245. spurningaþraut: „Afmælisbarn dagsins fæddist 1571 í smábæ í Þýskalandi“

245. spurningaþraut: „Afmælisbarn dagsins fæddist 1571 í smábæ í Þýskalandi“

Nú er kom­inn þriðji í jólum, þótt sá dagur sé kannski ekki til form­lega. En þrautin annan í jólum, hér er hana að finna!

***

Auka­spurn­ingar fyrst.

Sú fyrri:

Í hvaða borg er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Afmæl­is­barn dags­ins fædd­ist á þessum degi árið 1571 í smábæ í Þýska­landi. Hann varð stór­merkur vís­inda­maður og er einkum þekktur fyrir rann­sóknir sínar á hreyf­ingum reiki­stjarn­anna. Þar fet­aði hann í fót­spor Copernicusar sem hafði sett fram kenn­ingu um að sólin, ekki jörðin, væri mið­punktur sól­kerf­is­ins. Hann vann um tíma með danska stjörnu­fræð­ingnum Tyho Brahe, var sam­tíma­maður Galileos og kenn­ingar hans voru ein stoðin undir þyngd­arafls­kenn­ingu Isaac Newtons. Hvað hét hann?

2.   Hvar eru Kverk­fjöll?

3.   Nálægt hvaða stór­borg er flug­völl­ur­inn Stansted?

4.   Árni Bergmann rit­höf­undur var lengi rit­stjóri dag­blaðs sem gefið var út hér á landi um langt skeið. Hvaða blað var það?

5.   Hversu gam­alt varð Rík­is­út­varpið um dag­inn?

6.    Þú ert á ferða­lagi í ónefndu landi (þessi saga ger­ist greini­lega eftir covid-19 far­ald­ur­inn) og hittir fyrir heima­mann sem kynnir sig og kveðst heita Tamaz Arveladze. Og með honum er frænka hans, Ketevan Guramis­hvili. Í hvaða landi er þá lang­lík­leg­ast að þú sért stödd eða staddur?

7.   Í hvaða landi var Jens Stol­ten­berg for­sæt­is­ráð­herra?

8.   Calamari kall­ast sjáv­ar­réttur einn sem víða er vin­sæll, til dæmis í Mið­jarð­ar­hafs­löndum en þó mun víðar. Hvað er megin hrá­efnið í calamari?

9.   Hver var utan­rík­is­ráð­herra á undan Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni?

10.   Í hvaða landi er Sto­nehenge?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er sú film­stjarna og söng­kona sem horfir til okkar á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kepler.

2.   Í og við norð­an­verðan Vatna­jökul.

3.   London. Með orð­inu „stór­borg“ er komið í veg fyrir að Luton geti talist rétt svar.

4.   Þjóð­vilj­inn.

5.   90 ára.

6.   Georgíu.

7.   Noregi.

8.   Smokk­fiskur.

9.   Lilja Alfreðs­dóttir.

10.   Bæði Bretland og England telj­ast rétt svör.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndin efst er tekin í París.

Myndin neðri er hins vegar af Marlene Dietrich.

***   

Og aftur hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár