin frá í gær, nýárs­dag!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan er úr vin­sælli leik­sýn­ingu frá því fyrir nokkrum árum. Sýningin var gerð eftir til­tölu­lega nýút­kominni íslenskri skáld­sögu, sem einnig hafði notið veru­legra vin­sælda. Þarna má sjá Guðrúnu S. Gísla­dóttur í aðal­hlut­verk­inu, en hún lék eina helj­ar­mikla kerl­ingu sem kom víða við um ævina. Hvað hét sýn­ingin, og þar með skáldsagan líka?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað hét sá franski her­maður, sem sak­aður var um njósnir fyrir Þjóð­verja árið 1894 og olli miklu fári í frönsku þjóð­lífi?

2.   Það telj­ast nú vera liðin 18 ár síðan banda­ríski kvik­mynda­leik­stjór­inn Sofia Coppola frum­sýndi mynd­ina Lost in Translation, þar sem lýst er nokkuð vand­ræða­legum kynnum tveggja per­sóna sem Bill Murray og Scarlett Johansen leika. Í hvaða borg ger­ist þessi bíó­mynd?

3.   Hvers konar dýr er mjaldur?

4.   Góðr­ar­von­ar­höfði heitir höfði einn í Afríku. Hver var sú „góða von“ sem höfð­inn var nefndur eftir?

5.   Hver er rík­is­sak­sókn­ari?

6.   „Nú andar suðrið sæla vindum þýðum. / Á sjónum allar bárur smáar rísa, / og ...“ Hvernig eru næstu tvær línur í þessu kvæði?

7.   Árið 1529 braust út borg­ara­styrj­öld í ríki einu, og átt­ust þar við bræð­urnir Huáscar og Ata­hu­alpa, sem báðir ætl­uðu sér kon­ungs­tign eftir lát kóngs­ins föður síns. Eftir fáein ár fór Ata­hu­alpa með sigur af hólmi, en stríðið veikl­aði inn­viði lands­ins sem varð afdrifa­ríkt þegar inn­rás­ar­her birt­ist á landa­mærum rétt í þann mund að stríði bræðr­anna lauk. Í hvaða ríki börð­ust þeir Huáscar og Ata­hu­alpa? 

8.   Hver var á dög­unum val­inn íþrótta­maður árs­ins 2020?

9.   Abu Bakr, Omar, Osman og Alí. Hvaða starfi gegndu þessir fjórir menn fyrstir allra? (Ekki sam­eig­in­lega, heldur hver á fætur öðrum.)

10.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Búkarest?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Dreyfus.

2.   Tókíó.

3.   Hvalur.

4.   Vonin um að finna sjó­leið til Indlands.

5.   Sigríður Frið­jóns­dóttir.

6.   „... flykkj­ast heim að fögru landi ísa, / að fóst­urjarðar minnar strönd og hlíðum.“

7.   Ríki Inka í Suður-Ameríku. Það telst einnig rétt að segja „Perú“.

8.   Sara Björk Gunn­ars­dóttir.

9.   Þeir voru fyrstu kalíf­arnir, það er að segja eft­ir­menn Múhameðs spá­manns í hinum upp­vax­andi söfn­uði múslima á sjö­undu öld.

10.   Rúmeníu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Tasman­íu­djöf­ull, ekki -tígur

Myndin efst er úr leik­sýn­ing­unni Konan við 1000 gráður. Hún var gerð eftir sam­nefndri sögu Hall­gríms Helga­sonar en ónauð­syn­legt að nefna nafnið hans.

Neðri myndin er af hinum útdauða tasman­íu­tígri. Athugið að svarið „tasman­íu­djöf­ull“ er rangt, þar er um að ræða allt aðra dýra­teg­und sem þó býr líka á Tasmaníu.

***

Og hér er svo, til upp­rifj­unar, hlekk­ur­inn á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár