248. spurningaþraut: Golfleikari, gabbró, Rosario, Guðmundur, þá er fátt eitt talið

248. spurningaþraut: Golfleikari, gabbró, Rosario, Guðmundur, þá er fátt eitt talið

Hlekkur hér á þraut­ina frá í gær.

***

Auka­spurn­ingar.

Konan á mynd­inni hér að ofan var frægur ljós­mynd­ari með meiru. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í dag heldur upp á 45 ára afmæli sitt einn fræg­asti golfleik­ari heims­ins. Hann hefur verið oftar í efsta sæti golflist­ans en nokkur annar og vann á árum áður ótrú­lega sigra á golf­vell­inum. Síðustu árin hefur hann vart verið svipur hjá sjón vegna meiðsla og ýmissa áfalla ann­arra, en staða hans sem eins fræg­asta golfleik­ara sög­unnar er þó trygg. Hvað heitir afmæl­is­barnið?

2.   Jane Goodall heitir kona ein, sem nú er komin fast að níræðu, en skaust fram í sviðs­ljósið um og upp úr 1970 þegar hún fór að gefa út bækur um til­tekið fyr­ir­bæri sem hún hafði þá stundað rann­sóknir á um ára­bil, og hefur haldið því áfram síðan. Rann­sókn­irnar kröfð­ust þess að hún dveldi lang­dvölum á til­teknum suð­lægum slóðum. Hvað hefur Goodall verið að rann­saka?

3.   Fjall eitt á Íslandi er 756 metra hátt og stendur fremst á svo­nefndu Hvalnesi. Það er snar­bratt og til­komu­mikið og þar hafa fund­ist ýmsir málmar, svo sem gull, silfur og kvika­silfur, en ekki þó í miklu magni. Fyrrum hét fjallið Hval­nes­horn. Núver­andi nafn gefur hins vegar til kynna hvar á land­inu fjallið er nið­ur­komið. Hvaða nafn er það?

4.   Hvað er gabbró?

5.   Guð­mundur Sig­ur­jóns­son lög­fræð­ingur fæst nú aðal­lega við fast­eigna­sölu, en hann var á árum áður kunnur fyrir allt annan hlut, og varð reyndar Íslands­meist­ari á því sviði þrisvar sinnum. Hvaða svið var það?

6.   Þann 24. júní 1987 fædd­ist í borg­inni Rosario piltur sem lét lítið yfir sér allra fyrstu árin en svo kom fljót­lega í ljós að hann var sann­kall­aður meg­in­snill­ingur. Margir halda því meira að segja fram að pilt­ur­inn frá Rosario sé mesti snill­ingur heims­ins og sög­unnar á sínu sviði. Hvað heitir pilt­ur­inn?

7.   Fyrir ekki löngu síðan gerð­ist það að stjórn­mála­maður einn hugð­ist bjóða sig fram til vara­for­manns í flokki sínum. Félag­arnir tóku því ekki betur en svo að staða vara­for­manns var umsvifa­laust lögð niður. Hver er stjórn­mála­mað­ur­inn?

8.   Henry Morgan, Sam Bellamy, Edward Teach, William Kidd, Anne Bonny og Calico Jack. Fyrir hvað voru þau kunn?

9.   Hvað hét jök­ull einn, sem var kvaddur form­lega árið 2019?

10.   „Ég byggði mér hús við hafið / og hafið sagði ókei. / Hér er ég og ég heiti /
Hudson Bay.“ Hver orti svo?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er mað­ur­inn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Tiger Woods.

2.   Mannapa. Athugið að svarið „gór­illur“ er rangt. Þá eruði að rugla Goodall saman við Dian Fossey og það gengur ekki. „Simpansar“ væri hins vegar rétt.

3.   Eystra­horn.

4.   Berg­teg­und. Svarið þarf ekki að vera nákvæmara en það. „Stein­teg­und“ telst líka rétt þótt jarð­fræð­ingar kjósi fremur „berg­teg­und“.

5.   Skák.

6.   Messi.

7.   Vigdís Hauks­dóttir.

8.   Sjórán.

9.   Ok.

10.   Steinn Steinarr.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Linda ásamt eig­in­manni sínum, Paul.

Konan hét Linda McCartney.

Karlinn hét J.Edgar Hoover og var yfir­maður alrík­is­lög­regl­unnar FBI í Banda­ríkj­unum.

***

Hlekkur á þraut­ina síðan í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár