249. spurningaþraut: Síðasta þraut ársins snýst um ýmislegt sem gerðist á árinu 2020

249. spurningaþraut: Síðasta þraut ársins snýst um ýmislegt sem gerðist á árinu 2020

Þrautin í gær, reynið yður við hana!

***

Spurn­ingar um atburði árs­ins 2020. Fyrri auka­spurn­ingin snýst um kon­una á mynd­inni hér að ofan. Hún stóð heldur betur í ströngu á árinu. Hvar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Þann 25. maí var maður drep­inn af lög­regl­unni í Minnesota í Banda­ríkj­unum og varð sá atburður til­efni mik­illa mót­mæla. Hvað hét mað­ur­inn? Hér er spurt um fullt nafn.

2.   Á árinu komu út bækur um Donald Trump sem vöktu heil­mikla athygli. En hversu margar bækur hafa verið gefnar út í Banda­ríkj­unum (og víðar) um Trump á þeim fjórum árum sem liðin eru síðan hann varð for­seti? Eru það um það bil 1-2 bækur, 12 bækur, 120 bækur eða 1.200 bækur?

3.   Hvað gerð­ist á bíla­stæði fyrir framan hús­næði garða­vinnsl­unnar Four Seasons Total Landscaping í Phila­delphia í Banda­ríkj­unum?

4.   Þann 9. ágúst 2020 stóð Svi­atl­ana Heor­hi­yeuna Tsikhanouskaya í stór­ræðum. Hvar þá?

5.   Henry Charles Albert David Windsor og Megan Markle voru í fréttum framan af ári þegar þau kváð­ust ekki lengur nenna að opna blóma­sýn­ingar í for­föllum Elísa­betar Breta­drottn­ingar – eða hvernig sem þau orð­uðu það nú aftur. En þótt Harry og Megan vildu ekki lengur sinna skyldum sem kónga­fólk á Bret­landi, þá vilja þau ólm frá að halda her­togatitli sem Elísabet úthlut­aði þeim á sínum tíma. Þau telj­ast nefni­lega vera her­toga­hjónin af ...?

6.   Ólymp­íu­leik­unum sem fara áttu fram á árinu var frestað, en stefnt er að þeim á næsta ári. Hvar áttu þeir að fara fram?

7.   Hvaða heims­fræga amer­íska körfu­bolta­stjarna dó í þyrluslysi á árinu ásamt dóttur sinni og fleira fólki?

8.   Meðal þeirra sem dóu úr covid-19 var Dave Greenfield, hljóm­borðs­leik­ari í frægri rokk­hljóm­sveit, sem kom hingað til lands þrisvar, fyrst árið 1978. Vænta má þess að hljóm­sveitin beri vart sitt barr eftir að Greenfield er úr sög­unni. En hver er hljóm­sveitin?

9.   Carole nokkur Baskin komst í frétt­irnar þegar hún kom mjög við sögu í sjón­varps­þátta­röð, sem sló ræki­lega í gegn nokkuð óvænt, og fjall­aði um miklar svipt­ingar og bar­áttu milli hennar og til­tek­ins manns um ... hvað?

10.   Skamm­stöf­unin AOC kom heil­mikið við sögu í banda­rískri póli­tík á árinu sem er að líða. Hvað þýðir þessi skamm­stöfun?

***

Seinni aðal­spurn­ing:

Þann 3. jan­úar 2020 komst grá­hærði mað­ur­inn hér á mynd­inni (annar frá vinstri) heldur betur í frétt­irnar. Hvað varð til þess?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   George Floyd.

2.   Eitt þús­und og tvö hund­ruð bækur!

3.   Rudy Guiliani lög­maður Trumps hélt þar frægan blaða­manna­fund.

4.   Í Bélarus eða Hvíta-Rúss­landi. Hún var þar í for­seta­fram­boði gegn Lúk­asjenka for­seta.

5.   Sussex.

6.   Tókíó.

7.   Kobe Bryant.

8.   Stranglers. Sjá hér!

Alex­andra Ocasio-Cortezþing­maður frá New York.

9.   Dýra­garðs­rekstur, (stórra) katta­hald.

10.   Alex­andra Ocasio-Cortez.

***

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri: Rétt svar er Hong Kong. Þetta er Carrie Lam leið­togi stjórn­ar­innar þar sem mót­mælt hefur verið allt árið. „Kína“ dugar hvergi nærri sem rétt svar.

Á neðri mynd­inni er Kassam Soleimani, íranskur her­for­ingi sem drep­inn var í dróna­árás Banda­ríkj­anna. Ekki er nauð­syn­legt að muna nafn hans.

Hér er svo hlekk­ur­inn á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár