246. spurningaþraut: Auður djúpúðga, Draumráðningar, bræður tveir og píramídalaga fjall

246. spurningaþraut: Auður djúpúðga, Draumráðningar, bræður tveir og píramídalaga fjall

Æjá, hérna er hlekkur á þraut­ina síðan í gær!

***

Hér er fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heita þeir kátu félagar sem sjást á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Franskir bræður, Auguste og Louis Lumière, gerð­ust árið 1895 miklir braut­ryðj­endur í ákveð­inni tækni sem var þá að ryðja sér til rúms og olli að lokum algjörri bylt­ingu í sam­fé­lag­inu. Út á hvað gengu tækninýj­ungar bræðr­anna?

2.   Hver sendi frá sér bók­ina Die Traum­deutung, eða Draum­túlk­anir, árið 1899?

3.   Hvað hét land­náms­bær Auðar djúpúðgu í Dala­sýslu?

4.   Árið 2013 gaf tví­tug söng­kona út sína fyrstu hljóm­plötu, Yours Truly hét hún. Síðan hefur söng­konan gefið út plötu nálega á hverju ári: My Everyt­hing (2014), Dangerous Woman (2016), Sweetener (2018), Thank U Next (2019) og í haust kom út platan Postitions. Hún lét lítt slá sig út af lag­inu þótt hryðju­verka­maður hafi drepið fjölda manns á einum tón­leika hennar 2017. Hvað heitir hún?

5.   Hvað heitir píramídalaga fjall á Reykja­nesi?

6.   Hver er stærsti flokkur spen­dýra? – og þá er átt við fjölda teg­unda.

7.   Hvaða eft­ir­sóttu verð­laun fékk Louise Glück snemma í októ­ber?

8.   Hver varð í þriðja sæti í for­seta­kosn­ing­unum á Íslandi sum­arið 2016?

9.   Í hvaða landi er borgin Osaka?

10.   Hvern sigr­aði Davíð Oddsson í kjöri um for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins á útmán­uðum 1991? 

***

Seinni auka­spurn­ing er þessi:

Hvaða ríki hefur svo óvenju­legan fána, eins og hér að neðan sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kvik­myndir.

2.   Sigmund Freud.

3.   Hvammur.

4.   Ariana Grande.

5.   Keilir.

6.   Nagdýr.

7.   Nóbels­verð­launin í bók­menntum.

8.   Andri Snær.

9.   Japan.

10.   Þorstein Pálsson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru þeir Baldur og Konni.

Á neðri mynd­inni er fáni Nepals.

***

Og hlekk­ur­inn, já, hér er hann, á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár