247. spurningaþraut: Hvaða Elísabet einsetti sér að taka engan af lífi?

247. spurningaþraut: Hvaða Elísabet einsetti sér að taka engan af lífi?

Jú, hér er þrautin síðan í gær. Gleymd­irðu henni?

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hluti af hvaða stór­borg sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.    Árið 1741 hrifs­aði kona nokkur til sín völdin í ætt­landi sínu. Hún ríkti síðan í 21 ár í land­inu og var bæði virt og vel metin. Hún er fræg í sög­unni fyrir þá ákvörðun sína að láta ekki taka neinn af lífi í land­inu, og er ekki vitað annað en það hafi gengið eftir. Slíkt var og er sjald­gæft í landi þessu. Konan hét Elísabet en hvaða landi stýrði hún?

2.   Tripoli heitir borg ein, höf­uð­borg í ríki sem reyndar er illa klofið í bili. Í hvaða landi er Tripoli höf­uð­borg?

3.   En það eru til dæmis fleiri borgir sem bera þetta sama nafn, Tripoli. Ein þeirra er næst­stærsta borgin í allt öðru ríki og teygir sögu sína að minnsta kosti 3.400 ár aftur í tím­ann. Þá bjuggu Föníkar í þess­ari Tripoli en seinna meðal ann­arra kross­farar. Í hvaða ríki er þessi Tripoli-borg?

4.   Hvaða ráðu­neyti stýrir Bjarni Bene­dikts­son?

5.   Hver skrif­aði bók­ina Bráðin, sem út kom fyrir þessi jól?

6.   En hver skrif­aði barna­bók­ina Herra Bóbó, Amelía og ætt­brókin, sem einnig kom út fyrir þessi jól?

7.   Omega Leonis heitir stjarna ein í stjörnu­merk­inu Ljóninu. Hún er í 106 ljósára fjar­lægð frá Jörðu, en fjar­lægðin hefur þó ekki komið í veg fyrir býsna náin kynni íbúa á plánetu sem gengur um Omega Leonis og Jarð­ar­búa. Reyndar ríkir yfir­leitt fullur fjand­skapur milli Jarð­ar­búa og íbúa á þess­ari plánetu, en menn hafa þó lagt mikið á sig til að skilja þessa íbúa, og furðu margir hér á Jörðu munu tala tungu­mál hinna ill­skeyttu plánetu­búa. Hvað kall­ast þeir?

8.   Hvað hét fyrsta skip Eim­skipa­fé­lags Íslands?

9.   Bjarkey Gunn­ars­dóttir heitir þing­maður Vinstri grænna í norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hér vantar reyndar milli­nafn hennar. Hvað er það?

10.   Hvaða ár hættu Bítl­arnir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Rúss­landi.

2.   Líbíu.

3.   Líbanon.

4.   Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

5.   Yrsa Sig­urð­ar­dóttir.

6.   Yrsa Sig­urð­ar­dóttir.

7.   Klingon.

8.   Gullfoss.

9.   Olsen.

10.   1970.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin í loft­inu laust fyrir ofan Barcelona á Spáni.

Neðri myndin var tekin af Opruh Winfrey þegar hún var stelpa.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár