250. spurningaþraut: Hvað hefur gerst á nýársdag?

250. spurningaþraut: Hvað hefur gerst á nýársdag?

Hér er hlekkur á þraut­ina á frá í fyrra!

***

Gleði­legt nýtt ár. Í til­efni dags­ins snú­ast allar sprurn­ingar dags­ins um ýmis­legt sem gerst hefur 1. jan­úar í gegnum tíð­ina.

Fyrri auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að ofan er vænt­an­lega einmitt núna að opna pakk­ana sem sam­býl­is­maður hennar Xavier Giocanti færir henni á 65 ára afmæl­inu, nú, eða þá syn­irnir tveir af fyrra sam­bandi, Pierre-Henri og Thomas. Hvað heitir konan sem opnar afmæl­is­gjaf­irnar sínar í dag áður en hún fer í vinn­una sína í bank­anum (von­andi bara í tölv­unni samt)?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Á þessum degi árið 153 fyrir Krist var ákveðið að tveir æðstu emb­ætt­is­menn Róma­veldis skyldu eft­ir­leiðis taka við emb­ættum sínum á nýárs­dag. Var svo fram­vegis. Þessir emb­ætt­is­menn voru helstu hand­hafar fram­kvæmda­valds og her­valds fram að tíma keisar­anna. Hvað köll­uð­ust emb­ætt­is­menn­irnir?

2.   Enn erum við í Róma­veldi. Á nýárs­dag árið 404 eftir Krist er sagt að munkur einn að nafni Tel­emak­hus hafi vaðið fram til að stöðva ákveð­inn hlut í Róma­veldi, en afskiptum hans var svo illa tekið af almenn­ingi að hann var umsvif­laust grýttur til bana af fólk­inu. Keis­ar­inn Honorius hreifst hins vegar af eld­móði og ótta­leysi Tel­emak­husar og lét banna þetta til­tekna fyr­ir­bæri. Hvað var það?

3.   Þann 1. jan­úar 1449 fædd­ist Lorenzo nokkur í borg­inni Flórens á Ítalíu en hann átti eftir að verða mik­ils háttar valda­maður þar og er raunar oft kall­aður „Lorenzo hinn mik­il­feng­legi“. Auk ver­ald­legs valda­pots studdi hann við lista­menn, svo sem mynd­list­ar­mann­inn Michelangelo. Af hvaða ætt var Lorenzo þessi?

4.   Huldrych Zwingli fædd­ist 1. jan­úar 1481 og varð leið­togi umbóta­hreyf­ingar í trú­málum í landi sínu. Hann var sam­tíma­maður og að ýmsu leyti fyr­ir­renn­ari sams­konar umbóta­manna eins og Martins Luthers, Calvins og fleiri fugla í öðrum löndum. Jafn­framt tók Zwingli mik­inn þátt í ver­ald­legu vaf­stri í landi sínu og hann var drep­inn í bar­daga inn­an­lands árið 1531. Í hvaða landi bjó og starf­aði Zwingli?

5.   Árið 1785 hóf dag­blað nokk­urt að koma út undir nafn­inu The Daily Uni­ver­sal Register, en þann 1. jan­úar þrem árum seinna var skipt um nafn á blað­inu og æ síðan hefur það komið út undir hinu nafni, eða í 233 ár. Hvað var hið nýja nafn sem tekið var upp á nýárs­dag 1788?

6.   Viktoría hét hún, drottn­ingin yfir Bret­landi stóran hluta 19. aldar. Það vita nú allir. Hitt vita kannski færri að 1. jan­úar 1877 var hún jafn­framt lýst keis­ara­ynja í landi einu. Hvaða land var það?

7.   Þann 1. jan­úar 1892 var byrjað að taka á móti inn­flytj­endum frá Evrópu á ákveðnum stað í New York-borg í Banda­ríkj­unum. Stað­ur­inn varð tákn um drauma inn­flytj­enda um betra líf, drauma sem ekki rætt­ust allir. Hvaða staður var þetta?

8.   Þann 1. jan­úar 1959 var grimmum og spilltum ein­ræð­is­herra steypt af stóli í ríki einu og við stjórn tóku bylt­ing­ar­menn sem höfðu árum saman barist gegn stjórn­inni. Í hvaða ríki gerð­ist þetta?

9.    Davor Šuker heitir fót­bolta­maður sem fædd­ist 1. jan­úar 1968. Á síð­asta ára­tug 20. aldar var hann einn af helstu fram­herjum heims og spil­aði til dæmis með Sevilla, Real Madrid og um tíma með Arsenal. Hann gerði einnig garð­inn frægan með lands­liði sínu sem kom iðu­lega á óvart með betri frammi­stöðu en ætla hefði mátt miðað við íbúa­fjölda lands­ins. Fyrir hvaða land spil­aði Šuker?

10.   Á nýárs­dag 1999 kom til sög­unnar nýtt fyr­ir­bæri í Evrópu sem vakti mikla athygli og miklar vonir, sem flestir hljóta að vera sam­mála að hafi ekki ræst að öllu leyti. Fyr­ir­bærið þykir að mörgu leyti hafa gef­ist vel, og margir sækj­ast ákaft eftir því, en það hefur líka lent í kröppum dansi öðru­hvoru  og hefur stundum verið sagt þrengja mjög hag sumra þeirra, sem nota það. Hvaða fyr­ir­bæri er þetta?

 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Maðurinn á mynd­inni hér að neðan fædd­ist 1. jan­úar 1912 og væri því að halda upp á 108 ára afmælið sitt í dag ef hann hefði ekki dáið 1988, fjarri ætt­landi sínu. Það var reyndar spurn­ing um þennan mann í þraut fyrir bara fáeinum dögum en þá birt­ist ekki mynd af honum. Nú spyr ég: Hvaða karl er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Konsúlar eða ræð­is­menn, hvorttveggja svarið er rétt.

2.   Bardaga skylm­inga­þræla.

3.   Medici.

4.   Sviss.

5.   The Times.

6.   Indland.

7.   Ellis eyja.

8.   Kúba.

9.   Króatíu.

10.   Evran.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni er Christine Legarde banka­stjóri Evrópska seðla­bank­ans. Seinna nafnið er alveg nóg.

Karlinn á neðri mynd­inni er Kim Philby, Breti sem njósn­aði fyrir Sov­ét­ríkin.

***

Og aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár